Bændablaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 32

Bændablaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 202232 LÍF&STARF Búfjárhald í höfuðborg Íslands: Fjárborg frístundabænda hefur lifað góðu lífi í Reykjavík í rúma hálfa öld Sveinbjörn Guðjohnsen, formaður Fjáreigendafélags Reykjavíkur, segir að skemmtilegur og krútt­ legur frístunda búskap ur sé stundaður í Fjár borg í Reykjavík, rétt austan við Rauða vatn. Þar eru um 40 sjarmerandi hús sem fjáreigendum í Reykja vík var úthlutað af Geir Hallgrímssyni fyrir um 50 árum. Ólafur R. Dýrmunds­ son hefur gert skilmerki­ lega greinargerð fyrir þessum samningi, en í útlistun hans segir m.a.: „Fjárborgarsamning­ urinn 1970 var friðar­ samningur eftir sauðfjár­ stríðið 1962­1970 á milli reykvískra fjáreig enda og ráðamanna Reykja­ víkurborgar. Fjár eig end­ ur höfðu haft aðstöðu í Fjárborg við Breiðholtsveg frá 1959­1968 sem þá var rifin með valdboði. Þeir börðust fyrir athvarfi á nýjum stað og vitnuðu gjarnan í fyrirgreiðslu borgar yfirvalda við hesta­ menn sem voru m.a. að hasla sér völl í Víði dal. Aldalöng hefð var fyrir sauðfjárbúskap í Reykjavík, reyndar fjölbreyti legu búfjárhaldi ásamt túnrækt og matjurta rækt.“ Blanda hesta og fjárbúskapar Hverfið er blanda hesta og fjárbúskapar, einnig má þar finna hænur og kanínur. Að viðhalda þessari gömlu hefð þykir einstakt fyrir sögu Reykjavíkurborgar. Sveinbjörn segir að þarna sé í raun um að ræða hluta af því sem kalla má „græna borg“. „Það er líka merkilegt að það skulu vera u.þ.b. 6.000 hestar í borginni og 3 laxveiðiár. Fjöldi kinda er um 350 þegar mest er. Þetta er ábyggilega mjög sérstakt á heimsvísu fyrir höfuðborg.“ Tekið á móti skólakrökkum Í vor verður hægt að skoða fé, hrúta, lömb og hesta í Fjárborginni. Þá verður einnig hægt að taka á móti skólakrökkum. Einungis þarf að hafa samband við stjórn Fjárborgar í síma eða beint í gegnum heimasíðuna www.fjarborg.is Byggja nýja Fossvallarétt við Sandskeið Sveinbjörn segir að verið sé að vinna að nýrri rétt í staðinn fyrir gömlu Fossvallaréttina sem er úr sér gengin og ónýt. „Í gegnum árin hefur þurft að reka féð yfir Suðurlandsveg með miklum tilfærslum og hættu fyrir umferð. Nýja Fossvallaréttin verður staðsett norður af Suðurlandvegi við Sandskeið á vinstri hönd eftir Lögbergsbrekku þegar ekið er austur. Vonandi verður hægt að hefja vinnu við hana núna í vor. Þetta er byggt á fornum hefðum frá Seltjarnarnesi, Kópavogi og Reykjavík. Beðið er eftir framkvæmdaleyfi frá Kópavogsbæ.“ Þess má geta að fjallkóngur í Fossvallarétt er Ólafur R. Dýrmundsson og réttarstjóri er Ásgrímur Jörundsson. Hjón úr Hafnarfirði una hag sínum vel í Fjárborg Hjónin Jóhanna Eldborg Hilmars­ dóttir og Guðmundur Gunnarsson eru með fjárbúskap í Fjárborg. Þau byrjuðu með fjárbúskap fyrir rúmu ári og eru með 15 kindur. Þar af er hrúturinn Hjörtur, glæsilegur og vel hyrndur. Hjónin búa reyndar í Hafnarfirði en stunda fjárbúskap í Reykjavík í sátt við náttúruna og dýrin. Jóhanna er með meistaranám að baki sem kennari og sjúkraliði og starfar sem leikskólakennari. Guðmund ur er rafvirkjameistari og rafiðnfræðingur. Vinur þeirra, Kristófer Guðmundsson pípu­ lagninga maður, er með þeim hjónum í þessum fjárbúskap. Jónas Guðmundsson byrjaði með stofn frá Seglbúðum Jónas Guðmundsson er einn þeirra sem er með aðstöðu í Fjárborg. Hann er fæddur 1939 og búinn að vera með kindur í yfir 30 ár. Fjöldi fjár þennan veturinn hjá Jónasi er 27 gripir. Jónas byrjaði með lömb frá Seglbúðum í Landbroti úr ræktun Jóns Helgasonar, fyrrum landbúnaðar­, dóms­ og kirkju mála ráðherra. Löngu áður en Jón Helgason varð ráðherra tók hann við búrekstrinum í Seglbúðum eftir óvænt andlát föður síns og stóð þá fyrir sauðfjárræktarbúi móður sinnar. Hann varð síðan bóndi þar sjálfur árið 1959. Þá má til fróðleiks geta þess að Jón var m.a. formaður Búnaðarfélags Íslands á árunum 1991 til 1995. Hestamennska í Fjárborg Anna Katrín Guðmunds­ dóttir er 9 ára hestakona í Fjárborg. Sveinbjörn segir að hún hafi byrjaði mjög ung að mæta í hesthúsið. „Anna var dugleg að hjálpa til, moka og gefa hey. Hún var farin að stjórna sínum hesti sjálf í reiðtúrum 8 ára gömul. Nú á hún tvo hesta. Anna Katrín fór í leitir síðasta haust fyrir Fjárborg og stóð sig mjög vel.“ Sveinbjörn segir að Reykja­ víkur borg hafi lagt mikið í reiðvegi sem er ómetanlegt fyrir hestamenn og svona prinsessur. „Það eru mikil forréttindi fyrir börn í Reykjavík að fá að vera innan um dýr og náttúruna. Þannig verður þetta blómstrandi borg fyrir alla.“ /HKr. Jóhanna Eldborg Hilmarsdóttir unir hag sínum vel í Fjárborg. Hún er með meistaranám að baki sem kennari og sjúkraliði og starfar sem leikskólakennari. Guðmundur Gunnarsson, eiginmaður Jóhönnu. Hann er rafvirkjameistari og rafiðnfræðingur. Jónas Guðmundsson er fæddur 1939 og búinn að vera með kindur í yfir 30 ár. Anna Katrín Guðmundsdóttir, 9 ára, á hestinum sínum Blesa. Myndin er tekin í Rauðhólum. Sveinbjörn Guðjohnsen, formaður Fjáreigendafélags Reykjavíkur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.