Þjóðmál - 01.12.2016, Blaðsíða 64

Þjóðmál - 01.12.2016, Blaðsíða 64
Norðmönnum. Rökin voru þau að sjávar- afurðirværu mikilvæg útflutningsvara fyrir Noreg og að sjávarútvegur hefði afgerandi þýðingu fyrir búsetu og atvinnustarfsemi í strandhéruðum. Kröfum Norðmanna var alfarið hafnað þar eð þær samrýmdust ekki regluverki Evrópusambandsins. Evrópusambandið bauð Norðmönnum einungis tímabundna undanþágu hvað varðar stjórn sjávarútvegsmála þeirra. Þeir gætu áfram farið með umrædda stjórn til 30. júní 1998. Þá hyrfi valdið í þeim efnum til Evrópusambandsins að fullu í samræmi við regluverk þess. Rétt er að hafa í huga að krafa Norðmanna gekk þó ekki út á undanþágu frá yfirstjórn sambandsins í sjávarútvegsmálum heldur að gert væri ráð fyrir áframhaldandi stjórn þeirra innan reglu- verks þess. Krafan gekk þannig miklum mun skemur en rætt hefur verið um hér á landi að ná þyrfti fram. Samt var svarið nei. Stjórnvöld í Noregi fóru fram á ýmislegt fleira sem einnig var hafnað af Evrópusam- bandinu. Þar með talið að þeir héldu fullu forræði í samningum við önnur ríki um deilistofna og að regla sambandsins um hlutfallslegan stöðugleika yrði fest í sessi í inngöngusamningi þeirra. Reglan, sem snýst um að aflaheimildum sé úthlutað í Ijósi veiðireynslu, er hins vegar einungis vinnu- regla ráðherraráðs Evrópusambandsins, á sér enga stoð í sáttmálum þess og er aðeins hugsuð sem bráðabirgða fyrirkomulag. Þá væri hægt að afnema regluna án einróma samþykkis ríkja sambandsins. Hefur alltaf legið fyrir hvað er í pakkanum Talsmenn inngöngu íslands í Evrópu- sambandið hafa haldið því fram að reglan um hlutfallslegan gæti tryggt hagsmuni landsins ef af inngöngu þess í sambandið yrði. Hins vegar er Ijóst, eins og farið yfir hér á undan, að engin trygging er fólgin í reglunni. Það sem skiptir þó mestu máli í því sambandi erað reglan um hlutfallslegan stöðugleika breytir engu um að yfirstjórn sjávarút- vegsmála er í höndum Evrópusambandsins. Hitt er annað mál að takmarkað gagn væri vitanlega að því jafnvel þó í boði væri að halda yfirráðum yfir sjávarútveginum þegar valdið yfir nær öllu öðru væri framselt. Líklega segir sú staðreynd meira en margt annað að ríkisstjórn vinstriflokkanna hafði það ekki að markmiði að sækjast eftir undanþágum frá yfirstjórn Evrópu- sambandsins heldur einungis sérlausnum. Enda slíkar undanþágur ekki í boði eins og sambandið hefur ítrekað lagt áherzlu á. Talað hefur verið um að kanna þyrfti hvað sé í pakkanum eins og það hefur verið orðað. Hins vegar hefur alltaf legið fyrir hvað það er. Slík umræða er enda séríslenzkt fyrirbæri. Raunveruleikinn er einfaldlega sá að þegar gengið er í Evrópusambandið er einfaldlega Evrópusambandið í boði. HjörturJ. Guðmundsson er sagnfræðingur og MA í alþjóðasamskiptum. 62 ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2016
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.