Þjóðmál - 01.12.2016, Side 10
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari og þingmaður
Sjálfstæðisflokksins:„Auðvitað iiggurþað frekar beint við
að stærstu tveir fiokkarnir tali saman eftir niðurstöður
kosninga og manni finnst frekar eðlilegt að þeir geri það og
reyni að finna einhvern samstarfsgrundvöii og finni síðan
þriðja og jafnvel fjórða fiokkinn með sér i það."
lokunum var Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir,
þingmaðurog ritari Sjálfstæðisflokksins. Hún
fagnaði því að Björn Valur skyldi ekki útiloka
neinn möguleika í stöðunni. Spurð hvort
samstarf VG og Sjálfstæðisflokksins kæmi til
greina svaraði hún þvíjátandi.
„Auðvitað liggur það frekar beint við
að stærstu tveir flokkarnir tali saman
eftir niðurstöður kosninga og manni finnst
frekar eðlilegt að þeir geri það og reyni að
finna einhvern samstarfsgrundvöll og finni
síðan þriðja og jafnvel fjórða flokkinn með
sér í það," sagði ritari Sjálfstæðisflokksins
laugardaginn 10. desember.
Augljóst var að stjórnarsamstarf
Sjálfstæðisflokks og VG sem forseti íslands
nefndi í tilkynningu sinni 29. nóvember
var ekki úr myndinni. Orð Björns Vals voru
réttilega túlkuð sem andstaða við samstarf
á grundvelli viðræðnanna sem Birgitta
leiddi í nafni Pírata. Vaknaði spurning um
hvort klofningur væri innan VG milli þing-
manna landsbyggðarinnar annars vegar og
höfuðborgarsvæðisins hins vegar.
Hjörleifur Guttormsson, fyrrverandi
ráðherra og þingmaður Alþýðubandalagsins,
lagði til 24. nóvember í grein í Morgun-
blaðinu að Framsóknarflokkur, Sjálfstæðis-
flokkur og VG tækju höndum saman um
myndun ríkisstjórnar. Hann sagði:
„Augljóst er að háspenntar hugmyndir
VG um skattahækkanreru ekki líklegartil
að fá byr í slíku samstarfi, en einhverjar
breytngar á skattkerfnu og hert viðurlög
við undanskotum ættu ekki að vera
útlokaðar fyrir fram og þá með Fram-
sóknarflokkinn sem líklegan þriðja aðila.
Um ýmslegt annað ætti að geta náðst góð
samstaða milli þessara þriggja flokka, þará
meðal að binda enda á óráðshjal um aðild
íslands að Evrópusambandnu um fyrrsjáan-
lega framtíð.
Fyrir Sjálfstæðisflokknn væri hollt að
nálgastVG á breiðu sviði umhverfsmála,
m.a. að festa í stjórnarskrá þjóðareign
á náttúruauðlindum og ná fram öðrum
breytngum sem sæmileg samstaða hafði
tekst um sl. sumar. Kostur við hugsanlegt
samstarf þessara þriggja flokka er jafnframt
að þeir hafa góðan stuðning og þingstyrk
víðast hvar á landnu. Látum því á þetta
reyna sem fyrst."
Þegar nánar er kannað hvað valdi því
að Katrín Jakobsdóttir hefur að minnsta
kosti tvisvar sinnum skorast undan að
stíga ótvírætt skref til stjórnarsamstarfs við
Sjálfstæðisflokkinn er svarið á þá leið að hún
óttist urginn í„baklandinu" án þess að frekari
útlistun fylgi. Má skilja þetta svo að Katrín
hafi ekki fulla stjórn á flokknum, einhverjir í
aftursætinu ráði í raun för.
IV.
Úrslit í alþingiskosningunum 29. október
2016 voru þessi. Innan sviga eru breytingar
frá 2013.
8 ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2016