Þjóðmál - 01.12.2016, Page 11

Þjóðmál - 01.12.2016, Page 11
• Sjálfstæðisflokkurinn fékk 29,1 % (+2,3%) og 21 (+2) þingmann. • Vinstri hreyfingin - grænt framboð (VG) fékk 15,8% (+5%) og 10 þingmenn (+3). • Píratar fengu 14,4% (+9,4%) og 10 (+7) þingmenn. • Framsóknarflokkur fékk 11,5% (-12,9%) og 8 (-11) þingmenn. • Viðreisn fékk 10,4% fylgi og 7 þingmenn - nýrflokkurá þingi. • Björt framtíð (BF) fékk 7,2% (-1 %) og 4 (-2) þingmenn. • Samfylking fékk 5,8% (-7,2%) og 3 (-6) þingmenn. Þessar tölur sýna hvers vegna svona erfitt reynist að berja saman ríkisstjórn. Enginn tveggja flokka kostur er í myndinni. Til þess skortir sjálfstæðismenn og VG einn þing- mann. Sjálfstæðismenn geta myndað þriggja flokka stjórn í mörgum mynstrum. Viðreisn og BF hafa samflot í stjórnar- myndunarviðræðunum og hafa því sameiginlega 11 þingmenn á hendi. Sá fjöldi dugartil að mynda meirihlutastjórn með Sjálfstæðismönnum. Margt bendirtil að Bjarni Benediktsson ætli ekki að segja skilið við samstarfsmenn sína í Framsóknar- flokknum fyrr en í fulla hnefana og vilji því gjarnan hafa þá með í stjórn með Viðreisn og BF eða með VG.Tillaga um það hefurgreini- lega verið of stór biti að kyngja til þessa fyrir viðmælendur Bjarna. Að sjálfsögðu verðurekki mynduð ríkisstjórn margra flokka að þessu sinni frekar en endranær án þess að flokkarnir slái af stefnu sinni og fallist á málamiðlanir. Einkennilegast er að deilt sé um ESB- aðildarmálið á þeim grunni að efna beri til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort haldið skuli áfram aðildarviðræðum þar sem frá var horfið í janúar 2013 þegar Össur Skarphéðinsson, þáv. utanríkisráðherra, setti viðræðurnará ís. Hvers vegna er þetta svona einkennilegt? Nefna má þrjár ástæður: I.Viðræðunum hefur verið slitið og umsóknin afturkölluð. 2. Viðræðurnar voru reistar á röngum grunni þar sem umsóknin tók mið af því að ekki yrði um aðlögun á viðræðutímanum að ræða. 3. Viðræðurnar strönduðu vegna þess að íslendingar kröfðust fullveldis yfir 200 mílna efnahagslögsögunni. ESB-aðildarsinnar viðurkenna ekki réttmæti þess sem segir undir töluliðum 1. og 2. Þeir telja jafnframt að íslendingar verði ekki að beygja sig undir sameiginlega fiskveiðistefnu ESB sem er hluti af sáttmálaskyldum ESB- ríkjanna. Aðildarsinnar neita einfaldlega enn að horfast í augu við staðreyndir og mála sig út í horn. Viðreisn var stofnuð úti í þessu horni og virðist ekki vilja láta bjarga sér þaðan. Þetta er það sem snýr að íslendingum í ESB-málinu. Hvað sem því líður er staðan þannig innan ESB um þessar mundir að enginn ráðamanna þar hefur minnsta áhuga á að taka upp þráðinn í samtali við íslendinga um aðild. Brusselmenn standa vaktina dag og nótt til að halda ESB-skútunni á réttum kili og aðildarríkin eiga nóg með sig. V. í fréttatíma ríkisútvarpsins í hádeginu 8. desember veltu fréttamenn fyrir sér hvort Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra starfsstjórnarinnar, flytti áramótaávarpið 31. desember 2016, þá hefði ekki enn tekist að mynda stjórn. í orðaskiptunum fólst mat á stöu stjórnarmyndunarviðræðnanna undir forsytu Birgittu Jónsdóttur. Þau endur- spegluðu einnig að fjölmiðlamenn sýndu Birgittu meiri þolinmæði en öðrum og gengu ekki hart að henni með sþurningum um tímamörk. Alþingi kom saman þriðjudaginn 6. desember og Bjarni Benediktsson, starfandi fjármála- og efnahagsmálaráðherra, lagði sama dag fram fram frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2017. Steingrímur J. Sigfússon (VG) var kjörinn forseti alþingis, Haraldur Benediktsson (Sjálfstæðisflokki) formaður Ijárlaganefndar og Benedikt Jóhannesson (Viðreisn) formaður efnahags- og viðskipta- nefndar. Fleiri þingnefndir voru ekki kjör- nar enda lögð áhersla á að allt væri þetta ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2016 9

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.