Þjóðmál - 01.12.2016, Side 98

Þjóðmál - 01.12.2016, Side 98
Á meðan Pétur Steinn Pétursson, yfirmaður eftirlitshluta Gjaldeyris- eftirlitsins, teiknaði skipulag Samherja- samsteypunnará tússtöfluna hófu aðrir starfsmenn eftirlitsins að reikna útflutningsverð félagsins á karfa. Sýna átti fram á rökstuddan grun um að Samherji seldi karfa á undirverði til erlendra dótturfélaga sinna og kæra síðan það hátterni til lögreglunnar. anna of lágar eins og gögnin frá Helga þóttu sýna. Hún skipaði undirmönnum sínum að fara til Tollstjórans í Reykjavík og fá gögn um útflutning allra íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja, hefja útreikninga á meðalverði Samherja á karfa og öðrum fiskafurðum og bera niðurstöðurnar saman við aðra útflytjendur.4 Eftirfundinn með Helga Seljan varð Samherji brátt á allra vitorði innan Gjaldeyris- eftirlitsins, en farið var með málið sem mannsmorð utan þess. Kerfisbundið var reynt að safna upplýsingum um félagið og dótturfélög þess. í þeim tilgangi var meðal annars sett upp tússtafla þar sem hið flókna fyrirtækjanet Samherja var teiknað. „Við vorum öll spennt og sannfærð um að Samherji gætti þess vandlega að koma heim með eins lítinn gjaldeyri og hægt væri," segir fyrrverandi starfsmaður Seðlabankans og bætir við:„Við ræddum um það okkar í milli að hér væri um gríðarlega stórt mál að ræða sem væri þjóðþrifaverkað koma upp um."5 Starfsmenn Gjaldeyriseftirlitsins óttuðust mjög að eitthvað kynni að leka út um rannsóknina.Til að afstýra þvívartjaldaðfyrir tússtöfluna á kvöldin svo að óviðkomandi, svo sem ræstingarfólk, yrði einskis vart. Einnig varaðgangsstýring inn á skrifstofur Gjaldeyriseftirlitsins hert til muna og þess gætt að sem fæstir vissu um rannsóknina. Þannig vissu aðeins um tíu til tólf manns í 4 Sama heimild. 5 Sama heimild. öllum bankanum að til stæði að taka fyrir eitt stærsta fyrirtæki landsins. Á meðan Pétur Steinn Pétursson, yfir- maður eftirlitshluta Gjaldeyriseftirlitsins, teiknaði skipulag Samherjasamsteypunnará tússtöfluna hófu aðrir starfsmenn eftirlitsins að reikna útflutningsverð félagsins á karfa. Sýna átti fram á rökstuddan grun um að Samherji seldi karfa á undirverði til erlendra dótturfélaga sinna og kæra síðan það hátterni til lögreglunnar. Sú kæra myndi leiða til rannsóknar er varpa myndi Ijósi á umfangs- mikil brot Samherja og um leið hinar miklu vanefndirá skilaskyldu gjaldeyristil íslands. Starfsmenn bankans sáu fyrir sér að um væri að ræða nýtt„Ursusar-mál" — en miklu stærra — þar sem sannað yrði að íslenskir aðilar stjórnuðu erlendum fyrirtækjum sem hefðu þann eina tilgang að fela skila- skyldan erlendan gjaldeyri fyrir íslenskum yfirvöldum. Sá möguleiki var auðvitað til að íslenska móðurfélagið seldi fisk til erlends dótturfélags mjög ódýrt og erlenda dótturfélagið seldi síðan dýrt til erlendra kaupenda. Með þeim hætti væri hægt að láta ágóða af sölunni safnast upp í erlenda félaginu. Starfsmenn Gjaldeyriseftirlits Seðlabankans voru fullvissir um að þetta hefði átt sér stað án þess þó að hafa mikið í hendi, eða eins og fyrrverandi starfsmaður Seðlabankans orðar það: Við vorum sannfærð um að dótturfélögin Seagold og Deutsche Fischfang Union væru að kaupa fisk á alltof lágu verði frá íslandi og að hagnaður Samherja safnaðist saman í þeim. Hrúgaðist bara upp og væri þarna úti einhvers staðar úti í„cosmósinu" án þess að skila sértil íslands.6 Starfsfólk Gjaldeyriseftirlitsins var komið á sporið. Nú þurfti aðeins að færa sönnur á glæpina. 6 Sama heimild. Seagold er sölufyrirtæki Samherja og tengdra fyrirtækja í Hull í Bretlandi með frosnar sjávarafurðir, stofnað 1996. Það er systurfélag lce Fresh Seafood á íslandi. Deutsche Fischfang Union GmbH (DFFU) er útgerðarfélag Samherja í Þýska- landi. Þetta er gamalgróið félag sem Samherji keypti árið 1995. 96 ÞJÓÐMÁL vetrarhefti 2016

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.