Þjóðmál - 01.12.2016, Síða 79

Þjóðmál - 01.12.2016, Síða 79
kerfisins í erlendum gjaldmiðlum. En enginn vildi rétta hjálparhönd eða létta undir með honum. Vandinn var, að bankarnir áttu nóg af krónum, en lítið af öðrum gjaldmiðlum, og Seðlabankinn gat aðeins prentað krónur, hvorki dal né pund né evru. Evrópski seðla- bankinn og Englandsbanki neituðu báðir að gera gjaldeyrisskiptasamninga við seðlabankann, og norrænu seðlabankarnir voru tregir til.„Það var aðeins fyrir harðfylgi formanns bankastjórnar Seðlabankans, að samningar tókust á endanum, og má segja, að norrænu seðlabankastjórarnir hafi verið teymdir að undirskriftaborðinu," sagði Ingi- mundur Friðriksson.31 Jafnframt varaði Davíð Oddsson aðra íslenska ráðamenn við.32 Sunnudaginn 13. janúar 2008 hitti hann Geir H. Haarde forsætisráðherra og Árna M. Mathiesen fjármálaráðherra og kvaðst hafa þungar áhyggjuraf lífslíkum íslensku bankanna næstu tólf mánuði.33 Fimmtudaginn 7. febrúar 2008 var haldinn miklu fjölmennari fundur, þar sem seðlabankastjórarnir þrír hittu forsætisráðherra, fjármálaráðherra og utanríkisráðherra ásamttveimur embættismönnum. Þar dró Davíð upp mjög dökka mynd af horfum. Honum„lá ekkert sérstaklega gott orð til bankanna eða bankastjóranna", sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra í vitnisburði fyrir Rannsóknarnefnd Alþingis. Hann fór„dálítið mikinn í sinni frásögn", sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra. Þegar Davíð gekk út af fundinum, mælti hann við félaga sína í Seðlabankanum:„Ef þetta hreyfir ekki við þessu fólki, þá er ekkert, sem gerir það." Skömmu síðar hafði Davíð samband við forsætisráðherra. Þá sagði Geir H. Haarde, að hann hefði haft samband við ráðamenn bankanna, sem hefðu sagt sér, að allt væri í lagi.34 Hvort sem aðrir ráðamenn tóku mark á viðvörunum Davíðs Oddssonar eða ekki, voru þeir á öndverðu ári 2008 komnir í valþröng. Enginn kostur var góður. Ef þankarnir seldu ekki eignir, þá tefldu þeir í tvísýnu. Ef þankarnir seldu eignir, þá myndi við þessar aðstæður fást fyrir þær minna en í betra árferði og það myndi um leið lækka verð þeirra eigna, sem eftir stæðu, svo að með því tefldu þeir líka í tvísýnu. Þar eð Seðlabankinn hafði ekkert boðvald yfir bönkunum, gat hann ekki skipað þeim fyrir, en hann lagði þó til í kyrrþey, að lcesave-reikningar Lands- bankans færu úr útbúi í dótturfélag, að Kaupþing flytti bækistöðvar sínar til annars lands og að Glitnir seldi öflugan norskan banka, sem hann hafði keypt.35 Hefði banka- kerfið við þetta stórminnkað og vandinn ef til vill orðið viðráðanlegur. Jafnframt hélt Davíð áfram að vara við útþenslu þankanna. Fimmtudaginn 6. mars 2008 hitti hann Geir H. Haarde og afhenti honum skýrslu, sem Seðla- bankinn hafði fengið erlendan sérfræðing, Andrew Gracie, til að gera um hugsanlegt fall bankanna í október 2008 og viðbrögð við því. Geir H. Haarde forsætisráðherra þótti nóg um hin sterku orð, sem Davíð lét þá falla um íslenska þankamenn, sérstaklega ráðamenn Kaupþings.36 Davíð endurtók varnaðarorð sín á fundum með forsætisráðherra og öðrum ráðherrum þriðjudaginn 18. mars, sunnudag- inn 30. mars, þriðjudaginn 1. apríl og miðviku- daginn 7. maí.37 Vidvaranir opinberlega Vissulega var ekki við því að búast árið 2009, þegar prófessor Siþert hneykslaðist á „aðgerðaleysi andspænis yfirvofandi áfalli", að hún vissi um síendurteknar viðvaranir Davíðs Oddssonar og aðgerðir, sem Seðla- bankinn hafði undirbúið í kyrrþey. Það hefði boðið hættunni heim að gera uppskátt um allt þetta. Þetta hefði Sibert raunar átt að vita sjálf, svo að hún hefði átt að bíða eftir því, að þessi atriði kæmu í Ijós, áður en hún felldi dóm sinn um„aðgerðaleysi" Seðlabankans, sem hún hafði síðan til marks um það, að smáríki hefðu iðulega ekki nógu mörgum hæfum embættismönnum á að skipa. Og Sibert (eða íslenskir heimildarmenn hennar) hefðu að minnsta kosti átt að vita af því, sem Davíð sagði opinberlega. Þar er af nógu að taka. Föstudaginn 30. mars 2007 sagði hann á ársfundi Seðlabankans: ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2016 77
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.