Bændablaðið - 24.02.2022, Blaðsíða 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 202232
LÍF&STARF
Búfjárhald í höfuðborg Íslands:
Fjárborg frístundabænda hefur lifað
góðu lífi í Reykjavík í rúma hálfa öld
Sveinbjörn Guðjohnsen, formaður
Fjáreigendafélags Reykjavíkur,
segir að skemmtilegur og krútt
legur frístunda búskap ur
sé stundaður í Fjár borg
í Reykjavík, rétt austan
við Rauða vatn. Þar eru
um 40 sjarmerandi hús
sem fjáreigendum í
Reykja vík var úthlutað
af Geir Hallgrímssyni
fyrir um 50 árum.
Ólafur R. Dýrmunds
son hefur gert skilmerki
lega greinargerð fyrir
þessum samningi, en í
útlistun hans segir m.a.:
„Fjárborgarsamning
urinn 1970 var friðar
samningur eftir sauðfjár
stríðið 19621970 á milli
reykvískra fjáreig enda
og ráðamanna Reykja
víkurborgar. Fjár eig end
ur höfðu haft aðstöðu í
Fjárborg við Breiðholtsveg
frá 19591968 sem þá var
rifin með valdboði. Þeir
börðust fyrir athvarfi á
nýjum stað og vitnuðu
gjarnan í fyrirgreiðslu
borgar yfirvalda við hesta
menn sem voru m.a. að
hasla sér völl í Víði dal.
Aldalöng hefð var fyrir
sauðfjárbúskap í Reykjavík,
reyndar fjölbreyti legu
búfjárhaldi ásamt túnrækt
og matjurta rækt.“
Blanda hesta og
fjárbúskapar
Hverfið er blanda hesta og
fjárbúskapar, einnig má þar
finna hænur og kanínur. Að
viðhalda þessari gömlu hefð
þykir einstakt fyrir sögu
Reykjavíkurborgar.
Sveinbjörn segir að þarna
sé í raun um að ræða hluta af því
sem kalla má „græna borg“.
„Það er líka merkilegt að það
skulu vera u.þ.b. 6.000 hestar í
borginni og 3 laxveiðiár. Fjöldi
kinda er um 350 þegar mest er.
Þetta er ábyggilega mjög sérstakt á
heimsvísu fyrir höfuðborg.“
Tekið á móti skólakrökkum
Í vor verður hægt að skoða fé, hrúta,
lömb og hesta í Fjárborginni. Þá
verður einnig hægt að taka á móti
skólakrökkum. Einungis þarf að hafa
samband við stjórn Fjárborgar í síma
eða beint í gegnum heimasíðuna
www.fjarborg.is
Byggja nýja Fossvallarétt
við Sandskeið
Sveinbjörn segir að verið sé
að vinna að nýrri rétt í staðinn
fyrir gömlu Fossvallaréttina
sem er úr sér gengin og ónýt.
„Í gegnum árin hefur þurft
að reka féð yfir Suðurlandsveg
með miklum tilfærslum og
hættu fyrir umferð. Nýja
Fossvallaréttin verður staðsett
norður af Suðurlandvegi við
Sandskeið á vinstri hönd
eftir Lögbergsbrekku þegar
ekið er austur. Vonandi
verður hægt að hefja vinnu
við hana núna í vor. Þetta er
byggt á fornum hefðum frá
Seltjarnarnesi, Kópavogi og
Reykjavík. Beðið er eftir
framkvæmdaleyfi frá Kópavogsbæ.“
Þess má geta að fjallkóngur
í Fossvallarétt er Ólafur R.
Dýrmundsson og réttarstjóri er
Ásgrímur Jörundsson.
Hjón úr Hafnarfirði una hag
sínum vel í Fjárborg
Hjónin Jóhanna Eldborg Hilmars
dóttir og Guðmundur Gunnarsson
eru með fjárbúskap í Fjárborg. Þau
byrjuðu með fjárbúskap fyrir rúmu
ári og eru með 15 kindur. Þar af
er hrúturinn Hjörtur, glæsilegur og
vel hyrndur. Hjónin búa reyndar í
Hafnarfirði en stunda fjárbúskap
í Reykjavík í sátt við náttúruna
og dýrin.
Jóhanna er með meistaranám
að baki sem kennari og sjúkraliði
og starfar sem leikskólakennari.
Guðmund ur er rafvirkjameistari
og rafiðnfræðingur. Vinur þeirra,
Kristófer Guðmundsson pípu
lagninga maður, er með þeim
hjónum í þessum fjárbúskap.
Jónas Guðmundsson byrjaði
með stofn frá Seglbúðum
Jónas Guðmundsson er einn þeirra
sem er með aðstöðu í Fjárborg.
Hann er fæddur 1939 og búinn að
vera með kindur í yfir 30 ár.
Fjöldi fjár þennan veturinn hjá
Jónasi er 27 gripir. Jónas byrjaði með
lömb frá Seglbúðum í Landbroti
úr ræktun Jóns Helgasonar,
fyrrum landbúnaðar, dóms
og kirkju mála ráðherra.
Löngu áður en Jón
Helgason varð ráðherra
tók hann við búrekstrinum
í Seglbúðum eftir óvænt
andlát föður síns og stóð
þá fyrir sauðfjárræktarbúi
móður sinnar.
Hann varð síðan bóndi
þar sjálfur árið 1959. Þá
má til fróðleiks geta þess
að Jón var m.a. formaður
Búnaðarfélags Íslands á
árunum 1991 til 1995.
Hestamennska í Fjárborg
Anna Katrín Guðmunds
dóttir er 9 ára hestakona í
Fjárborg. Sveinbjörn segir að hún
hafi byrjaði mjög ung að mæta
í hesthúsið.
„Anna var dugleg að hjálpa
til, moka og gefa hey. Hún var
farin að stjórna sínum hesti sjálf í
reiðtúrum 8 ára gömul. Nú á hún
tvo hesta. Anna Katrín fór í leitir
síðasta haust fyrir Fjárborg og stóð
sig mjög vel.“
Sveinbjörn segir að Reykja
víkur borg hafi lagt mikið í reiðvegi
sem er ómetanlegt fyrir hestamenn
og svona prinsessur.
„Það eru mikil forréttindi fyrir
börn í Reykjavík að fá að vera
innan um dýr og náttúruna. Þannig
verður þetta blómstrandi borg
fyrir alla.“ /HKr.
Jóhanna Eldborg Hilmarsdóttir unir hag sínum vel í Fjárborg. Hún er með meistaranám að baki sem
kennari og sjúkraliði og starfar sem leikskólakennari.
Guðmundur Gunnarsson, eiginmaður
Jóhönnu. Hann er rafvirkjameistari og
rafiðnfræðingur.
Jónas Guðmundsson er fæddur 1939 og búinn að vera með kindur í yfir 30 ár.
Anna Katrín Guðmundsdóttir, 9 ára, á hestinum sínum Blesa. Myndin er
tekin í Rauðhólum.
Sveinbjörn Guðjohnsen, formaður Fjáreigendafélags
Reykjavíkur.