Þjóðmál - 01.12.2016, Side 30
„Mér er efst í huga þakklæti, til þeirrar
breiðfylkingar sjálfstæðismanna, sem ég
hef starfað með og hitt fyrir á þeim árum
sem ég hef verið í stjórnmálum."
Fáir stjórnmálamenn hafa fengið meiri
frama en Þorgerður Katrín innan Sjálfstæðis-
flokksins. Hún náði strax inn á þing, varð
ráðherra nokkrum áður síðar og þar
var gengið framhjá mörgum reyndum
þingmönnum og loks var hún kjörin
varaformaður. Það kom því eðlilega illa við
marga stuðningsmenn hennar þegar hún
virtist tala niður glæsilega feril í viðtali við
Fréttablaðið í október 2015 en þar sagði hún
meðal annars:
„Flokkurinn, í Ijósi sögunnar, hefur alltaf
látið sér nægja að hafa einhverja eina konu
einhverstaðar sem ákveðna fjarvistar-
sönnun fyrir því að það sé bara allt í lagi."
í tilefni af þessum orðum sagði
Vefþjóðviljinn 4. október 2015:
„Hvernig á að skilja þetta? Var eitthvað
samsæri gegn konum í Sjálfstæðisflokknum
á meðan Þorgerður Katrín var þingmaður
hans, varaformaður og ráðherra? Tóku
bæði karlar og konur þátt í því? Og hvaða
konur voru þetta sem notaðar voru sem
„fjarvistarsannanir"?"
Með orðum sínum var Þorgerður Katrín
ekki aðeins að gera lítið úr glæsilegum eigin
árangri heldurallra annarra kvenna innan
Sjálfstæðisflokksins. Hún gaf þeirri skoðun
undirfótinn að konur hafi ekki náð embætti
borgarstjóra, orðið ráðherrar eða komist til
æðstu metorða hjá Sjálfstæðisflokknum,
vegna eigin ágætis heldur vegna þess að
verið væri að búa til „fjarvistarsönnun".
Erfitt er að finna dæmi um að konur hafi
fengið kaldari og meira niðurlægjandi
kveðjur.
Stjórnmál út frá kynferði
Sigríður Andersen þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins skrifaði pistil á heimasíðu
sína - sigridur.is -11. september um meint
kvennavandræði Sjálfstæðisflokksins. Þar
sagðist Sigríður ekki finnast það„spennandi
Hún gaf þeirri skoðun undir fótinn að
konur hafi ekki náð embætti borgar-
stjóra, orðið ráðherrar eða komist
til æðstu metorða hjá Sjálfstæðis-
flokknum, vegna eigin ágætis heldur
vegna þess að verið væri að búa til
„fjarvistarsönnun". Erfitt er að finna
dæmi um að konur hafi fengið kaldari
og meira niðurlægjandi kveðjur.
að ræða stjórnmál út frá kynferði fólks":
„Ég held að flestir geri skýran greinar-
mun á þeim sem þeir eiga samleið með
annars vegar í kjörklefanum og hins vegar
búningsklefanum. Fólk almennt kýs þá
frambjóðendur sem það telur sig vera sam-
mála, fremur en samkynja."
Síðar veltir Sigríður fyrir sér þætti Þorgerðar
Katrínar í prófkjörinu í Suðvesturkjördæmi,
sem var tilefni yfirlýsinga framkvæmdastjórnar
LS á laugardagskvöldi:
„í sumar gengu miklar sögur um að
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttirfyrrum vara-
formaðurflokksins myndi gefa kost á sér í
prófkjöri flokksins í suðvesturkjördæminu.
Hafði það neikvæð áhrif á einhverjar konur
sem voru að hugsa sér til hreyfings? Ég
vona ekki."
Samkvæmt heimildum Þjóðmála áttu flestir
sjálfstæðismenn von á því að Þorgerður Katrín
gæfi kost á sér í prófkjörinu. Þannig hafði hún
samband við áhrifafólk í kjördæminu til að
kanna jarðveginn fyrir framboði og átt samtöl
við konur og karla innan við sólarhring áður
en framboðsfrestur rann út. Fullyrða má að
von Sigríðar um að sögur af hugsanlegu
framboði fyrrverandi varaformanns hafi ekki
haft áhrif á aðrar konur, sé ekki á traustum
grunni.
Eftir að framboðsfrestur í prófkjörinu
rann út en nokkrum dögum fyrir prófkjörið
tilkynnti Þorgerður Katrín að hún hefði
sagt sig úr Sjálfstæðisflokknum og ætlaði
í framboð fyrir Viðreisn. Margir sjálfstæðis-
menn í Suðvesturkjördæmi reiddust þessum
28 ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2016