Bændablaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 20

Bændablaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 20
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 202220 Harkalega er tekist á um Úkraínu, brauðkörfu Evrópu, um þessar mundir. Átökin eiga sér langa sögu, en núverandi átakaferli má að nokkru leyti rekja til ásælni erlendra fjárfesta í ræktarland í Úkraínu og mögulegrar aðildar landsins að NATO. Fjárfestar víða um lönd hafa verið að átta sig á að einhver besta trygging fjármagns er í grunni matvælaframleiðslu heimsins, þ.e. í ræktarlandinu sjálfu. Fólk mun alltaf þurfa mat hvernig svo sem ástand fjármálakerfisins er og pólitískar sveiflur í heiminum. Margvíslegar fréttir hafa borist af uppkaupum á ræktarlandi á liðnum árum. Eða því sem kallað hefur verið „Land Grabbing“, það er þegar peningamenn hrifsa til sín land í skjóli fjárhagslegrar stöðu sinnar. Framleiddu nær 84 milljónir tonna af korni á síðasta ári Úkraína er sjötta stærsta korn­ framleiðsluland heims, þar sem Bandaríkin eru númer 1, Kína númer 2, Brasilía númer 3, Argentína númer 4 og Mexíkó númer 5 á listanum. Úkraínumenn framleiða um 2,5 sinnum meira af ýmiss konar korni en Frakkar og ríflega 8 sinnum meira en Þjóðverjar. Samkvæmt tölum matvæla­ og landbúnaðarráðuneytis Úkraínu nam heildar kornuppskera landsins (grain production) á árinu 2021 samtals 83,8 milljónum tonna. Inni í þeirri tölu er 32,1 milljón tonn af hveiti og 40 milljón tonn af korni (maize). Útflutningur á hveiti frá júlí 2021 fram í janúar 2022 nam um 17 milljónum tonna og þar af 11 milljónir tonna til manneldis og um 5,6 milljónir tonna af skepnufóðri. Reiknað er með að útflutningur í febrúar og fram í júní muni nema um 8,2 milljónum tonna og þá að stærstum hluta sem fóður til dýraeldis, eða 6,2 milljónir tonna. Heildaruppskeran var um 65 milljónir tonna árið 2020. Það er því augljóslega eftir miklu að slægjast í úkraínskum landbúnaði. Mikil ásælni erlendra stórfyrirtækja Í Úkraínu hefur ásælni útlendinga verið gríðarleg, enda þykir ræktarland þar vera eitt það besta í heimi. Svarta moldin (Black Soil) er það sem einkennir ræktarland Úkraínu. Þar er talið að finna megi um 30% af allri svartri mold heimsins, eða um 42 milljónir hektara. Þar er jafnframt talin vera vagga akuryrkjumenningarinnar í heiminum. Ræktanlegt land á íbúa er mjög hátt, eða 0,71 hektari sem er þriðja hæsta hlutfall í heimi. Til samanburðar er það 0,38 hektarar á íbúa á Íslandi, 0,16 hektarar í Noregi og 0,43 hektarar á íbúa í Danmörku. Ef Krímskaginn, sem Rússar hafa nú yfirtekið, er dreginn frá, þá telst 69% Úkraínu vera ræktarland. Útlendingar geta ekki keypt land nema í gegnum úkraínska leppa Eignarhald útlendinga á ræktarlandi í Úkraínu er mjög falið og slík kaup eru ekki gerleg nema í gegnum leppfyrirtæki heimamanna. Hver einstaklingur í Úkraínu eða fyrir­ tæki í þeirra eigu mega eiga allt að 10.000 hektara land. Enn eru þar í gildi að nafninu til lög sem banna jarðakaup útlendinga og þarf þjóðaratkvæðagreiðslu til að breyta þeim lögum. Útlendingar mega hins vegar fjárfesta í fasteignum. Samt er vitað að farið hefur verið gróflega í kringum þessi lög á undanförnum árum og yfirvöld hafa marglofað að gera eignarhaldið gagnsærra. Öll jarðaviðskipti yfir 100 hektara að stærð eiga að fara fram í gegnum opinberu eignarhaldsskrifstofuna Gos Zem Agenstvo svo úrbætur ættu að vera auðveldar. Ræktarland í Úkraínu notað til að ýta undir græðgi fjárfesta Oleksiy Pavlenko, sem var landbúnaðarráðherra Úkraínu 2015, sagði í fjölmiðlum í janúar það ár, að auka mætti kornframleiðsluna í landinu úr 62 milljónum tonna árið 2014 í 100 milljón tonn. Slíkt var þó vart talið framkvæmanlegt nema með ræktun á erfðabreyttum kornafbrigðum (GMO). − Það var eins og við manninn mælt, erlendir fjárfestar runnu á lyktina, þar á meðal fyrirtæki eins og Monsanto, sem á fjölda