Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1970, Page 64

Strandapósturinn - 01.06.1970, Page 64
fjósinu það kvöldið. Knúnir áfram af spenningi veiðimannsins hlupum við út á ísinn, þangað sem vaðirnir lágu og athuguðum þá, hvern af öðrum. En nú brá svo við, að ekkert var á þrem fyrstu færunum. Það glaðnaði því heldur betur yfir okkur þegar við fundum, að stærðar hákarl var kominn á fjórða vaðinn. Við tosuðum honum up í vökina og jafnskjótt og hausinn kom í ljós, þekkti ég, að þar var sá stóri kominn aftur með sína rifnu trjónu. Var okkur nú mikið í mun, að hann yrði meira en sýnd veiði að þessu sinni. En hér var ekki hægt um vik, því að þetta var stærri skepna en svo, að hún væri okkar meðfæri, einnig vissum við, að þótt ísinn væri allþykkur, myndi hann ekki þola þunga hennar. Þurftum við því á hjálp að halda, enda hófum við hróp mikil og köll úti á ísnum. Meðan við biðum brauzt ferlíkið um í vökinni, en í þetta skipti tókst því ekki að sleppa. Og nú voru heimamenn komnir á vettvang. Þeir höfðu brugðið hart við, þegar köllin heyrðust, því að þeir óttuðust að slys hefði orðið. Létti þeim Gunnlaugi og Snæbirni mjög, er þeir sáu, hvernig í öllu lá. Var nú tekið til verka, unnið á hákarlinum og hann limaður sundur í sjónum og stykkin síðan dregin upp á ísinn og til lands. Þar með hafði veiðin fyllt tvær tylftir hákarla. Veður fór nú batnandi, en jafnframt tók algjörlega undan eins og sá grái skynjaði, að miklu lostætari rommsel væri að finna hjá Smá- hamramönnum úti í fjarðarkjaftinum. Að sjálfsögðu var uppi fótur og fit á Hrófbergi þessa daga. Mikið verk var að gera allri veiðinni til góða, kæsa hákarlinn og bræða lifrina. Lýsið var verðmæt verzlunarvara, en jafnframt gott búsílag sem ljósmeti og til viðbits brætt saman við tólg og nefndist þá bræðingur. Fróðlegt var að kanna innihald há- karlamaganna. í sumum fannst töluvert af hrognkelsum. Þau voru hirt, enda glæný og óskemmd með öllu. I sambandi við þessa miklu veiði þótti það einkennilegt, að þeir Grænanessbændur, Guðmundur og Sigurður veiddu aldrei neitt, þótt þeir kæmu með vaði og leggðu skammt frá okkur. Þetta eru þær einu hákarlaveiðar, sem ég hef tekið þátt í. Síðan eru nú liðin 64 ár. Reyndar hef ég ekki heyrt getið um aðra hákarlaveiði í Steingrímsfjarðarbotni, hvorki fyrr né síðar. 62
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.