Þjóðmál - 01.12.2016, Page 97
misbeitt og það án nokkurs teljandi aðhalds
frá öðrum aðilum, dómurum, lögregluyfir-
völdum eða fjölmiðlum. Eftirlitsmennirnir
virtust vera eftirlitslausir. Margt er af því sem
misgert hefur verið við fólk verður ekki aftur
tekið og tjón þess aldrei bætt að fullu. En
gagnsæi og gagnrýni í lýðræðisþjóðfélagi
eru ef til vill eina eftirlitið sem þá dugir, og
þessi litla bók er hugsuð sem framlag til slíks
eftirlits.
Bókarkafli
Helgi Seljan kemur eins og kallaður
Seðlabankann vantaði sárlega leið inn í Samherja, einhver gögn sem stutt
gætu kæru til lögreglu og frekari rannsóknir á gjaldeyrismálum félagsins
Helgi Seljan, fréttamaður Kastljóss
Ríkissjónvarpsins, var staddur á þorrablóti
austur á fjörðum snemma árs 2012. Helgi er
fæddur og uppalinn þar eystra og hafði verið
þar til sjós. í þorrablótinu sagði fyrrverandi
sjómaður Síldarvinnslunnar á Neskaupstað
honum frá vangaveltum sínum um að Sam-
herji seldi karfa til dótturfélaga sinna erlendis
á undirverði. Sagði hann tilgang félagsins
með þessu vera að halda niðri launum
sjómanna á fiskiskipum sem veiddu karfann
en laun þeirra voru reiknuð eftir hlutdeild í
aflaverðmæti.1
Skömmu eftir þorrablótið hafði Helgi upp á
skýrslu frá fyrrverandi starfsmanni Samherja
sem starfaði á Verðlagsstofu skiptaverðs og
taldi hana sýna fram á óeðlilegt verð Samherja
í samanburði við verð annarra útflytjenda á
karfa. f fyrstu hélt Helgi að um skattalaga-
brot væri að ræða af hálfu félagsins og bar
upplýsingar sínar til skattrannsóknarstjóra.2
Lítið kom út úr fundi hans með starfs-
mönnum skattrannsóknarstjóra, en starfs-
menn hans bentu þó á gjaldeyrislöggjöfina
í þessu sambandi. Helgi hélt því á fund
starfsmanna Gjaldeyriseftirlits Seðlabankans
í febrúar 2012. Þar hitti hann Ingibjörgu
Guðbjartsdóttur, framkvæmdastjóra Gjald-
eyriseftirlitsins og tvo samstarfsmenn
hennar. Helgi lagði fyrir þau skýrsluna sem
hann hafði undir höndum og einnig önnur
1 Helgi Seljan, viðtal 2. nóvember 2016.
2 Ónefndur heimildarmaður, viðtal 13. janúar 2016.
gögn sem hann hafði aflað og taldi geta
stutt málið, en hann hafði einnig komist yfir
upþlýsingar um fiskverð í Færeyjum sem
sýndu að hans mati mikið misræmi á fiskverði
milli landanna. Fundurinn var mjög sérstakur.
Ingibjörg sat því sem næst þögul og hlustaði
á Helga. Starfsmenn Gjaldeyriseftirlitsins
virtust áhugalausir um það sem hann hafði
fram að færa. Helgi yfirgaf bankann án þess
að hafa vissu fyrir því hvort nokkuð yrði
aðhafst í málinu.3
Ingibjörg hafði aftur á móti hlustað vel og
gerði sér fljótt grein fyrir því að þarna væri
mögulega fær leið inn í Samherja. Hún taldi
að félagið fremdi ekki aðeins skilaskyldu-
brot með því að gefa út reikninga í gegnum
erlend félög, eins og Katla Seafood, heldur
einnig með því að hafa upphæðir reikning-
3 Sama heimild.
ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2016 95