Þjóðmál - 01.12.2016, Síða 76

Þjóðmál - 01.12.2016, Síða 76
líka sú, hvort óhagkvæmnin sé ekki frekar, vegna þess að gæði séu ómarkaðssett en vegna fámennis þjóðanna, sem þau fram- leiða. Og er þá ekki rétta ráðið að reyna að bjóða upp á þau á markaði, sem kann þá að teygja sig yfir mörg lönd? Nefna má að auki, að tækniframfarir hafa í för með sér, að sum gæði, sem áður voru ómarkaðssett, til dæmis símaþjónusta, ganga nú kaupum og sölum á markaði. Hitt er annað mál, að vitaskuld hefur Sibert rétt fyrir sér um það, að í litlu hag- kerfi er ekki von á eins mikilli samkeppni og sérhæfingu og í stóru, þótt sá vandi leysist að miklu leyti með frjálsum alþjóðaviðskiptum. Smæð getur verið kostnaðarsöm. Smæð, náttúruhamfarir og samtrygging Prófessor Sibert varpar því fram, að smæð ríkja snúist ekki aðeins um fámenni, heldur líka landrými.„Mörg lönd eru viðkvæm fyrir náttúruhamförum og umhverfisspjöllum, en samtrygging fyrir slíkum áföllum er auðveldari í stórum löndum.Vinni hvirfilbylur tjón íbandarískri borg, geta íbúarnir flust annað. Ef hnattræn hlýnun hækkar yfirborð sjávar, eru afleiðingarnar fyrir íbúa Tuvalu líklegar til að verða verri." Þessi röksemd er gild, en þó einkennilegt að beita henni í umræðum um sjálfstæði Grænlands eða Islands, því að bæði löndin eru stór, þótt strjálbýl séu. ísland er til dæmis 17. stærsta land Evrópu af 50 löndum alls. Grænland er stærsta eyja heims. Fáirvita beturen íslendingar, hversu viðkvæmt land kann að vera fyrir náttúru- hamförum. Frá upphafi íslandsbyggðar hafa dunið á þeim eldgos, jarðskjálftar, snjóskriður, jökulhlaup og kuldaskeið. En vandinn er ekki, hversu fámenn þjóðin er, heldur hversu harðbýlt landið er. fslendingar eru hins vegar misjöfnu vanir og rétta fljótt úr kútnum.Jsland fær tíðum hallæri, en ekkert land í Norðurálfunni er svo fljótt að fjölga á ný manneskjum og bústofni sem það, og er því eigi óbyggjandi," skrifaði Hannes Finns- son biskup í vörn sinni fyrir ísland skömmu eftir móðuharðindi.22 Sú skoðun Siberts er líka hæpin, að samtrygging sé auðveldari með fjölmennum þjóðum en fámennum. Frá sjónarmiði trygg- ingastærðfræðinnar séð kann það að vera rétt: Áhættan virðist þá dreifast á fleiri. En gerir hún það í raun og veru? Þegar áfall dynur yfir íbúa í einum hluta ríkisins, er það háð stjórnarfari og menningu, hversu fúsir íbúar í öðrum hlutum ríkisins eru til að rétta hjálparhönd. í risaríkjum eins og Rússlandi, Kína og Indlandi skeytir valdastétt höfuð- borgarinnar ef til vill lítt um fórnarlömb slysa eða hamfara í fjarlægum kimum. Fjölmennar þjóðir eru einnig líklegri til að vera sundurleitar en fámennar. Oft búa þar saman margar þjóðir með ólíka sögu og takmarkaða samúð hver með annarri. Samhugur er þar þess vegna ef til vill ekki eins sterkur. Þótt Rússum kunni að standa á sama um Jakúta og Kínverjum um Tíbeta, láta Reykvíkingar sig varða um Vestmannaeyinga og Flateyringa. Ekki má heldur gleyma því, að samtrygging getur farið fram í tíma alveg eins og rúmi. Menn geta lagt til hliðar fyrir óvæntum áföllum. Á Islandi er til dæmis ekki teljandi ágreiningur um að bæta úr almannasjóðum fórnarlömbum eldgosa og jarðskjálfta tjón sitt, eins og auðið er, og safna fé í viðlagasjóði. Smæð og sérþekking Prófessor Sibert telur upp einn kostnað af smæðinni.„í fyrsta lagi er erfitt fyrir smáríki að finna nógu marga hæfa embættismenn, og í öðru lagi þarf hver embættismaður að sinna fleiri verkefnum en í fjölmennari ríkjum." Hún tekur íslenskt dæmi: f október 2005 var Davíð Oddsson skipaður formaður bankastjórnar Seðlabankans. Hinn fjölhæfi Davíð hafði numið lög, verið leikhússtjóri, gert gamanþætti fyrir útvarp, verið stjórnmálaskýrandi og meðhöfundur nokkurra leikrita. Hann hafði áðurverið borgarstjóri í Reykjavík, lengi forsætis- ráðherra og um stutt skeið utanríkisráð- herra. Því miður virðist hann ekki hafa haft neina sérþekkingu á efnahagsmálum og bankamálum, og honum tókst því hvorki 74 ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2016
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.