Þjóðmál - 01.12.2016, Page 69

Þjóðmál - 01.12.2016, Page 69
upphæð kemur aukalega inn í ríkissjóð. Það er ekki gert ráð fyrir henni í fjárlögum eða neinu slíku og hún er á pari við árleg útgjöld ríkisins. Hversu oft í sögu lands gerist slíkt?" Undir þetta tók Jón Daníelsson, prófessor í hagfræði við LSE, í samtali við Morgunblaðið: „Mér virðist við fyrstu sýn sem að þetta sé mjög gott plan. Það virðist vera vel undirbúið og vel hugsað. Menn virðast hafa séð fyrir mörg þau vandamál sem gætu komið upp og hafa hannað kerfið þannig að það lágmarki líkurnar á að eitthvað fari úrskeiðis. Þeir sem komu að þessu geta verið mjög stoltiraf sinni vinnu." Einstök aðgerð - einstök áhrif Orð Lee C. Buchheit sýna glögglega hve einstakar aðgerðir voru hér á ferðinni. Ekki bara í íslensku samhengi heldur ekki síður í alþjóðlegu samhengi. Uppgjörið við slita- búin, sem var gert undir formerkjum stöðug- leika, hefur gerbreytt erlendri skuldastöðu þjóðarbúsins og mun einnig hafa gríðarleg áhrif á fjárhag ríkisins. Lee C. Buchheit sagði að aðgerðirnar myndu skapa spíral upp á við fyrir íslenskt hagkerfi: „Hann mun myndast vegna þess að íslenska ríkið mun greiða um þriðjung skulda sinna, sem mun spara ykkur nokkra tugi milljarða króna í vaxtagreiðslur. Það mun þýða að lánshæfismatsfyrirtækin munu hækka lánshæfi ríkisins, og í kjölfarið íslenskra fyrirtækja, sem mun draga úr lánakostnaði. Svo mun lyfting hafta gera það að verkum að fjárfesting á fslandi gæti aukist. Þetta vandamál, lausn á losun hafta, var síðasta stóra vandamálið sem hefti efnahagslegan bata íslands." Lee C. Buchheit sagði einnig í áðurnefndu viðtali að ísland hafa upplifað fordæmalausa tíma frá efnahagshruni og allar stóru ákvarðanirnar sem teknar hafa verið á síðustu tæpu sjö árum hafi reynst réttar. „Þetta hefur verið áreynslumikill tími fyrir ísland. En ég spái því að eftir tíu ár muni Lee C. Buchheit benti á að aðgerðir rikisstjórnarinnar skapi spíral upp á við fyrir islenskt hagkerfi:„Hann mun myndast vegna þess að íslenska rikið mun greiða um þriðjung skulda sinna, sem mun spara ykkur nokkra tugi milljarða króna i vaxtagreiðslur. Það mun þýða að lánshæfismats- fyrirtækin munu hækka lánshæf rikisins, og í kjölfarið íslenskra fyrirtækja, sem mun draga úrlánakostnaði. viðskiptadeild Harvard háskóla vera að vinna með dæmi (e. case-study) sem heiti „ísland frá 2008 til 2015". Ég man ekki eftir neinu landi sem varð fyrir eins miklum og víðtækum áhrifum vegna efnahagsáfallsins en hefur jafnað sig á jafn ótrúlegan hátt á svona skömmum tíma. Ég er ekki að gera lítið úr þeim sársauka sem þetta ferli hefur valdið mörgum á íslandi en endur- reisnin hefur verið hraðari en flestir töldu mögulegt." Endurreisn íslensks efnahagslíf má að talsverðu leyti þakka farsællu afnámi fjármagnshafta og þeim aðgerðum sem gripið var til af hálfu íslenskra stjórnvalda. Umfang aðgerðanna og ábati ríkissjóðs liggur ekki að fullu fyrir fyrr en endurskipu- lagningu Ijármálakerfisins er lokið. Sigurður Már Jónsson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar. ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2016 67

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.