Bændablaðið - 24.02.2022, Side 20
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 202220
Harkalega er tekist á um Úkraínu,
brauðkörfu Evrópu, um þessar
mundir. Átökin eiga sér langa
sögu, en núverandi átakaferli má
að nokkru leyti rekja til ásælni
erlendra fjárfesta í ræktarland í
Úkraínu og mögulegrar aðildar
landsins að NATO.
Fjárfestar víða um lönd hafa
verið að átta sig á að einhver besta
trygging fjármagns er í grunni
matvælaframleiðslu heimsins, þ.e. í
ræktarlandinu sjálfu. Fólk mun alltaf
þurfa mat hvernig svo sem ástand
fjármálakerfisins er og pólitískar
sveiflur í heiminum.
Margvíslegar fréttir hafa borist af
uppkaupum á ræktarlandi á liðnum
árum. Eða því sem kallað hefur
verið „Land Grabbing“, það er þegar
peningamenn hrifsa til sín land í
skjóli fjárhagslegrar stöðu sinnar.
Framleiddu nær 84 milljónir
tonna af korni á síðasta ári
Úkraína er sjötta stærsta korn
framleiðsluland heims, þar sem
Bandaríkin eru númer 1, Kína númer
2, Brasilía númer 3, Argentína númer
4 og Mexíkó númer 5 á listanum.
Úkraínumenn framleiða um 2,5
sinnum meira af ýmiss konar korni
en Frakkar og ríflega 8 sinnum meira
en Þjóðverjar.
Samkvæmt tölum matvæla og
landbúnaðarráðuneytis Úkraínu nam
heildar kornuppskera landsins (grain
production) á árinu 2021 samtals
83,8 milljónum tonna. Inni í þeirri
tölu er 32,1 milljón tonn af hveiti
og 40 milljón tonn af korni (maize).
Útflutningur á hveiti frá júlí 2021 fram
í janúar 2022 nam um 17 milljónum
tonna og þar af 11 milljónir tonna til
manneldis og um 5,6 milljónir tonna
af skepnufóðri. Reiknað er með
að útflutningur í febrúar og fram í
júní muni nema um 8,2 milljónum
tonna og þá að stærstum hluta sem
fóður til dýraeldis, eða 6,2 milljónir
tonna. Heildaruppskeran var um 65
milljónir tonna árið 2020. Það er því
augljóslega eftir miklu að slægjast í
úkraínskum landbúnaði.
Mikil ásælni erlendra
stórfyrirtækja
Í Úkraínu hefur ásælni útlendinga
verið gríðarleg, enda þykir ræktarland
þar vera eitt það besta í heimi. Svarta
moldin (Black Soil) er það sem
einkennir ræktarland Úkraínu. Þar er
talið að finna megi um 30% af allri
svartri mold heimsins, eða um 42
milljónir hektara. Þar er jafnframt talin
vera vagga akuryrkjumenningarinnar
í heiminum. Ræktanlegt land á íbúa
er mjög hátt, eða 0,71 hektari sem
er þriðja hæsta hlutfall í heimi. Til
samanburðar er það 0,38 hektarar á
íbúa á Íslandi, 0,16 hektarar í Noregi
og 0,43 hektarar á íbúa í Danmörku.
Ef Krímskaginn, sem Rússar hafa nú
yfirtekið, er dreginn frá, þá telst 69%
Úkraínu vera ræktarland.
Útlendingar geta ekki keypt land
nema í gegnum úkraínska leppa
Eignarhald útlendinga á ræktarlandi
í Úkraínu er mjög falið og slík kaup
eru ekki gerleg nema í gegnum
leppfyrirtæki heimamanna. Hver
einstaklingur í Úkraínu eða fyrir
tæki í þeirra eigu mega eiga allt
að 10.000 hektara land. Enn eru
þar í gildi að nafninu til lög sem
banna jarðakaup útlendinga og þarf
þjóðaratkvæðagreiðslu til að breyta
þeim lögum. Útlendingar mega hins
vegar fjárfesta í fasteignum. Samt er
vitað að farið hefur verið gróflega
í kringum þessi lög á undanförnum
árum og yfirvöld hafa marglofað að
gera eignarhaldið gagnsærra. Öll
jarðaviðskipti yfir 100 hektara að
stærð eiga að fara fram í gegnum
opinberu eignarhaldsskrifstofuna Gos
Zem Agenstvo svo úrbætur ættu að
vera auðveldar.
