Bændablaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 57

Bændablaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 57
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 2022 57 Mest lesni prentmiðillinn á landsbyggðinni – ár eftir ár – Hvar auglýsir þú? 4,9% 8,1% 18,8% 30,1% 27,2% 0,0% 5,0% 10,0% 15,0% 20,0% 25,0% 30,0% 35,0% Viðskiptablaðið Stundin Morgunblaðið Fréttablaðið Bændablaðið Meðallestur prentmiðla á landinu öllu Samkvæmt prentmiðlamælingu Gallup á fjórða ársfjórðungi 2021 4,9% 8,1% 18,8% 27,0% 41,9% 0,0% 5,0% 10,0% 15,0% 20,0% 25,0% 30,0% 35,0% 40,0% 45,0% Viðskiptablaðið Stundin Morgunblaðið Fréttablaðið Bændablaðið Meðallestur prentmiðla á landsbyggðinni Samkvæmt prentmiðlamælingu Gallup á fjórða ársfjórðungi 2021 Stuðningur við skógrækt félaga og samtaka STYRKIR TIL LOFTSLAGSVERKEFNA: UPPLÝSINGAR OG UMSÓKNIR: www.skogur.is/vorvidur UMSÓKNARFRESTUR TIL 1. MARS! C M Y CM MY CY CMY K Vorvidur-auglysing_2022_bbl.pdf 1 2.2.2022 08:41:29 Gallup á Íslandi gerði könnun meðal Kópavogsbúa dagana 17. desember 2021–26. janúar 2022. Það voru íbúasamtökin „Vinir Kópavogs“ sem létu framkvæma hana og kostuðu að öllu leyti. Niðurstöðurnar voru sláandi og þvert á það sem bæjarstjórn og bæjarstjóri hafa ítrekað látið í veðri vaka. Þannig lýstu 71,3% Kópavogsbúa sig hlynnta því að fram færi hönnunarsamkeppni vegna skipulags í miðbæ Kópavogs. 23,3% tóku ekki afstöðu og 5,4% bæjarbúa vildu ekki samkeppni, en það var einmitt sú leið sem bæjarstjórn ákvað að fara. Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti deiliskipulagið með 6 atkvæðum gegn 5 þann 20. desember 2021. Samkvæmt könnun Gallup eru 5,4% bæjarbúa hlynnt þeirri leið sem bæjarstjórn samþykkti að fara. Hér er um að ræða skipulag á einhverju mikilvægasta og dýrmætasta svæði höfuðborgarsvæðisins. Ljóst er af könnuninni að Kópavogsbúar vilja sjá aðra valkosti en þá sem Skipulagsstofnun kallar „fordæmalausa þéttingu byggðar á Íslandi“. Kópavogsbúar vilja lifandi og heillandi miðbæ sem gegnir lykilhlutverki í bæjarfélaginu á sviði samgangna, þjónustu, verslunar, atvinnulífs og mannlífs í bænum. Valdníðsla er orð sem hér á vel við og sem dæmi má nefna að framkvæmdir sem nú á að ráðast í munu óhjákvæmilega hafa í för með sér skerðingu á lögbundnum rétti fatlaðra íbúa í miðbæ Kópavogs til aðgengis að heimilum sínum. Kópavogsbúar spyrja sig nú: ,,Hvað gengur bæjaryfirvöldum til?“ ,,Hvaða hagsmunir liggja hér að baki?“ Vinir Kópavogs leggja áherslu á að í Kópavogi verði skipulag byggðar unnið í samráði og samtali við bæjarbúa, og að horfið verði frá þeim ljóta vana að hlusta fyrst og fremst á sjónarmið aðila sem hafa (ofsa) gróðasjónarmið í fyrirrúmi. Skipulag á að mynda umgjörð um mannlíf, ekki bara núverandi kynslóða, heldur framtíðarkynslóða Kópavogsbúa. Vinir Kópavogs eru sannarlega ekki mótfallnir framkvæmdum í miðbæ Kópavogs, það er löngu kominn tími á að hann fái þá reisn sem hann á skilið. Vinir Kópavogs krefjast hins vegar þess að vandað verði til verka við slíkar framkvæmdir. Bæjarstjórn samþykkti samhljóða í febrúar 2018 að yfirstefna bæjarfélagsins væri: „Hlutverk Kópavogsbæjar er að tryggja lífsgæði íbúanna með góðri og fjölbreyttri þjónustu. Grunnreglur bæjarins eru skýrar og miða að því að allir hafi tækifæri til áhrifa. Kópavogur leggur áherslu á gott mannlíf, skilvirkan og ábyrgan rekstur ásamt öflugu atvinnulífi.“ Svo mörg voru þau orð. Jóhann Már Sigurbjörnsson, kerfisstjóri. LESENDARÝNI Frá Vinum Kópavogs
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.