Þjóðmál - 01.12.2016, Síða 5
RITSTJÓRNARBRÉF
Gleðilegjól og farsælt komandi ár
„Maður nútímans á erfitt með að skilja, að það sé einhvers virði, sem ekki þarf að kaupa eða
klófesta. Hann getur svo mikið sjálfur. Er það ekki þess vegna, sem kristin trú er svo lítils
metin af mörgum? Hún er rétt eins og sólin, sem bara gefur geislana sína og heimtar ekkert
annað en að fá að lýsa og verma og gefa líf."
Þannig komst Sigurbjörn Einarsson biskup í predikun á öðrum degi jóla í Hallgrímskirkju árið
2002. í hraða nútímans höfum við tekið siði Bakkabræðra sem byggðu sér bæ en gleymdu
gluggunum. Bræðurnir töldu sig geta bjargað málum með því að bera sólarljósið inn bæinn.
„Þeir hefðu auðvitað keypt slatta af sólargeislum, ef þeir hefðu verið auglýstir til sölu," sagði
Sigurbjörn Einarsson:
„En það er ýmislegt, sem Guð áskilur sér að gefa, bara gefa, og öllum jafnt, því allir eru sömu
öreigar í raun. Eða öllu heldur: Eigendur sama auðs, ef þeir þekkja hann og þiggja."
Á aðventunni er öllum hollt að minnast þess að enginn kaupir eða gleypir sólina -,,hún skín
á mann, ef glugginn gleymist ekki". Hvorki tæknibrellur eða peningar tryggja okkur hamingju
eða lífsfyllingu. Glugginn þarf að vera opinn - hjartað tilbúið til að meðtaka sólina af auðmýkt.
„Trúin sem við eigum, kristnir menn, hún er ekkert að miklast af, hún er ekkert annað en að
við viljum lofa Guði að lýsa á gluggann, inn í hjartað."
Þjóðmál óska lesendum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2016 3