Þjóðmál - 01.12.2016, Page 20
Árrti Páll Ámason, sem var um tíma ráðherra í ríkisstjór-
ninni gerði upp sögu misheppnaðrar ríkisstjórnar i bréfi til
flokksmanna i febrúar siðastliðnum.
að halla undan fæti. Fylgið minnkaði nær
stöðugt fram að kosningum vorið 2007.
Niðurstaða kosninganna var áfall. Flokkurinn
missti fylgi og þingmönnum hans fækkaði
um tvo. Vinstri grænir sóttu verulega í sig
veðrið og Sjálfstæðisflokkurinn bætti einnig
stöðu sína. Framsóknarflokkurinn tapaði
töluverðu fylgi. Fylgistap Framsóknarflokks-
ins varð til þess að Geir Fl. Haarde, forsætis-
ráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins,
taldi óvarlegt að halda stjórnarsamstarfi
flokkanna áfram, þrátt fyrir að ríkisstjórnin
hefði haldið velli - með minnsta meirihluta.
Fylgistap Samfylkingarinnar kom ekki í veg
fyrir þátttöku í ríkisstjórn. Samsteypustjórn
Sjálfstæðisflokks og Samfylkingartók við
völdum. Ingibjörg Sólrún varð utanríkis-
ráðherra og Össur Skarphéðinsson iðnaðar-
ráðherra. Forsætisráðherra var Geir H. Haarde.
Samstarfið við Samfylkinguna var umdeilt
meðal sjálfstæðismanna sem töldu að verið
væri að henda pólitískum björgunarhring til
Samfylkingarinnar.
Misheppnuð ríkisstjórn
Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar
var stjórnin sem sat að völdum þegar
viðskiptabankarnir þrír féllu í október 2008.
í janúar 2009 kom að leiðarlokum - það
slitnaði upp úr stjórnarsamstarfinu. Með
stuðningi Framsóknarflokksins tók minni-
hlutastjórn Samfylkingar og Vinstri grænna
við völdum 1. febrúar. Undir lok apríl sama
ár var gengið til kosninga. Ríkisstjórnar-
flokkarnir fengu meirihluta atkvæða -
samtals 51,5%. Vinstri menn sannfærðust
um að loksins væri þeirra tími runninn upp
í landsmálunum. Sjálfstæðisflokkurinn yrði
útlægur næstu ár og jafnvel áratugi.
Hér eru ekki tök á að rifja upp sögu vinstri
stjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og Stein-
gríms J. Sigfússonar. Þeim hefur verið lýst
sem árum glataðra tækifæra jafnt í pólitík
og efnahagsmálum, m.a. hér í Þjóðmálum.
Baktjaldamakkog bræðravíg að ógleymdum
smölun villikatta, urðu ríkisstjórnarflokkunum
að lokum að falli.
Árni Páll Árnason, sem var um tíma
ráðherra í ríkisstjórninni gerði upp sögu
misheppnaðrar ríkisstjórnar í bréfi til flokks-
manna í febrúar síðastliðnum. Þá var Árni Páll
formaður Samfylkingarinnar og skrifaði:
„Kjarninn okkarVið misstum það nána
samband sem við höfðum haft við
verkalýðshreyfinguna og talsambandið við
atvinnulífið.
Icesave Við studdum samning um lcesave
18 ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2016