einkaleyfa á erfðabreyttum korntegundum og illgresiseyði (Roundup) sem mikið er notaður við slíka ræktun. Monsanto var yfirtekið af þýska efnarisanum Byer í september 2016 í viðskiptum upp á 66 milljarða dollara sem gerðu það mun auðveldara að sækjast eftir stuðningi ESB við að auka ítök í úkraínskum landbúnaði. Það jók enn á ásælni fjárfesta að Heinz Strubenhoff, fjárfestingastjóri landbúnaðarmála í Úkraínu hjá Alþjóðabankanum, lýsti því yfir árið 2015 að tími væri til kominn að hefja einkavæðingu í landbúnaði Úkraínu. Ráðgjafar hjá France's Credit Agricole Bank í Úkraínu vöruðu þó við slíku tali og sögðu að úkraínskir bændur yrðu þá einungis leiguliðar fjárfesta í eigin heimalandi. Samkvæmt tölum hagstofu Úkraínu námu beinar erlendar fjárfestingar í landinu frá janúar til júlí 2015 samtals rúmlega 42.851 milljón dollara, eða sem nam rúmlega 5,5 billjónum íslenskra króna (5,5 milljón milljónum kr.). Athygli vekur að hlutfallslega mesta fjármagnið rann í gegnum Kýpur, eða rúmlega 12.274 milljónir dollara, en Kýpur er einmitt þekkt skattaskjól áhættufjárfesta af ýmsum toga sem fela vilja slóð sína. Talið var að um 1,6 til 2,2 milljónir hektara ræktarlands í Úkraínu væru þá komnar í hendur útlendinga. Braskað með ríkisjarðir og bullandi svartur markaður Enn var ýtt undir þessa þróun með nýjum einkavæðingarlögum á ríkisjörðum sem sett voru 2018 (On privatization of state and municipal property). Þar með voru í raun allar flóðgáttir opnaðar. Peningar fóru að hlaðast inn á ríkiseignasjóð Úkraínu og 2020 var staðan um 3,8 milljarðar UAH (Ukrainian hryvnia). Þetta jafngildir um 16,7 milljörðum íslenskra króna. Þá hefur verið í gangi stór svartamarkaður fyrir jarðasölu í Úkraínu samkvæmt umfjöllun Cyprus Mail í desember síðastliðnum. Á árinu 2021 voru seld „fjárhættuspilaleyfi“ (gambling licenses) í jarðaviðskiptum í Úkraínu fyrir ríflega 1 milljarð UAH, eða sem svarar um 4,4 milljörðum íslenskra króna. Afar viðkvæm staða Fjárfestar hafa leitað eftir stuðningi Evrópusambandsins til að tryggja sína stöðu í Úkraínu og einnig Bandaríkjanna og Nato. Það er því ekki skrítið að Rússar og samherjar þeirra séu órólegir, enda hafa mjög lengi verið náin tengsl við Úkraínu sem var hluti af Sovétríkjunum sálugu. Þetta var einnig þeirra trygging fyrir fæðuöryggi. Með óskir núverandi stjórnarherra í Úkraínu um að landið fái aðild að NATO, var vakið upp álíka viðkvæmt mál og að Rússar eða Kínverjar kæmu sér upp herstöðvum við landamæri Bandaríkjanna í Mexíkó. Mikil stríðsæsingarherferð hefur verið í gangi undanfarnar vikur í kjölfar þeirrar miklu áherslu að Úkraína verði gert eitt af aðildar­ ríkjum NATO. Rússar tóku þessu ekki fagnandi og svöruðu með því að senda mikið herlið að landamærum Úkraínu. Síðan hefur verið hamrað á því í vestrænum fjölmiðlum að innrás Rússa í Úkraínu væri alveg að bresta á og það nýtt til að auka hernaðarviðbúnað NATO í austurhluta Evrópu. Hættan liggur í mögulegum aðgerðum í Donbass-héraði „Það er aðeins ein hætta og hún er sú að yfirvöld Úkraínu grípi til alvarlegra aðgerða í Donetsk og Luhansk í Donbass héraði,“ sagði Alexander Lukashenko, forseti Belarus, í samtali við blaðamann Pravda fyrr í þessum mánuði. Á þessum svæðum er rússneskumælandi fólk í meirihluta og hefur fjöldi fólks þar verið að fá rússnesk vegabréf að undanförnu. Þá hefur mikill fjöldi líka flúið yfir til Rússlands vegna hættu á frekari átökum við stjórnarher Úkraínu. Borgin Donetsk og héraðið þar um kring lýsti yfir sjálfstæði 7. apríl 2014 sem Alþýðulýðveldið Donetsk og sömu leiðis var lýst yfir sjálfstæði Luhansk og aðliggjandi héraðs þann 27. apríl 2014 sem nefnt er Alþýðu lýðveldið Luhansk. Þessi svæði hafa þó ekki verið viðurkennd sem lýðveldi af alþjóðasamfélaginu, heldur talin sem hluti af Úkraínu. Rússar lýsa yfir stuðningi við sjálfstæði Það gerðist svo síðastliðinn mánu­ dag, þann 21. febrúar, að