Þjóðmál - 01.12.2016, Side 47
Uppbrot félagslega öryggisnetsins. Grefur
undan lögmæti virtra stofnana, einkum þar
sem miðstjórnarvald ríkisstjórna er mikið.
Framhald á uppgangi Kínverja og þar
með annars konar efnahagslegs regluverks,
meginsjónarmiða og forgangsmála.
Enn frekari uppgangur Pútíns (og samtímis
fall Rússland) ásamt með annars konar
öryggismálakerfi, meginsjónarmiðum og
forgangsmálum.
[...]
Hve mikla sök á upplausn Pax Americana
ber Obama - ég hugsa þá sérstaklega um
ákvörðun hans að leyfa sértrúareldum að
loga íMið-Austurlöndum sem kynt hafa
undir flóttamannavandann og vakið spurn-
ingar um skuldbindingar Bandaríkjamanna
um að standa að reglubundinni heims-
skipan?
Sannast sagna má frekar rekja Pax Americ-
ana til kerfisbundinna þátta en nokkurs
annars. Orkubyltingin grefur undan Mið-
Austurlöndum; í Evrópu glíma menn við eigin
röð af kreppum og ramba á barmi uppbrots;
Kína rís sem annar kostur í efnahagsmálum;
Rússland rís sem annar kostur í hermálum.
Vissulega lagði Obama ekki mikið af
mörkum til að stöðva þessa þróun en hún
hefði orðið hvort sem er.Trump veitir Pax
Americana einfaldlega náðarhöggið.
Anna Kinberg Batra, formaður
Moderatarna, mið-hægrifíokksins í Svíþjóð,
boðar breytta stefnu í útlendingamálum.
Mynd: Per Pettersson
Kröfur um að fólk sjái um sig sjálft
Anna Kinberg Batra, for-
maður Moderatarna, mið-
hægriflokksins í Svíþjóð,
segir í grein í Aftonbladet að
ekki dugi að bæta aðferðir
við að laga farand- og flótta-
fólk að sænsku þjóðlífi, það
sé nauðsynlegt að herða
eftirlit á landamærunum,
takmarka dvalarheimildir og
auka kröfur um að fólk sjái
fyrir sér sjálft.
Batra var kjörin flokks-
formaður í janúar 2015
en flokkurinn fór illa út úr
kosningunum árið 2014. Er
það að hluta rakið til stefnu
hans í útlendingamálum.
Batra segir að stefnubreyting
hennar sé ekki taktíktil að
ná í atkvæði frá Svíþjóðar-
demókrötunum heldur
sé hún reist á þeirri sann-
færingu hennar um nauðsyn
strangari reglna vegna
útlendinga.
Ríkisstjórn sænskra
jafnaðarmanna viðurkenndi
fyrir nokkru að ekki væri
unnt að taka á móti öllum
ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2016 45