Bændablaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 55

Bændablaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 55
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 2022 55 Landgræðslunni barst opið bréf frá Ástu F. Flosadóttur sem birt var á Vísi þann 2. febrúar 2022 undir heitinu „Kæri Jón“ Opið bréf til Landgræðslunnar. Bréfið fékk Ásta einnig birt í Bænda­ blaðinu 10. febrúar. Tilefni skrifa Ástu eru viðbrögð við bréfi Landgræðslunnar þar sem tilkynnt er að styrkir til verkefnis­ ins Bændur græða landið verði lækkaðir vegna 100% hækkunar áburðarverðs. Ásta fer fögrum orðum um verk­ efnið Bændur græða landið og segir m.a.: „Og árangurinn ótvíræður, melar gróa, rofabörðum er lokað, afréttir bera meiri beit.“ Stór hluti af vinnu við endur­ heimt vistkerfa á Íslandi byggir á því að grípa inn í þá ferla sem eru hamlandi fyrir framgang þeirra. Í hnignuðum eða hrundum vistkerfum er lítið framboð af næringarefnum, og þá sérstaklega köfnunarefnis og fosfórs, eitt af þeim atriðum sem geta hamlað framvindu hvað mest. Aðrir þættir geta t.d. verið fræfram­ boð, veðurfar, ósjálfbær landnýting og náttúruvá. Stærstu verkefni Landgræðsl­ unnar sem hafa endurheimt vist­ kerfa að meginmarkmiði eru Bændur græða landið, Landbótasjóður, Umsjón landgræðslusvæða auk endurheimtar votlendis og birki­ skóga. Verkefnið Bændur græða landið er samvinnuverkefni Landgræðsl­ unnar og landeigenda um upp­ græðslu heimalanda. Tilgangur þess er að styrkja landeigendur til landgræðslu á jörðum sínum, stöðva rof, þekja land gróðri og gera það nothæft á ný til landbúnaðar eða annarra nota. Verkefnið hófst árið 1990. Landbótasjóður er sjóður á vegum Landgræðslunnar sem leggur honum til fé til úthlutunar, auk þess sem aðrir aðilar geta lagt sjóðnum til fjármuni. Landgræðslan úthlutar árlega styrkjum úr sjóðnum, en til­ gangur þeirra er að færa ábyrgð og framkvæmd landgræðsluverkefna heim í héruð og veita landeigendum, sveitarfélögum, félagasamtökum og öðrum umráðahöfum lands, styrki til landbótaverkefna. Verkefnin Bændur græða landið (BGL) og Landbótasjóður (LBS) eru hátt í 600 talsins, flest unnin af sauð­ fjárbændum. Algengasta aðgerðin í þessum verkefnum er styrking gróð­ urs með tilbúnum áburði því auð­ veldara er að koma honum á erfitt land. Svæðin sem unnið er á, eru ýmist friðuð eða nýtt til hóflegrar beitar þannig að svæðin styrkjast og batna sem beitilönd. Ávinningur landgræðslu er margþættur s.s. endur­ heimt náttúrulegra vistkerfa, aukinn gróður sem bindur kolefni í jarðvegi, styrking líffræðilegs fjölbreytileika, bættur vatnsbúskapur og auknir nýtingarmöguleikar landsins til framtíðar. Nú liggur fyrir að frá árinu 2021 hefur verð á algengum áburðar­ tegundum til landgræðslu hækk­ að um 102­115% eftir söluaðilum sem er verðbreyting án fordæma hér á landi, auk þess sem framboð er takmarkað. Framlag ríkisins til verkefna Landgræðslunnar hefur hækkað á undanförnum árum og er það vel. Hins vegar er staðan þannig að sú hækkun heldur ekki í við þessa miklu hækkun á áburði. Verð á tilbúnum áburði hefur mikil áhrif á umfang verkefna Landgræðslunnar og samstarfsað­ ila. Vegna slæmrar stöðu sauðfjár­ ræktarinnar er bagalegt að geta ekki haldið óbreyttu umfangi í þessum mikilvægu samstarfsverkefnum sem skilað hafa frábærum árangri á undanförnum áratugum. Landgræðslan hefur ákveðið að grípa til mótvægisaðgerða til að draga úr áhrifum áburðarverðshækk­ ana á helstu verkefni. Landgræðslan eykur áherslu á notkun lífræns áburðar í öllum verk­ efnum og vekur sérstaka athygli á lífrænni leið í BGL sem gæti verið valmöguleiki fyrir þá þátttakendur sem hafa aðgang að lífrænum áburði. Landgræðslan færir fjármuni úr öðrum verkefnum til verkefnanna BGL og LBS en sú aukning í fram­ lögum nær þó ekki að halda í við verðhækkanir og því hækkar endur­ greiðsla á hvert tonn í BGL aðeins um 80% á milli ára. Landgræðslan mun einnig nota minna magn áburðarefna á flatar­ einingu