Þjóðmál - 01.12.2016, Side 67

Þjóðmál - 01.12.2016, Side 67
Ríkissjóður var notaður sem milliliður við uppgjör Leiðréttingarinnar í stað þess að setja upp sérstakan millifærslusjóð. Það var gert til einföldunar og reyndist mjög vel. Skuldastaða íslenskra heimila gjörbreyst Með þessu móti var þeim stóra hópi lands- manna sem höfðu verðtryggð húsnæðislán bætt það tjón sem fjármálaáfallið olli þeim, en áður höfðu verið lagðar fram sértækar lausnir fyrir aðra hópa eða þeir hlotið leiðrétt- ingu í gegn um dómskerfið, sbr. t.d. þá sem tekið höfðu húsnæðislán í erlendum gjald- eyri. Þessi þáttur í aðgerðinni var gríðarlega mikilvægur liður í því að rétta af efnahags- reikning íslenskra heimila. í lok ágúst var búið að færa niður skuldir heimila um 98,4 milljarða króna vegna skuldaaðgerða ríkisins, þar af eru 28,7 milljarðar króna á árinu 2016. Niðurfærsla vegna séreignarsparnaðar er nú um 1,2 milljarðar króna á mánuði og því má búast við að húsnæðislán verði færð niður um 18 milljarða til viðbótar fram til ársloka 2017 er séreignarsparnaðarleiðinni lýkur að því er kom fram í stöðugleikaskýrslu Seðla- banka íslands í október 2016. í lok annars ársfjórðungs 2016 voru skuldir heimila 156%afáætluðum ráðstöfunar- tekjum. Hlutfall skulda af ráðstöfunartekjum hefur lækkað mjög hratt síðustu misseri vegna lækkunar skulda og mikillar hækkunar ráðstöfunartekna. Frá árinu 2010 hefur hlutfallið lækkað um 94%. Ef aðeins er horft til einstaklinga sem eru með íbúðaskuldir eru heildarskuldir þeirra í hlutfalli við ráðstöfunartekjur 271 % og lækkar hlutfallið um 25% á milli ára. Skuldir heimila á fslandi sem hlutfall af ráðstöfunartekjum eru nú næstlægstar á Norðurlöndunum, en þær voru um áratugaskeið næsthæstar hér á landi, á eftir Danmörku. Nú er aðeins Finn- land með lægra hlutfall eða 126%. Hlutfall framteljenda sem skulda meira en þrefaldar ráðstöfunartekjur var um síðustu áramót 22,5% og lækkaði um 2,8% milli ára. Hlutfallið hefur ekki lækkað jafn mikið á einu ári síðastliðna tvo áratugi. Ef einstaklingar Evrópskur samanburður á skuldum heimila 1998 - 2. ársfj. 2016 — Danmörk — Noregur — Holland Svíþjóð Heimildir: Eurostat, Hagstofa Islands, Seðlabanki Islands. með íbúðaskuldir eru aðgreindir sérstaklega er bati á milli ára enn meiri. í árslok 2015 skulduðu 37% einstaklinga með íbúðaskuldir meira en þrefaldar ráðstöfunartekjur og lækkaði hlutfallið um 4,5% á milli ára. Mestur bati hefur orðið hjá einstaklingum í tveimur tekjuhæstu hópunum og á það bæði við þegar allir einstaklingar eru skoðaðir og einnig ef sérstaklega er horft til einstaklinga með íbúðaskuldir. Hrein eign heimila er áætluð 247% af landsframleiðslu í lok júní 2016. og hækkar um 4% á fyrri hluta árs 2016 og um 14% sé miðað við árslok 2014. Fjárframlög sópast inn Nú í nóvember birtist frétt um að verslunar- risinn Hagar hefði keypt lyfsölukeðjuna Lyfju fyrirtæpa 7 milljarða króna. Fréttin lét lítið yfir sér en fól þó í sér að ríkissjóður hagnaðist um fimm milljarða aukalega. Lyfja var eitt þeirra fyrirtækja sem lentu í eigu ríkisins samkvæmt flársópsákvæðum stöðugleika- skilyrðanna. Þegar á allt er litið má því segja að ríkissjóður hafi orðið sjö milljörðum ríkari vegna Lyfju. Leiða má líkur að því að fjársópsákvæði stöðugleikaskilyrðanna færi nú ríkissjóði milljarða í hverjum mánuði. Það fé sem ríkið hlýtur á þennan hátt vegna fjársópsákvæða stöðugleikaskilyrðanna hefði ekki komið til ef leið stöðugleikaskatts hefði verið farin. ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2016 65

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.