Ræktarland í Úkraínu notað til að
ýta undir græðgi fjárfesta
Oleksiy Pavlenko, sem var
landbúnaðarráðherra Úkraínu 2015,
sagði í fjölmiðlum í janúar það ár,
að auka mætti kornframleiðsluna
í landinu úr 62 milljónum tonna
árið 2014 í 100 milljón tonn. Slíkt
var þó vart talið framkvæmanlegt
nema með ræktun á erfðabreyttum
kornafbrigðum (GMO). − Það var
eins og við manninn mælt, erlendir
fjárfestar runnu á lyktina, þar á meðal
fyrirtæki eins og Monsanto, sem á
fjölda einkaleyfa á erfðabreyttum
korntegundum og illgresiseyði
(Roundup) sem mikið er notaður
við slíka ræktun. Monsanto var
yfirtekið af þýska efnarisanum Byer í
september 2016 í viðskiptum upp á 66
milljarða dollara sem gerðu það mun
auðveldara að sækjast eftir stuðningi
ESB við að auka ítök í úkraínskum
landbúnaði.
Það jók enn á ásælni fjárfesta að
Heinz Strubenhoff, fjárfestingastjóri
landbúnaðarmála í Úkraínu hjá
Alþjóðabankanum, lýsti því yfir árið
2015 að tími væri til kominn að hefja
einkavæðingu í landbúnaði Úkraínu.
Ráðgjafar hjá France's Credit Agricole
Bank í Úkraínu vöruðu þó við slíku
tali og sögðu að úkraínskir bændur
yrðu þá einungis leiguliðar fjárfesta
í eigin heimalandi.
Samkvæmt tölum hagstofu
Úkraínu námu beinar erlendar
fjárfestingar í landinu frá janúar til júlí
2015 samtals rúmlega 42.851 milljón
dollara, eða sem nam rúmlega 5,5
billjónum íslenskra króna (5,5 milljón
milljónum kr.). Athygli vekur að
hlutfallslega mesta fjármagnið rann
í gegnum Kýpur, eða rúmlega 12.274
milljónir dollara, en Kýpur er einmitt
þekkt skattaskjól áhættufjárfesta af
ýmsum toga sem fela vilja slóð sína.
Talið var að um 1,6 til 2,2 milljónir
hektara ræktarlands í Úkraínu væru þá
komnar í hendur útlendinga.
Braskað með ríkisjarðir og
bullandi svartur markaður
Enn var ýtt undir þessa þróun með
nýjum einkavæðingarlögum á
ríkisjörðum sem sett voru 2018 (On
privatization of state and municipal
property). Þar með voru í raun
allar flóðgáttir opnaðar. Peningar
fóru að hlaðast inn á ríkiseignasjóð
Úkraínu og 2020 var staðan um 3,8
milljarðar UAH (Ukrainian hryvnia).
Þetta jafngildir um 16,7 milljörðum
íslenskra króna. Þá hefur verið í gangi
stór svartamarkaður fyrir jarðasölu í
Úkraínu samkvæmt umfjöllun Cyprus
Mail í desember síðastliðnum. Á árinu
2021 voru seld „fjárhættuspilaleyfi“
(gambling licenses) í jarðaviðskiptum
í Úkraínu fyrir ríflega 1 milljarð UAH,
eða sem svarar um 4,4 milljörðum
íslenskra króna.
