Þjóðmál - 01.12.2016, Side 28
Fovro i /i c'»_____
Þaöþyi-ft,
tilaöfamiff
afturí f
stjommal
hana í 1 -2. sæti - vildu að hún yrði oddviti í
öðru hvoru Reykjavíkurkjördæminu. Þegar
Davíð Oddsson gaf fyrst kost á sér vegna
alþingiskosninganna 1991 fékk hann 55,5%
atkvæða í fyrsta sæti og liðlega 90% atkvæða
í heild.
Greið leið Þorgerðar Katrínar
Hanna Birna Kristjánsdóttir er langt í frá
að vera eina konan sem vegnað hefur vel í
prófkjörum Sjálfstæðisflokksins. Þegar litið
ertil árangurs kvenna í prófkjörum Sjálf-
stæðisflokksins síðasta aldarfjórðung, er
niðurstaðan sú að meiri líkur séu á að konum,
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrrverandi
varaformaður, ráðherra og þingmaður Sjálfstæð-
isfiokksins, erdæmi um velgengni kvenna innan
Sjálfstæðisflokksins. Hún hlaut strax brautargengi
og var ráðherra eftir örfá ár á þingi. íoktóber 2015
varhún í viðtali við Fréttablaðið.
sem eru að stíga sín fyrstu skref í stjórn-
málum, vegni vel en körlum. Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir er gott dæmi.
Þorgerður Katrín var fyrst kjörin á þing
árið 1999, þá sem þingmaður Reykjanes-
kjördæmis. í prófkjöri fyrir kosningarnar
- í fyrstu tilraun - náði hún fjórða sæti
með 50% atkvæða og liðlega 69% heildar-
atkvæða. Hún skaut tveimur sitjandi
þingmönnum ref fyrir rass.Tvær konur
voru í fjórum efstu sætunum. Þorgerður
Katrín var 34 ára.
Fjórum árum síðar varð Þorgerður Katrín
menntamálaráðherra og tveimur árum
eftir það var hún kjörin varaformaður Sjálf-
stæðisflokksins.
Árið 2006 hlaut Þorgerður Katrín yfir-
burðakosningu í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins - fékk 81 % atkvæða í fyrsta sæti
og 94% atkvæða í heild. Bjarni Benedikts-
son var í öðru sæti. Þrjár konur voru í sex
efstu sætunum; Ragnheiður Elín Árnadóttir
í fimmta sæti og Ragnheiður Ríkharðsdóttir
í því sjötta. Þær voru báðar nýliðar og náðu
kjöri á þing.
Þorgerður Katrín var í öðru sæti í prófkjöri
fyrir kosningarnar 2009, en þá hafði Bjarni
Benediktsson tekið við sem formaður Sjálf-
stæðisflokksins. Ragnheiður Ríkharðsdóttir
náði þriðja sæti. Þrjár konur voru meðal sex
efstu. Bjarni Benediktsson var oddviti.
Þorgerður Katrín ákvað að láta af embætti
varaformanns Sjálfstæðisflokksins 2010 og
gaf ekki kost á sér í þingkosningunum árið
2013. í yfirlýsingu sagði hún:
Fáir stjórnmálamenn hafa fengið meiri frama en Þorgerður Katrín innan
Sjálfstæðisflokksins. Hún náði strax inn á þing, varð ráðherra nokkrum áður
síðar og þar var gengið framhjá mörgum reyndum þingmönnum og loks var
hún kjörin varaformaður.
26 ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2016