Bændablaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 27

Bændablaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 27
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 2022 27 15% AFSLÁTTUR Í FORSÖLU 8.542 kr. pr./bréf 9.324 kr. pr./bréf BETRI ÁRANGUR MEÐ JOSILAC íblöndunarefni Öll verð eru án vsk. Verð miðast við bréf (150g) Eykur fóðurgæði Betri inntaka Meiri meltanleiki Heilbrigðari kýr Betri afkoma Gildir til 31. mars JOSILAC Ferm - 9.324 kr. - 15% afsl. 7.925 kr. JOSILAC Classic - 8.542 kr. - 15% afsl. 7.260 kr. Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is stalogstansar.is VARAHLUTIR Í KERRUR 2012 2021 köfnunarefni sem nýtist plöntunum. Við nýtum einnig hænsnaskít frá lífræna eggjabúinu í Miklaholtshelli. Það náttúrlega segir sig sjálft að því minna af áburðarefnum sem þú berð á því minni uppskeru færðu, uppskeran er að meðaltali 25 pró- sent minni en áður en við fórum í aðlögun. Í dag fáum við að með- altali 15 rúllur á hektara en það er breytilegt á milli túna og ára,“ segir Rúnar Geir. Hann segir aðbúnaðarkröfurnar vera meiri í lífrænum landbúnaði. Felst það aðallega í því að hver gripur þarf meira rými. Nýja fjós- ið er hins vegar mjög rúmt og því var mjög lítið sem breyttist hvað varðar fjölda gripa til dæmis. Þegar aðlögunin hófst máttu 70 kýr vera á kúasvæðinu í staðinn fyrir 72. Kröfur um útivist eru líka meiri, gripirnir eiga í raun að vera eins mikið úti á beit og mögulegt er. Verandi með þetta margar mjólkandi kýr og bara einn mjaltaþjón, þá þarf ekki mikið til að mjaltalistinn safnist upp. Við erum reyndar búin að leysa það mál núna, með því að setja upp annan mjaltaþjón. Í kjölfarið gerðum við smá breytingar í fjósinu þannig að kúasvæðið rúmar núna 89 kýr. Við höfum alltaf sett alla naut- kálfa á, sem hafa verið aldnir upp í gamla fjósinu. Við ákváðum hins vegar að sleppa því í bili að sækja um lífræna vottun á nautum vegna þess að þeir eru á steinbitum en sam- kvæmt lífrænu reglugerðinni verður í það minnsta helmingur gólfflatar- ins að vera heill. Við munum leysa það mál í framtíðinni með því að hafa hálm undir þeim gripum sem þar verða og lögum gamla fjósið þannig að það uppfyllir aðbúnað- arreglur fyrir lífrænt vottað naut- gripaeldi.“ Tilraunir með kjötmjöl Fjölskyldan í Eyði-Sandvík á einnig jörðina Miðhjáleigu í Austur- Landeyjum. „Ræktað land þar er núna 80 hektarar og verður meira land tekið undir til ræktunar á næstu árum. Við settum þá jörð í aðlögun árið 2021, þar sem við erum með akuryrkjuna ásamt því að rækta líka úrvals gróffóður. Framtíðarhugsunin er að setja þar upp litla grasköggla- verksmiðju. Nautaeldið okkar mun síðar færast þangað. Við höfum undanfarið verið að prófa að notast við kjötmjöl sem áburðargjafa við kornræktunina í Miðhjáleigu sem hefur bara komið nokkuð vel út. Við ætlum að halda áfram að gera tilraunir við notkun á kjötmjöli,“ segir Rúnar Geir. Eiginlega engir gallar „Við lítum svo á að það að vera í lífrænni ræktun er að stærstum hluta hugsjónastarf,“ segir Rúnar Geir, en bendir þó á að það sé borgað 35 prósent álag ofan á afurðastöðvarverð fyrir lífrænu mjólkina. „En eins og staðan er núna þá tekur Biobú um fjórðung af mjólk- inni okkar. Þeir eru að bæta við tækjabúnaði svo þeir hafi getu til að taka við og vinna úr meiri mjólk.