Afar viðkvæm staða
Fjárfestar hafa leitað eftir stuðningi
Evrópusambandsins til að tryggja
sína stöðu í Úkraínu og einnig
Bandaríkjanna og Nato. Það er því
ekki skrítið að Rússar og samherjar
þeirra séu órólegir, enda hafa mjög
lengi verið náin tengsl við Úkraínu
sem var hluti af Sovétríkjunum
sálugu. Þetta var einnig þeirra
trygging fyrir fæðuöryggi. Með óskir
núverandi stjórnarherra í Úkraínu
um að landið fái aðild að NATO,
var vakið upp álíka viðkvæmt mál
og að Rússar eða Kínverjar kæmu
sér upp herstöðvum við landamæri
Bandaríkjanna í Mexíkó.
Mikil stríðsæsingarherferð hefur
verið í gangi undanfarnar vikur
í kjölfar þeirrar miklu áherslu að
Úkraína verði gert eitt af aðildar
ríkjum NATO. Rússar tóku þessu
ekki fagnandi og svöruðu með því að
senda mikið herlið að landamærum
Úkraínu. Síðan hefur verið hamrað
á því í vestrænum fjölmiðlum
að innrás Rússa í Úkraínu væri
alveg að bresta á og það nýtt til að
auka hernaðarviðbúnað NATO í
austurhluta Evrópu.
Hættan liggur í mögulegum
aðgerðum í Donbass-héraði
„Það er aðeins ein hætta og hún er sú
að yfirvöld Úkraínu grípi til alvarlegra
aðgerða í Donetsk og Luhansk í
Donbass héraði,“ sagði Alexander
Lukashenko, forseti Belarus, í samtali
við blaðamann Pravda fyrr í þessum
mánuði. Á þessum svæðum er
rússneskumælandi fólk í meirihluta
og hefur fjöldi fólks þar verið að fá
rússnesk vegabréf að undanförnu.
Þá hefur mikill fjöldi líka flúið yfir
til Rússlands vegna hættu á frekari
átökum við stjórnarher Úkraínu.
Borgin Donetsk og héraðið þar
um kring lýsti yfir sjálfstæði 7.
apríl 2014 sem Alþýðulýðveldið
Donetsk og sömu leiðis var lýst yfir
sjálfstæði Luhansk og aðliggjandi
héraðs þann 27. apríl 2014 sem nefnt
er Alþýðu lýðveldið Luhansk. Þessi
svæði hafa þó ekki verið viðurkennd
sem lýðveldi af alþjóðasamfélaginu,
heldur talin sem hluti af Úkraínu.
Rússar lýsa yfir stuðningi
við sjálfstæði
Það gerðist svo síðastliðinn mánu
dag, þann 21. febrúar, að Vladimir
Putin Rússlandsforseti lýsti yfir
stuðningi Rússa við sjálfstæði
aðskilnaðarsinna í Donbass héraði.
Þar með telja Rússar sér væntanlega
fært að fara með her inn á svæðið til að
verja sjálfstæði Donetsk og Luhansk í
Donbass. Þetta útspil Rússa olli þeim
viðbrögðum hjá ráðamönnum ESB
ríkjanna, Bandaríkjanna, Bretlands
og í öðrum NATO ríkjum, að hótað
er hörðum viðskiptaþvingunum.
Áhugavert verður að sjá hvernig því
verður framfylgt í ljósi þess hversu
háð fjölmörg Evrópuríki eru gasi
frá Rússlandi.
Deilurnar um Úkraínu er sprek í
kamínu vopnaframleiðenda
Í þessu sambandi er fróðlegt að skoða
mikilvægi hergagnaframleiðslu í
heiminum. Á árinu 2020 seldu 100
stærstu vopnaframleiðslufyrirtækin
búnað fyrir 531 milljarð dollara
samkvæmt tölum friðarrannsóknar
stofnunarinnar í Stokkhólmi (SIPR).
