Bændablaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 16

Bændablaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 16
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 202216 Á hlýindaskeiði á fyrri hluta 20. aldar rak mikið af þorsk­ seiðum með hafstraumum frá hrygningar svæðum við Ísland yfir á uppeldissvæði við Grænland. Í fyllingu tímans sneri þessi fiskur svo til baka til Íslands til hrygn­ ingar og stuðlaði að verulegri aflaaukningu hér við land. Nú eru aftur hagstæðar umhverfis­ aðstæður til sjávarins og skilyrði fyrir því að sagan geti endurtekið sig en ekkert bólar á því ennþá. Grænlandsgöngurnar sem svo hafa verið kallaðar voru ítrek- að mikil innspýting inn í fiskafla Íslendinga fyrr á árum. Það sem hér fer á eftir um þetta efni er aðallega byggt á upplýsingum úr skýrslu Hafrannsóknastofnunar “Staða vist- kerfa í hafinu við Ísland og horfur næstu áratuga”, sem kom út á síð- asta ári. Gríðarlega stórir árgangar Kuldaskeið ríkti á Íslandi á fyrstu áratugum 20. aldarinnar og náði hámarki frostaveturinn mikla 1918 en fljótlega þar á eftir fór að hlýna svo um munaði og hafði það góð áhrif á fiskistofna. Seiðarek til Grænlandsmiða frá Íslandi virðist hafa verið nokkuð tíður viðburður á hlýju árunum eftir 1920 en þó vógu þyngst gríðarlega stórir árgangar frá 1922, 1924 og 1945. Milljón tonn af íslenskum þorski við Grænland Áhrif slíkra risaárganga á fiskgengd við Ísland voru mikil. Þannig hefur verið metið að ef enginn fiskur af árgangi 1945 hefði komið frá Grænlandi árið 1953 hefði metinn lífmassi 8 ára þorsks við Ísland verið um 200 þúsund tonn en Grænlandsgöngur breyttu því mati í yfir 900 þúsund tonn. Á Íslandsmiðum var fjöldi veiddra fiska úr árgangi 1945 við 7 ára aldur um 15 milljónir en yfir 40 milljónir veiddust 8 ára og álíka mikið 9 ára. Erfðarannsóknir benda til að árin 1950-1965 hafi þriðjungur til helmingur þorsks við Vestur- Grænland verið af íslenskum uppruna sem samsvarar því að um milljón tonn af íslenskum þorski hafi verið við Grænland allt þetta tímabil. Alþjóðlegur veiðifloti við Grænland Þótt mikið af íslenska þorskinum sem rak sem seiði frá Íslandi til Grænlands hafi skilað sér aftur hingað til lands sem fullvaxta fiskur og haldið sig við Ísland eftir það myndaðist á þessum árum stór grænlenskur sjálfbær þorskstofn sem hrygndi við Vestur-Grænland. Fljótlega eftir seinni heimstyrjöldina hófust alþjóðlegar þorskveiðar við Vestur-Grænland sem urðu æði stórtækar áður en yfir lauk og tóku íslensk skip þátt í þeim. Ris og hrun þorskstofnsins við Grænland Þorskaflinn við Vestur-Grænland jókst úr 70 þúsund tonnum árið 1946 í rúm 330 þúsund tonn árið 1952. Næstu átta árin var aflinn um 300 þúsund tonn að meðaltali og um 400 þúsund tonn til jafnaðar á árabilinu 1961-1968. Eftir það fór Grænlandsþorskinum ört hnignandi. Árið 1970 var aflinn kominn niður í 150 þúsund tonn og 50 þúsund tonn árið 1975. Aðalástæðan fyrir algjöru hruni þorskstofnsins við Grænland er talin vera skyndileg kólnun sjávar á hafísárunum 1965-1971, en að gríðarlegt veiðiálag hafi flýtt fyrir þessari þróun. Hvers er að vænta? Sú spurning vaknar hvort búast megi við því að hlýindaskeiðið sem nú ríkir í sjónum á þessu hafsvæði færi okkur alvöru