Þjóðmál - 01.12.2016, Síða 96
NÝJAR BÆKUR
Vald án eftirlits
Ný bók um gjaldeyriseftirlit
Seðlabankans eftir Björn Jón
Bragason. Hér er sagt frá eftir-
lausum eftirlitsmönnum, aðför
að fyrirtækjum og einstaklingum.
Almenna bókafélagið gefur út.
í kjölfar hinnar alþjóðlegu lánsljárkreppu
sem reið yfir heiminn árin 2007-2009 urðu
þær raddir háværar að herða þyrfti reglur um
fjármálastofnanir og auka með þeim eftirlit.
Þar sem svo virtist um skeið að ísland hefði
orðið miklu verr úti en flest önnur lönd, voru
þessar raddir mjög háværar hér á landi. En
þá vaknar gamla spurningin sem Rómverjar
hinir fornu veltu fyrir sér: Hver á að hafa
eftirlit með eftirlitsmönnunum? Quiscusto-
dietipsos custodes? f kringumstæðum líkt
og þeim sem ríktu á íslandi strax eftir hrun
er hætt við að annarlegar og óraunhæfar
hugmyndir vakni meðal þeirra sem fá aukið
vald og vægi í hlutverki eftirlitsaðila sem
leitt getur til þess að þeir telji sig óbundna
af viðteknum reglum um stjórnsýslu og mörk
valdbeitingar. Með auknu eftirliti er skapað
vald, og um það eiga enn við orðin að allt
vald hefurtilhneigingu til að spilla: Menn
með víðtækt vald forðast til dæmis í lengstu
lög að viðurkenna þegar þeir hafa gert mis-
tök, og þeim er oft sama þótt aðrir verði fyrir
barðinu á valdi þeirra enda helgi tilgangurinn
meðalið.
Misbeiting valds á ekki aðeins að vera
áhyggjuefni þeirra sem eru tímabundið
óvinsælir, eins og íslenskir Ijármálamenn eftir
hrun. Hún á að vera áhyggjuefni alls almenn-
ings því að enginn veit hvenær spjótin geta
beinst að þeim. Venjulegir borgarar með
takmörkuð fjárráð eða stjórnendur fyrirtækja
sem standa höllum fæti myndu eiga enn
erfiðara með að verjast valdníðslu eða leita
réttar síns en þeir aðilar sem hér er sagt frá.
í þessu riti er rætt um Gjaldeyriseftirlit
Seðlabanka íslands, en það var sett á
laggirnar eftir bankahrunið til að bregðast við
nýjum og fordæmalausum aðstæðum. Þótt
gjaideyriseftirlit hafi áður verið til á íslandi
voru aðstæður nú aðrar og óánægjuraddir
og kröfur um ábyrgð háværari sem aldrei
fyrr. Ungu og metnaðarfullu fólki með
takmarkaða reynslu úr stjórnsýslu voru veitt
mikil völd í skjóli þagnarskyldu og gefinn
laus taumurinn. Hvött áfram af stemningunni
í þjóðfélaginu virðist sem valdbeitingin
hafi meira átt skylt við krossferðir en stjórn-
sýslulegt eftirlit og rannsókn.
f þeim þremur málum sem gert er skil í
þessari bók, um Aserta, Ursus og Samherja,
verður reynt að varpa Ijósi inn fyrir háa múra
þagnarskyldu á beitingu valds, eftirlits og að-
halds. Allt bendir til þess að valdi hafi verið
94 ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2016