Þjóðmál - 01.12.2016, Qupperneq 71
Grænlendinga. Hún segir stefnu Grænlend-
inga í átt að fullu sjálfstæði„afar áþekka
reynslu íslendinga (einkum viðleitni þeirra
að varðveita eigin menningu og vernda
eigin auðlindir, þótt það kosti einangrun
frá öðrum þjóðum, og um leið að takmarka
efnahagsleg samskipti við Evrópu)". Þetta er
þó hæpið. í fyrsta lagi eiga íslendingar sér
dýpri rætur og sterkari sjálfsvitund en Græn-
lendingar að þeim þó ólöstuðum. ísland
byggðist árin 874-930, og Þjóðveldið stóð
í röskar þrjár aldir, allt til 1262, miklu lengur
en ýmsar stjórnunareiningar Norðurálfunnar
á sama tímabili. ísland var hjálenda Noregs-
konungs og síðar Danakonungs allt til 1904,
þegar þjóðin fékk heimastjórn, og hún fékk
fullveldi, myndaði ríki, árið 1918. Ein rök-
semd Jóns Sigurðssonar og annarra leiðtoga
sjálfstæðisbaráttunnar, þar á meðal Hannesar
Hafsteins og Jóns Þorlákssonar, var, að Islend-
ingar hefðu frá upphafi verið sérstök þjóð
með eigin tungu, menningu og sögu.5
Saga Grænlendinga eröll önnur. Þar voru
fámennar byggðir landnema frá íslandi, sem
játuðust undir yfirráð Noregskonungs á sama
tíma og íslendingar, en liðu undir lok á 15.
öld, ef til vill vegna einangrunar, kólnunar
jarðar og árekstra við Inúíta, sem höfðu
komið frá Norður-Ameríku á 13. öld. Þegar
Danir komu til Grænlands árið 1721, hittu
þeir aðeins fyrir fámennar og strjálar byggðir
Inúíta á hinu víðáttumikla eylandi. Árið 1979
fengu Grænlendingar heimastjórn og árið
2009 fullveldi.
Sibert minnist í öðru lagi ekki á eina
meginástæðuna til þess, að Grænlendingar
gengu úr Evrópusambandinu árið 1985,
strax og þeir áttu þess kost að fengnu
fullveldi, og að íslendingar hafa ekki gengið
í það frekar en Norðmenn. Hún er ekki, að
þessar þjóðir vilji einangra sig frá Evrópu (og
raunar er Grænland ekki í Evrópu og ísland á
mörkum Norður-Ameríku og Evrópu), heldur
sameiginleg fiskveiðistefna Evrópusam-
bandsins, CFP, Common Fisheries Policy, sem
felur í sér, að Evrópuþjóðir skuli samnýta öll
sín fiskimið undir stjórn Evrópusambandsins.
Grænlendingarog íslendingar eiga hvorir
tveggja auðug fiskimið, sem þeir vilja ekki
láta af hendi við Evrópusambandið, og
íslendingar hafa komið sér upp skilvirku kerfi
til að nýta mið sín, kerfi ótímabundinna og
framseljanlegra aflakvóta.6
í þriðja lagi eru landamæri Grænlands
og íslands náttúrleg frekaren söguleg eða
sjálfvalin. íbúarnir búa á eyjum, langt frá
öðrum þjóðum. Jafnvel þótt Sibert hefði rétt
fyrir sér um, að Grænlendingar væru of fáir
til að geta myndað ríki, sem er óvíst, eru þeir
sérstök þjóð með eigin tungu og menningu
og búa í landi, sem náttúran hefur afmarkað.
Spurningin er því ekki, hvort Grænland sé
hagkvæm stjórnunareining, heldur hvort
þessi eining, sem er þegartil og engu verður
breytt um, eigi frekar að lúta stjórn að innan
eða utan. Hverjir eru líklegastir til að stjórna
Grænlandi skynsamlega, Grænlendingar
sjálfir eða einhverjir aðrir, til dæmis Danir,
fslendingar eða Kanadamenn, svo að þrjár
grannþjóðir séu nefndar? Að minnsta kosti
er Ijóst, að Grænlendingar eru kunnugri eigin
högum en skrifstofufólk í Kaupmannahöfn,
Reykjavík og Ottawa. Yrði Grænland sjálf-
stætt ríki, þá kynni það að geta leyst vandann
af fámenninu með því að kaupa af öðrum
ríkjum margvíslega þjónustu, til dæmis í
utanríkis- og öryggismálum, eins og það
gerir nú þegar, og hugsanlega líka í mennta-
og heilbrigðismálum.
Smæð, velmegun og hagvöxtur
Prófessor Sibert nálgast málið sem hag-
fræðingur. Hún kveður gögn vanta um, hvort
smáríki geti framleitt þau samgæði, sem
stuðli að hagvexti. Þótt rannsóknir hag-
fræðinga sýni vissulega, að velmegun sé að
meðaltali meiri í smáríkjum en stærri ríkjum,
staðfesti þau ekki afdráttarlaus tengsl milli
smæðar og hagvaxtar.7 En sú niðurstaða,
að smáríki séu að meðaltali ríkari en stærri
ríki, er auðvitað mjög mikilvæg, þótt Sibert
geri furðulítið úr henni. Af tíu ríkustu ríkjum
heims, þegar miðað er við verga lands-
framleiðslu á mann, eru aðeins Ijögur með
meira en eina milljón íbúa: Bandaríkin, Sviss,
Noregur og Singapúr. Af fimm Ijölmennustu
ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2016 69