í nokkrum stærri verkefnum. Þannig má auka það flatarmál sem næst að vinna á og styrkja svæði sem annars hefði ekki verið hægt að fylgja eftir. Árlegt heildarumfang aðgerða í landgræðsluverkefnum er um 20 þúsund hektarar og með því að nota 10% minni áburð á hvern hektara má vinna á 2.000 hekturum til viðbótar. Þessi listi yfir mótvægisaðgerðir er ekki tæmandi og Landgræðslan hvetur samstarfsaðila til að hafa samband við héraðsfulltrúa stofn­ unarinnar um ráðgjöf og vinna til­ lögur að lausnum sem henta hverj­ um og einum til að draga sem mest úr högginu. Að lokum, ágæta Ásta, tel ég rétt að svara tvennu í greininni þinni: Í fyrsta lagi fullyrðingu um að ekkert samráð hafi verið við bænd­ ur um vinnslu reglugerðar um sjálf­ bæra landnýtingu. Reglugerðardrögin voru rædd á fjölmörgum fundum með Landssamtökum sauðfjárbænda og Bændasamtaka Íslands auk þess sem drögin fóru í Samráðsgátt. Nú er unnið að endurbótum vegna athugasemda og drögin munu fara aftur í Samráðsgáttina. Samráðsgáttin er góð leið til að ná til allra lands­ manna. Við erum öll, allir landsmenn, gæslumenn lands á Íslandi. Í öðru lagi eftirfarandi texti í grein þinni: „Við héldum að sambandið einkenndist af samvinnu og gagn­ kvæmri virðingu. En svo fara að renna á bóndann tvær grímur, er jafnræði í þessu sambandi? Jöfn og sanngjörn verka­ skipting? Kostnaðarskipting rétt? Eru störf bænda og framlag í sambandinu metin að verðleikum? Eða er makker­ inn farinn að taka okkur sem sjálf­ sögðum hlut, má bjóða bændum hvað sem er? Erum við stödd í einhvers konar ofbeldissambandi, þrælahaldi, þar sem þarfir okkar eru ekki virtar, vaðið er yfir okkur á skítugum skón­ um, talað niður til okkar?“ Verkefnið Bændur græða landið er samstarfsverkefni þar sem hlut­ verk Landgræðslunnar er að veita ráðgjöf og styrki í samræmi við þær reglur sem settar eru hverju sinni og fram koma í auglýsingu. Við skrá­ um aðgerðir og leggjum mat á hvort styrkir hafi verið nýttir eins og til stóð. Landeigendur sækja um að vera með í BGL, enginn er neyddur til að taka við styrk til að bæta eigið land og gera það betra. Ég er sammála því sem fram kemur í grein þinni – árangur verk­ efnanna er ótvíræður og ég vona svo sannarlega að þið og aðrir góðir BGL bændur sjái sér hag í að halda áfram að bæta landið okkar, slíkt er samfélagi okkar og framtíð þess til góða. Árni Bragason, landgræðslustjóri. LESENDARÝNI Hækkandi áburðarverð og landgræðsla – hvað er til ráða? Árni Bragason. Daðastaðir í Núpasveit. Frábært starf landgræðsluverðlaunahafanna Gunnars Einarssonar og Guðrúnar S. Kristjánsdóttur. Rúko leitar að öflugum vélvirkja á verkstæði fyrirtækisins. Leitað er að vönum vélvirkja með góða reynslu af viðgerðum og standsetningu á vélum og tækjum. Fjölbreytt verkefni í góðu starfsumhverfi. Góð laun í boði fyrir réttan starfskraft. ruko@ruko.is | |ruko.is 534 6050 V ÉL V IR K I Ó S K A S T V ÉL V IR K I Ó S K A S T V ÉL V IR K I Ó S K A S T V ÉL V IR K I Ó S K A S T Vinnuvélar Vélvirki á verkstæði / experienced mechanic Helstu verkefni og ábyrgð – Viðgerðir og viðhald á vélum og tækjum – Standsetning nýrra véla Menntunar- og hæfniskröfur – Iðnmenntun – Reynsla af störfum á verkstæði Rúko er umboðs- og þjónustuaðili fyrir fjölda þekktra vörumerkja. Þar má helst nefna vélar og krana frá Liebherr, Yanmar smágröfur, Himoinsa rafstöðvar, Kaeser loftpressur og Weber jarðvegsþjöppur. Vantar fyrir traustan kaupanda, vel uppbyggða jörð sem gæti hentað fyrir ferðaþjónustu, helst á Suðurlandi og/eða á Vesturlandi. Vestfirðir gætu komið til greina. Jörðin er m.a. hugsuð fyrir hestatengda ferðaþjónustu. Góður kostur er að þar hafi verið rekin ferðaþjónusta. Jörð án mikils húsakosts kemur einnig til greina. Heitt vatn góður kostur en ekki skilyrði. Góð nettenging nauðsynleg. Nánari upplýsingar gefur Magnús Leópoldsson í síma 892 6000 eða á netfangið magnus@fasteignamidstodin.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.