Þjóðmál - 01.12.2016, Side 43

Þjóðmál - 01.12.2016, Side 43
þeir hafa unnið saman að bókunum Labor ofDionysus, sem kom út árið 1994, og síðar verkin Empire (2000) og Multitude (2004). Empire er líklega þekktasta verk Negri en NewYorkTimes kallaði það Kommúnista- ávarp 21. aldarinnar. Með skrifum sínum hefur hann reynt að renna fræðilegum stoðum undir aðgerðasinna nútímans sem gjarnan skora hið lýðræðislega vald á hólm með fjöldamótmælum eða öðrum slíkum aðgerðum. Marxistar um allan heim hafa sótt visku til þeirra og hafa reynt að þróa einhvers- konar vísi að því sem mætti hugsanlega kalla póstmódernískan marxisma. Ekki skiptir síður máli tilraun Negri til að þróa stjórnarskrárvald (e. constituent power) sem meðal annars felur í sér að stjórnlagaþing (constituent eða constitutional assembly) setji slíka skrá. ÞegarChávez skipaði stjórnlagaþing til að setja nýja stjórnarskrá, voru 125 fulltrúar af 131 úr hans eigin flokki. Stjórnarandstaðan átti aðeins 6 fulltrúa. Óþolinmæði Chávez gerði það að verkum að stjórnlagaþingið fékk aðeins um 6 mánuði til að vinna verkið og í desember 1999 voru íbúar Venesúela látnir kjósa um stjórnarskránna; 71,8% sögðu já en 55,6% kjósenda mættu ekki og drógu þar af leiðandi úr áhrifamætti samþykkisins. Chávez lét það ekki á sig fá. Margt sérkenni- legt kom úr þessari stjórnarskrárvinnu, svo sem það að nafni landsins var breytt, flestum að óvörum. í stað þess að vera Lýðveldið Venesúela (Republic of Venezuela) varð það að Lýðveldi Bólivars íVenesúela (Bolivarian Republic of Venezuela). Aðdáun Chávez (sem kallaði sig gjarnan El Commandante) á Simón Bólivar (1783-1830), byltingahetju Suður- Ameríku, var öllum kunn. Chávez lét opna grafhýsi Bólivars árið 2010 til að komast í tengsl við anda hans. Það gerði hann reyndar undir sterkum sjónvarpsljósum og athöfnin var auglýst rækilega. Áhrif til íslands Ekki er vafi á því að hugmyndir þeirra Negri og Hardt höfðu áhrif á þá stemmingu sem ýtti stjórnarskrárbreytingum úr vör hér á italski kommúnistinn Antonio Negri var ráðgjafí Chávez við gerð stjórnarskrár. Negri kom til íslands með bandaríska bókmenntafræðingnum Michael Hardt en þeir hafa unnið saman að bókunum Labor of Dionysus, sem kom útárið 1994. Ljósmynd: Rubén G. Herrera landi árið eftir að þeir komu hingað. Ekki liggur fyrir hvort hugmyndir Negri og Hardt höfðu bein áhrif. En þess má geta að heim- spekingurinn Viðar Þorsteinsson, sem var einn þeirra sem stóð fyrir komu Negri hingað í nafni félagsskaparins Nýhils, er bróðirVil- hjálms Þorsteinssonar. Vilhjálmur sat í stjórn- lagaráði sem síðar samþykkti frumvarp til stjórnarskipunarlaga eða þá stjórnarskrá sem ætlunin er að þrýsta í gegn á næsta þingi eins og t.d. Píratar hafa lagt mikla áherslu á. Auk Negri og Hardt héldu marxistamir Chantal Mouffe og Peter Hallward fyrirlestra á vegum Nýhils. Það var sannfæring marx- ista að bankahrunið á íslandi væri enn ein staðfesting á innri mótsögnum kapítalismans sem væri dæmdur til að leiða yfir mannkynið bólur og hrun á víxl. Viðar hélt ræðu á Austurvelli 15. nóvember 2008. Þar fór sannur byltingarleiðtogi: „Það er af þessum ástæðum sem við, óformlegur hópur ungs fólks, leggjum til að hið íslenska lýðveldi verði stofnað upp á nýtt! Þannig myndi skapast tækifæri til hreingerningará meðal íslenskrar valda og auðmannastéttar, hreingerningar sem er lífsnauðsyn til að eðlilegt samfélag geti þrifist hér, hvort sem er innan eða utan Evróþusambandsins, með eða án evru, undir vinstri eða hægristjórn." ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2016 41

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.