“ Rúnar Geir segir að hugmyndafræðin snúist í grunninn um að stunda landbúnað án notkunar á kemísk- um áburði eða notk- unar á varnarefnum sem sé óneitanlega betra fyrir umhverfið. „Nýta þarf allan þann lífræna úrgang sem fellur til á staðnum eða nærumhverfinu og hafa sem mest af heimafengnu fóðri. Betri aðbúnaður er fyrir dýrin, þá eink- um meira pláss og meiri útivist eins og var algengt í íslenskum landbún- aði hér á árum áður. Í rauninni erum við að fara aftur nær upprunanum þó svo við séum ekki farin aftur í torfkofann. Við sjáum eiginlega enga galla við þessar breytingar, en það er þó meiri vinna sem fylgir sem felst aðal- lega í dreifingu á lífrænum áburði og að vera duglegri í endurræktuninni, vera öflugri í sáðskiptaræktun sem ýtir undir frjósemi jarðvegsins og duglegir að kalka og lofta túnin. Meðalnytin minnkar líka þar sem við fóðrum núna að mestu á gróffóðri. Það er svo líka talsvert meira skýrsluhald og pappírsvinna. Aðalforsendan fyrir því að við gátum farið í þetta er að við höfum nóg af ræktarlandi enda erum við með tvær jarðir fyrir þetta til að fóðra allan bústofninn sem telur núna 80 mjólkurkýr, 120 aðrir nautgripir í uppeldi, 20 hross, 14 kindur og nokkrar hænur,“ segir hann. Strangar reglur um lyfjagjöf Notkun lyfja er strangari í lífrænt vottuðum landbúnaði, að sögn Rúnars, og notkun sýklalyfja sem fyrirbyggjandi meðhöndlun er óheimill. „Ef gripur veikist og þarf á lyfjameðhöndlun að halda þá fær hann viðeigandi meðferð enda er heilsa og vellíðan dýranna sett í fyrsta sæti. Ef þörf er á notkun sýkla- lyfja þá er tvöfalt lengri útskolunar- tími samanborið við í hefðbundnum landbúnaði. Ef það kemur fyrir að gripur þarf oftar en einu sinni sýkla- lyfjameðhöndlun innan sama afurða- skeiðs, þá dettur viðkomandi út sem lífrænt vottaður gripur og er óheimilt að selja afurðir af þeim grip. Notkun hormóna eða áþekkra efna í því skyni að stjórna æxlun – eins og að framkalla eða stjórna gangmáli – er bönnuð. Við gerum einfaldlega allt sem hægt er til að halda gripunum heil- brigðum og að þeim líði sem best; halda nærumhverfi þeirra hreinu, gefa þeim gott fóður sem uppfyll- ir allar þeirra næringarefnaþarfir, tryggja þeim næga hreyfingu í þeirri von að ekki verði þörf á neinni með- höndlun.“ Björt framtíð fyrir lífrænt vottaðan landbúnað Rúnar Geir telur að lífrænt vottaður landbúnaður eigi sér bjarta framtíð hér á landi. „Neytendur sem vilja slíkar vörur sækja hægt og rólega í sig veðrið og þurfa bændur að vera tilbúnir að svara því kalli. Núna í dag er eftirspurn eftir lífrænt vott- uðu grænmeti að aukast og þegar neytendur fara að kynna sér betur líf- ræna ræktun þá erum við viss um að meiri eftirspurn mun verða eftir bæði lífrænt vottuðum mjólkurvörum og kjöti,“ segir hann. Spurður um muninn á ferlinu fyrir sauðfjárbændur og kúabænd- ur, segir Rúnar Geir að hann sé ekki mikill. „Þetta er í raun sambærilegt, sauðféð þarf meira pláss. Það sem hefur verið erfiðast að tækla er krafan um að helmingurinn af gólf- fletinum þurfi að vera heill, en flest fjárhús hafa annaðhvort málmristar eða grindargólf. Nokkrir bændur hafa leyst það mál og munu fleiri eflaust gerast lífrænt vottaðir sauð- fjárbændur með tímanum.“ /smh Kýr á beit í Eyði-Sandvík. Kröfur um útivist í lífrænum kúabúskap eru miklar. Gripirnir eiga í raun að vera eins mikið úti á beit og mögulegt er.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.