Vladimir Putin Rússlandsforseti lýsti yfir stuðningi Rússa við sjálfstæði aðskilnaðarsinna í Donbass héraði. Þar með telja Rússar sér væntanlega fært að fara með her inn á svæðið til að verja sjálfstæði Donetsk og Luhansk í Donbass. Þetta útspil Rússa olli þeim viðbrögðum hjá ráðamönnum ESB ríkjanna, Bandaríkjanna, Bretlands og í öðrum NATO ríkjum, að hótað er hörðum viðskiptaþvingunum. Áhugavert verður að sjá hvernig því verður framfylgt í ljósi þess hversu háð fjölmörg Evrópuríki eru gasi frá Rússlandi. Deilurnar um Úkraínu er sprek í kamínu vopnaframleiðenda Í þessu sambandi er fróðlegt að skoða mikilvægi hergagnaframleiðslu í heiminum. Á árinu 2020 seldu 100 stærstu vopnaframleiðslufyrirtækin búnað fyrir 531 milljarð dollara samkvæmt tölum friðarrannsóknar­ stofnunarinnar í Stokkhólmi (SIPR). Þetta samsvarar rúmlega 67 þúsund milljörðum íslenskra króna. Eignir íslensku lífeyrissjóðanna virka eins og fremur fátæklegur vasapeningur í þeim samanburði. Til að tryggja aukna sölu á vopnum er auðvitað „æskilegt“ að komið sé í gang stríði, sem væri helst mögulegt að halda staðbundnu, einhvers staðar í heiminum. Úkraínudeilan er því augljóslega vænt sprek í kamínu vopnaframleiðenda. Ekki síst þar sem Afganistan er ekki lengur spennandi kostur í vopnasölu. Úkraína verulega háð nágrönnum sínum um eldsneyti og raforku Þótt sérfræðingar um hernaðarleg málefni, sem viðrað hafa skoðanir sínar í vestrænum fjölmiðlum, telji yfirburði NATO og Bandaríkjamanna á hreinu ef til átaka kæmi í Úkraínu, þá eru Rússar og forseti Belarus (Hvíta­Rússlands) ekki síður með sjálfsöryggið í lagi. Mögulega hafa þeir ansi mikið til síns máls. Her Úkraínu reiðir sig nefnilega á eldsneyti og smurolíu frá Belarus og Rússlandi. Alexander Lukashenko, forseti Belarus, varaði yfirvöld í Kev í Úkraínu við að yfirvöld í Minsk gætu hæglega stöðvað tannhjól atvinnulífs og hernaðar í Úkraínu einsfaldlega með því að hætta að útvega þeim eldsneyti og smurolíu. Eru einungis sagðir hafa eldsneyti til átaka í 3 til 5 daga Að mati rússneskra sérfræðinga, sem Nezygar Telegram vitnar til, þá duga eldsneytis­ og smurolíubirgðir vélvæddu eininga hersins í Úkraínu aðeins til átaka í þrjá eða fimm daga. Þetta getur vel staðist þar sem framleiðsla Belarus á jarðefna­ eldsneyti er einkum gas, eða 89% af heildarframleiðslunni, en olía er einungis 7,9% og þungt gas 3,1%. Áætluð heildar fram leiðsla Belarus á olíu og gasi á árinu 2021 var 21,5 milljarðar rúmmetra samkvæmt tölum Alþjóða viðskipta­ stofnunarinnar. Þótt Belarus þýði upp á íslensku Hvíta­Rússland, þá hefur margoft komið fram að heimamenn eru síður en svo hrifnir af slíkri þýðingu á nafni lands síns. Hér er því notast við nafnið Belarus. Hyggjast stöðva birgðaflutning „Við munum stöðva alla okkar birgðaflutninga til Úkraínu, ekki bara eldsneyti og smurolíu. Við munum líka hætta að útvega þeim raforku. Ef þeir byrja að berjast gegn okkur eða gegn Rússlandi, þá munum við berjast,“ sagði Lukashenko, forseti Belarus. Viðskiptahindranir virka á báða vegu, segir forseti Úkraínu Forseti Úkraínu, Volodymyr Zelensky, sagði í svari Alexanders Lúka sjenkós þriðjudaginn 8. febrúar að útflutningur Úkraínu til Hvíta­Rússlands væri meiri en innflutningur þaðan. Þess vegna myndi gagnkvæmt viðskiptabann hafa áhrif á fólk í báðum löndum. Þar á hann væntanlega við ýmis hráefni til iðnaðar og ekki síður matvæli og dýrafóður. „Við ættum ekki að fara aftur til steinaldar,“ bætti Zelensky við. FRÉTTASKÝRING Hörður Kristjánsson hk@bondi.is Úkraína, brauðkarfa Evrópu, eilífðarbitbein áhættusækinna fjármála- og hernaðarafla Úkraína, sem löngum hefur verið nefnd brauðkarfa Evrópu. Ræktarland Úkraínu telst vera um 42 milljónir hektara og er afar frjósamt. Þar voru framleiddar um 83,8 milljónir tonna af korni á síðasta ári. Mynd / Ukraine opned for business
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.