Þetta samsvarar rúmlega 67 þúsund
milljörðum íslenskra króna. Eignir
íslensku lífeyrissjóðanna virka eins
og fremur fátæklegur vasapeningur
í þeim samanburði. Til að tryggja
aukna sölu á vopnum er auðvitað
„æskilegt“ að komið sé í gang
stríði, sem væri helst mögulegt að
halda staðbundnu, einhvers staðar
í heiminum. Úkraínudeilan er því
augljóslega vænt sprek í kamínu
vopnaframleiðenda. Ekki síst þar
sem Afganistan er ekki lengur
spennandi kostur í vopnasölu.
Úkraína verulega háð
nágrönnum sínum um eldsneyti
og raforku
Þótt sérfræðingar um hernaðarleg
málefni, sem viðrað hafa skoðanir
sínar í vestrænum fjölmiðlum, telji
yfirburði NATO og Bandaríkjamanna
á hreinu ef til átaka kæmi í Úkraínu,
þá eru Rússar og forseti Belarus
(HvítaRússlands) ekki síður með
sjálfsöryggið í lagi. Mögulega
hafa þeir ansi mikið til síns máls.
Her Úkraínu reiðir sig nefnilega á
eldsneyti og smurolíu frá Belarus
og Rússlandi.
Alexander Lukashenko, forseti
Belarus, varaði yfirvöld í Kev í
Úkraínu við að yfirvöld í Minsk
gætu hæglega stöðvað tannhjól
atvinnulífs og hernaðar í Úkraínu
einsfaldlega með því að hætta að
útvega þeim eldsneyti og smurolíu.
Eru einungis sagðir hafa
eldsneyti til átaka í 3 til 5 daga
Að mati rússneskra sérfræðinga,
sem Nezygar Telegram vitnar til, þá
duga eldsneytis og smurolíubirgðir
vélvæddu eininga hersins í Úkraínu
aðeins til átaka í þrjá eða fimm daga.
Þetta getur vel staðist þar sem
framleiðsla Belarus á jarðefna
eldsneyti er einkum gas, eða 89%
af heildarframleiðslunni, en olía
er einungis 7,9% og þungt gas
3,1%. Áætluð heildar fram leiðsla
Belarus á olíu og gasi á árinu
2021 var 21,5 milljarðar rúmmetra
samkvæmt tölum Alþjóða viðskipta
stofnunarinnar.
Þótt Belarus þýði upp á íslensku
HvítaRússland, þá hefur margoft
komið fram að heimamenn eru síður
en svo hrifnir af slíkri þýðingu á
nafni lands síns. Hér er því notast
við nafnið Belarus.
Hyggjast stöðva birgðaflutning
„Við munum stöðva alla okkar
birgðaflutninga til Úkraínu, ekki
bara eldsneyti og smurolíu. Við
munum líka hætta að útvega þeim
raforku. Ef þeir byrja að berjast
gegn okkur eða gegn Rússlandi,
þá munum við berjast,“ sagði
Lukashenko, forseti Belarus.
Viðskiptahindranir virka á báða
vegu, segir forseti Úkraínu
Forseti Úkraínu, Volodymyr
Zelensky, sagði í svari Alexanders
Lúka sjenkós þriðjudaginn 8.
febrúar að útflutningur Úkraínu
til HvítaRússlands væri meiri en
innflutningur þaðan. Þess vegna
myndi gagnkvæmt viðskiptabann
hafa áhrif á fólk í báðum löndum. Þar
á hann væntanlega við ýmis hráefni
til iðnaðar og ekki síður matvæli og
dýrafóður.
„Við ættum ekki að fara aftur til
steinaldar,“ bætti Zelensky við.
FRÉTTASKÝRING
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Úkraína, brauðkarfa Evrópu, eilífðarbitbein
áhættusækinna fjármála- og hernaðarafla
Úkraína, sem löngum hefur verið nefnd brauðkarfa Evrópu.
Ræktarland Úkraínu telst vera um 42 milljónir hektara og er afar frjósamt.
Þar voru framleiddar um 83,8 milljónir tonna af korni á síðasta ári.
Mynd / Ukraine opned for business