Þjóðmál - 01.12.2016, Qupperneq 78

Þjóðmál - 01.12.2016, Qupperneq 78
ræðisríkjum endast menn sjaldnast lengi í trúnaðarstörfum, nema þeir hafi til að bera ábyrgðarkennd og lagni, dómgreind og glöggskyggni. í fjórða lagi verða menn ekki óskeikulir með þvíað Ijúka hagfræðiprófi.Tveir virtustu seðlabankamenn Vesturlanda á öndverðri 21. öld, þeir Alan Greenspan og Mervyn King, sáu hvorugurfyrir hina alþjóðlegu fjármálakreppu áranna 2007-2009. Þótt sumir hagfræðingar (þar á meðal Sibert sjálf) hefðu varað við útþenslu íslensku bankanna og bent á, að Seðlabankinn hefði einn sér ekki bolmagn til að veita þrautavaralán, ef að kreppti, sá enginn þeirra fyrir, að banda- ríski seðlabankinn myndi neita hinum íslenska um gjaldeyrisskiptasamninga, að breska Verkamannaflokksstjórnin myndi loka breskum bönkum í eigu íslendinga, um leið og hún veitti öllum öðrum breskum bönkum fyrirgreiðslu, lausafé jafnt og endur- fjármögnun, og að þessi stjórn myndi beita hryðjuverkalögum á íslenskar stofnanir og fyrirtæki.24 Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, sem var utanríkisráðherra 2007-2009 og for- maður Samfylkingarinnar, sagði í vitnisburði fyrir Rannsóknarnefnd Alþingis á banka- hruninu, að hún hefði verið í góðu sambandi við tvo hagfræðinga, þá Þorvald Gylfason og Robert Wade, en hvorugur þeirra hefði varað hana við yfirvofandi bankahruni.25 Þorvaldur birti raunar í sama tímariti og Sibert grein þremur mánuðum fyrir bankahrunið, þar sem hann gagnrýndi Seðlabankann fyrir að auka ekki gjaldeyrisforða sinn, en kvað þrátt fyrir það horfurá íslandi góðar.26 Adgerdaleysi andspænis yfirvofandi áfalli? Prófessor Sibert talar um„aðgerðaleysi" Davíðs Oddssonar andspænis útþenslu íslensku bankanna. Hún virðist ekki vita, að Davíð var líklega eini íslenski valdamaðurinn, sem var að ráði gagnrýninn á bankana fyrir hrun þeirra. Ekki hafði farið fram hjá neinum, þegar hann var forsætisráðherra og tók föstudaginn 21. nóvember 2003 út innstæðu sína í Búnaðarbankanum í mótmælaskyni við rausnarlega kaupauka bankastjóranna. Vitnaði Davíð við það tækifæri í Passíusálma Hallgríms Péturssonar: Undirrót allra lasta ágirndin kölluð er. Frómleika frá sér kasta fjárplógsmenn ágjarner, sem freklega elska féð. Auði með okri safna, andlegri blessun hafna, en setja sál í veð.27 Við þá ókyrrð, sem varð af tiltæki Davíðs, sáu bankastjórarnir sitt óvænna og afsöluðu sér kaupaukunum.28 Einnig er á það að benda, eins og Sibert gat hæglega aflað sér upplýsinga um, að íslensku bankarnir höfðu aðallega vaxið árin 2004 og 2005, en Davíð Oddsson settist í Seðlabank- ann haustið 2005. Ytri vöxtur þeirra (sem er skilgreindur sem yfirtökur og kaup á öðrum fyrirtækjum) var 57,5% árið 2004 og 24,7% árið 2005, en óverulegur eftir það. Innri raun- vöxtur þeirra (sem er skilgreindur sem aukn- ing viðskipta og fjölgun viðskiptavina) var 43,5% árið 2004 og 59,5% árið 2005, en fór niður í 27,2% árið 2006 og 28,8% árið 2007.29 Því má segja, að útþensla bankanna hafi verið að mestu leyti um garð gengin, þegar Davíð settist í Seðlabankann. Hér skiptir líka máli, að Seðlabankinn hafði engar heimildir til að krefjast upplýsinga um rekstur bank- anna og ekkert boðvald yfir þeim, heldur Fjármálaeftirlitið. Seðlabankinn varð því að láta sér nægja að veita ráð og vara við. Það gerði hann svo sannarlega, á meðan Davíð Oddsson var formaður bankastjórnar, þótt auðvitað yrði að tala gætilega á opinberum vettvangi. Dæmin eru mörg. Föstudaginn 9. febrúar 2007 sagði Davíð á samráðsfundi Seðla- banka og Fjármálaeftirlits„spurningu nú þegar lausafjárstaða og eiginfjárstaða væri rúm hvort menn standist freistingar að fara í sókn aftur. Hann sagði að ef vandamál koma upp getur lausafé þornað upp á einum degi."30 Árið 2008 reri Seðlabankinn lífróður til að bæta úr lausafjárskorti íslenska banka- 76 ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2016
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.