Strandapósturinn - 01.06.1970, Qupperneq 54
vel uppi í hárinu á Kúvíkurstórveldinu, ef henni þótti á sig
hallað.
En svoleiðis var, að Jakob gamli Thorarensen kaupmaður átti
jafnan marga hesta, oftast 3 eða 4 reiðhesta og álíka marga áburð-
arhesta. Hrossin völdu sér ósjaldan beit í Veiðileysulandi og
sældust mjög eftir að komast í túnið. Erfitt var að hindra það að
næturlagi, því að túnið var ógirt eins og títt var um töðuvelli á
þeim tíma.
Móður minni þótti hvimleitt að sjá slægjunni spillt með þess-
um hætti, og lét því reka hestana jafnharðan norður yfir Veiði-
leysuháls og ofan undir Kúvíkur. Ur einum slíkum stóðrekstri
kom smalinn volandi heim. Þetta var drengur innan við fermingu
og kvartaði hann yfir hrakyrðum, sem hann hafði fengið hjá
Thorarensen gamla fyrir að láta ekki hesta hans í friði. Móðir
mín hughreysti sveininn og sagði, að hann skyldi ekki framar
þurfa að gráta undan gamla Thor. Hún skyldi reka hestana sjálf,
þegar þeir kæmu næst í túnið.
Það gerði hún reyndar, og leið ekki á löngu þar til að hún
fékk tækifæri til að efna orð sín. Fór hún þá með hestana alla
leið að Kúvíkum og hleypti þeim inn á túnið, sem var girt með
grjótgarði. Þetta var að næturlagi og sá hún því engan mann.
En næst þegar hún hitti kaupmanninn sagði hún, að það væri
jafngott að hann sæi, hvaða usla Kúvíkurstóðið gæti gert í slægj-
unni á einni nóttu og lýsti því yfir, að hún hefði sjálf hleypt hest-
unum í túnið hans til þess að honum væri ljóst, hvem ágang
þau í Veiðileysu væru búin að þola, ekki eina nótt, heldur
margar. Ef honum þætti ástæða til, skyldi hann vanda um við
hana nú og framvegis, er stuggað væri við stóðinu, en láta strák-
greyið ekki gjalda þess, sem ekkert hefði til saka unnið annað en
gegna skyldu sinni.
Vafalaust hefði margur maðurinn reiðzt af svona ádrepu eftir
það, sem á undan var gengið, en Jakob Jóhann Thorarensen var
nógu stórbrotinn til að meta manndóminn og hreinskilnina, sem
fólst í þessum einarðlegu viðbrögðum. Hann lét okkur á engan
hátt finna að sér þætti misboðið. Þvert á móti. Hann lét hafa
betri gæzlu á hrossunum og mikinn drengskap sýndi hann okkur
52