Þjóðmál - 01.12.2016, Side 33

Þjóðmál - 01.12.2016, Side 33
ORKUMÁL Elías B. Elíasson Orkan okkar og sæstrengur Okkur sárvantar heildstæða stefnu í orkumálum Þetta skilst þegar farið er yfir sæstrengsmálið í heild sinni. Umræðan þar hefur meira einkennst af áróðri en upplýsingum, orku- fyrirtækin öll nema eitt þegja og stjórnmála- menn vilja varla ræða það, hvað þá taka á því. Þetta mál er þó fyrir allra hluta sakir stefnumótandi mál, þó ekki væri nema vegna stærðar sinnar, einmitt nú þegar farið er að hilla undir endimörk orkuauðlindar okkar. Audlindin Stærð auðlindarinnar er takmörkuð af tveimur kostnaðarþáttum, sem eru verndar- gildi og virkjunarkostnaður. Mynd 7 sýnir þá orku sem eftir er að virkja á landinu þegar kostunum er raðað upp eftir kostnaðarverði orku þeirra. Eins og myndin sýnir eru þeir kostir sem eftir eru smáir, en þær virkjanir sem eru hag- kvæmastar og svo stórar, að þær verða ekki byggðar án fastra langtímasamninga hafa þegar verið reistar. Við núverandi aðstæður má telja, að upp að kostnaðarmörkunum 45 til 50 $/MWh höfum við val um það hvort við virkjum fyrir almenna notkun eða stóriðju. Þarfyrirofan er einungis um það að ræða, að virkja fyrir almenna markaðinn, en fyrir heimili landsins ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2016 31

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.