Grænlandsgöngur á ný. Um þetta segir í nefndri skýrslu Haf- rannsóknastofnunar: „Þrátt fyrir hagstæðar um hverfis aðstæður hafa enn ekki komið fram vísbendingar um vaxandi þorskgengd við Vestur- Græn land eða umtalsverðar göngur þaðan til Íslands og alls ekki í líkingu við það sem var á hlýju árunum um miðbik síðustu aldar. Sá mikli þorskafli, sem fékkst hér við land á árunum fyrir og eftir seinni heimstyrjöldina, tengdist nokkrum stórum og jafnvel gríðarlega stórum árgöngum sem að hluta til ólust upp við Grænland og héldu hver um sig uppi góðri veiði við Grænland og Ísland um árabil. Skilyrði fyrir slíkum atburðum virðast nú hafa verið fyrir hendi í rúman áratug, að minnsta kosti hvað varðar hitastig sjávar við Grænland og stærð og aldurs- samsetningu hrygn ingar stofnsins við Ísl and. Lítið er þó vitað um rek þorsk lirfa frá íslenskum hrygn- ingar svæðum eða afkomu þeirra og engar vísbendingar eru enn um sterka nýliðun þorsks við Vestur-Grænland.” NYTJAR HAFSINS Guðjón Einarsson gudjone3@gmail.com Glaðningurinn frá Grænlandi Þorskur í neti. Þorskgöngur frá Grænlandi skiluðu gríðarlegum viðbótarafla við Ísland þegar best lét. Sagan sýnir að hlýnun hafsvæð­ anna umhverfis Ísland getur haft mikil áhrif á útbreiðslu og framleiðni íslenska þorsk­ stofnsins. Að einhverju leyti hafa slík áhrif komið fram við þær hlýju aðstæður sem nú ríkja á Íslandsmiðum, a.m.k. að því er varðar aukinn lífmassa og langlífi einstaklinga, en það tengist því einnig að veiðiálag hefur ekki verið minna í meira en hálfa öld, segir í áðurnefndri skýrslu Hafrannsóknastofnunar. Þó er bent á að þrátt fyrir að stækkandi hrygningarstofni og víðari aldursdreifingu hafi fylgt aukin þorskgengd á helstu hrygn­ ingar svæðum undanfarin 15 ár og fjöldi 1 árs þorsks hafi aukist samfara því, hafi það ekki skilað sér í stórum árgöngum í veiðistofni. Þótt hækkandi sjávarhiti á Íslandsmiðum geti í sumum tilfellum haft áhrif á vaxtarhraða og nýliðun, geti einnig komið fram neikvæð áhrif þegar magn helstu fæðu þorsks, þ.e. loðnu og rækju sem eru kaldsjávartegundir, minnkar. Stærri fiskurinn étur þann smáa Þá er vikið að því í skýrslunni að dánartíðni yngstu árganga þorsks af völdum afráns sé líklega mest þegar stofn afræningja (þ.e. stærri fiska sem éta minni fiska) sé stór, fæðuframboð afræningja lítið og vöxtur þorskungviðis hægur. Afránstíðni minnkar með aukinni stærð bráðarinnar og hægvaxta ungviði er því lengur að komast úr “afránsglugganum” eins og það er orðað. Einnig eykur hærri sjávarhiti orkuþörf afræningja sem gæti aukið afránstíðni á ungþorski. Undanfarin 15 ár virðast að stæður á Íslandsmiðum hafa stuðlað að hlutfallslega mikl­ um náttúrulegum afföllum af ungþorski (1­3 ára). Seiði hafa verið smá, stofn helsta afræningjans (þorsks) verið stór og hitastig hátt. Þessir þættir geta takmarkað nýliðun og vöxt þorskstofnsins en hlutfallsleg áhrif þeirra eru ekki þekkt, segir í skýrslu Hafrannsóknastofnunar. Áhrif hlýnunar á íslenska þorskstofninn Göngur þorsks frá Grænlandi til Íslands samkvæmt merkingum áranna 1924-1939. (Úr skýrslu Hafrannsóknastofnunar 2021: Staða umhverfis og vistkerfa í hafinu við Ísland og horfur næstu áratuga).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.