Þjóðmál - 01.12.2016, Page 60

Þjóðmál - 01.12.2016, Page 60
Rússland Á árunum 2001-2003 var settur hluti afla- heimilda á uppboð í Austur-Rússlandi. Þegar efnt er til uppboða ber ríkið áhættuna af því ef engin þátttaka verður í uppboðunum. í þessu lentu Rússar meðal annars og varð rentan af auðlindinni því neikvæð að því er hluta uppboðanna varðaði. Framkvæmd annarra uppboða gekk betur. Það kom hins vegar á daginn að skuldsetning sjávarútvegs- fyrirtækja í Austur-Rússlandi jókst verulega, úr 6 ma.kr. hagnaði árið 2000 í 6 ma.kr. tap árið 2001. Þá jukust jafnframt ólöglegar veiðar, þar sem kostnaður fyrirtækja af upp- boðum leiddi til þrýstings um að auka veru- lega við tekjur. Talið er að landanir framhjá vigt og ólöglegar veiðar hafi numið um 120 ma.kr. á nefndu tímabili. Aukinheldur hafa sérfræðingar bent á að á þeim árum sem uppboð stóðu yfir hafi fjárfesting verið of lítii. Árið 2004 hurfu Rússar aftur til fyrra kerfis, sem byggði á úthlutun aflaheimilda á grund- velli veiðireynslu og settu á veiðigjöld. Eistland í Eistlandi voru 10% aflaheimilda boðin upp á ári hverju á tímabilinu 2001-2004. Uppboðin leiddu til þess að veruleg samþjöppun varð og skipum fækkaði úr 90 2000 í 24 skip árið 2001. Hagræðis var sannanlega þörf, en samþjöppun varð einnig vegna gjaldþrots smærri útgerða sem ekki fengu úthlutað aflaheimildum í uppboðum. Síle Árið 1992 voru gerðar tilraunir með uppboð á aflaheimildum í Síle. Heimildir til veiða á einni humartegund og einni bolfisktegund voru boðnar upp, tveir aðrir stofnar bættust við árið 1997, þ.e. búrfiskur og rækja. Fram- kvæmd uppboð sins var á þá leið að boðin voru upp veiðileyfi til 10 ára sem samsvaraði 90-100% afheildaraflamarkinu. Enginn mátti bjóða meira en 50% af heildaraflamarkinu og lágmarksverð var sett. Uppboðin hafa gengið misjafnlega. Ókostur þeirra er m.a. talinn sá að sýnt þykir að bjóðendur hafi að einhverju leyti haft með sér ólögmætt samráð og að skortur hafi því verið á samkeppni. Þá hafa tekjur af uppboðunum verið því minni en gert var ráð fyrir. Sú staðreynd að uppboð þessi eru enn til staðar bendir þó til þess að afkoma fyrirtækjanna sé a.m.k. viðunandi. Gjaldtaka frá 2004 Á íslandi hefur verið sérstök gjaldtaka af fiskveiðum í formi veiðigjalda frá 2004. ísland hefur skapað sér ákveðna sérstöðu hvað varðar sérstaka gjaldtöku af fiskveiðum miðað við helstu samkeppnislönd. Veiðig- jald er á allar tegundir við ísland. í Færeyjum er lagt veiðigjald á þrjár tegundir og engin sérstök gjaldtaka er á fiskveiðar í Noregi. Noregur er helsta samkeppnisþjóð íslands í bæði uppsjávarafurðum og botnfiskafurðum. Við veiðar á heimamiðum í Færeyjum er veruleg þörf á að nútímavæða og endurnýja skipaflotann. Árið 2014 reiknaði hag- fræðistofnun í Færeyjum út auðlindarentu í fiskveiðum. Aðeins var tekið mið af veiðum við útreikninga á auðlindarentu, þar sem virðisauki í vinnslu tilheyrir ekki auðlindanýtingu. Niðurstaðan var að 80% af auðlindarentunni skapaðist við uppsjávar- veiðar og 20% við veiðar á bolfiski í Barents- hafi. Engin auðlindarenta skapaðist við veiðar á bolfiski á heimamiðum í Færeyjum. Færeyingar eiga sér styttri sögu þegar kemur að gjaldtöku. Árið 2011 var í fyrsta skipti lagt sérstakt gjald á afla sem landaður var erlendis og árið 2013 var lagt gjald á makríl. Á síld var lagt gjald árið 2014 og árið 2016 var lagt gjald á kolmunna. Veiðigjöld eru því greidd af þremur tegundum í Færeyjum. Á íslandi eru veiðigjöld lögð á nýtingu á öllum nytjastofnum. Gjaldtöku- kerfið sem þróast hefur hér á landi er því miklu víðtækara en það færeyska. Færeyingar greiða hins vegar hærri veiðigjöld af þeim þremur uppsjávartegundum sem þeir leggja gjöldin á. Hér er þó rétt að hafa í huga, líkt og áður var vikið að, að samkvæmt kjara- samningum sjómanna og útgerðafyrirtækja í Færeyjum greiða sjómenn hluta af veiði- gjöldum. Hér á landi taka sjómenn ekki þátt í greiðslu veiðigjalda. 58 ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2016

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.