Bændablaðið - 24.02.2022, Page 57
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 2022 57
Mest lesni prentmiðillinn á landsbyggðinni
– ár eftir ár – Hvar auglýsir þú?
4,9%
8,1%
18,8%
30,1%
27,2%
0,0%
5,0%
10,0%
15,0%
20,0%
25,0%
30,0%
35,0%
Viðskiptablaðið Stundin Morgunblaðið Fréttablaðið Bændablaðið
Meðallestur prentmiðla
á landinu öllu
Samkvæmt prentmiðlamælingu Gallup
á fjórða ársfjórðungi 2021
4,9%
8,1%
18,8%
27,0%
41,9%
0,0%
5,0%
10,0%
15,0%
20,0%
25,0%
30,0%
35,0%
40,0%
45,0%
Viðskiptablaðið Stundin Morgunblaðið Fréttablaðið Bændablaðið
Meðallestur prentmiðla
á landsbyggðinni
Samkvæmt prentmiðlamælingu Gallup
á fjórða ársfjórðungi 2021
Stuðningur við skógrækt félaga og samtaka
STYRKIR TIL LOFTSLAGSVERKEFNA:
UPPLÝSINGAR OG UMSÓKNIR:
www.skogur.is/vorvidur
UMSÓKNARFRESTUR TIL 1. MARS!
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
Vorvidur-auglysing_2022_bbl.pdf 1 2.2.2022 08:41:29
Gallup á Íslandi gerði könnun meðal
Kópavogsbúa dagana 17. desember
2021–26. janúar 2022. Það voru
íbúasamtökin „Vinir Kópavogs“
sem létu framkvæma hana og
kostuðu að öllu leyti.
Niðurstöðurnar voru sláandi
og þvert á það sem bæjarstjórn
og bæjarstjóri hafa ítrekað látið
í veðri vaka. Þannig lýstu 71,3%
Kópavogsbúa sig hlynnta því að
fram færi hönnunarsamkeppni vegna
skipulags í miðbæ Kópavogs. 23,3%
tóku ekki afstöðu og 5,4% bæjarbúa
vildu ekki samkeppni, en það var
einmitt sú leið sem bæjarstjórn ákvað
að fara.
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti
deiliskipulagið með 6 atkvæðum
gegn 5 þann 20. desember 2021.
Samkvæmt könnun Gallup eru 5,4%
bæjarbúa hlynnt þeirri leið sem
bæjarstjórn samþykkti að fara. Hér
er um að ræða skipulag á einhverju
mikilvægasta og dýrmætasta svæði
höfuðborgarsvæðisins.
Ljóst er af könnuninni að
Kópavogsbúar vilja sjá aðra valkosti
en þá sem Skipulagsstofnun kallar
„fordæmalausa þéttingu byggðar á
Íslandi“. Kópavogsbúar vilja lifandi
og heillandi miðbæ sem gegnir
lykilhlutverki í bæjarfélaginu á sviði
samgangna, þjónustu, verslunar,
atvinnulífs og mannlífs í bænum.
Valdníðsla er orð sem hér á
vel við og sem dæmi má nefna að
framkvæmdir sem nú á að ráðast í
munu óhjákvæmilega hafa í för með
sér skerðingu á lögbundnum rétti
fatlaðra íbúa í miðbæ Kópavogs til
aðgengis að heimilum sínum.
Kópavogsbúar spyrja sig nú: ,,Hvað
gengur bæjaryfirvöldum til?“ ,,Hvaða
hagsmunir liggja hér að baki?“
Vinir Kópavogs leggja áherslu á
að í Kópavogi verði skipulag byggðar
unnið í samráði og samtali við
bæjarbúa, og að horfið verði frá þeim
ljóta vana að hlusta fyrst og fremst
á sjónarmið aðila sem hafa (ofsa)
gróðasjónarmið í fyrirrúmi. Skipulag
á að mynda umgjörð um mannlíf,
ekki bara núverandi kynslóða, heldur
framtíðarkynslóða Kópavogsbúa.
Vinir Kópavogs eru sannarlega ekki
mótfallnir framkvæmdum í miðbæ
Kópavogs, það er löngu kominn tími
á að hann fái þá reisn sem hann á
skilið. Vinir Kópavogs krefjast hins
vegar þess að vandað verði til verka
við slíkar framkvæmdir.
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða
í febrúar 2018 að yfirstefna
bæjarfélagsins væri: „Hlutverk
Kópavogsbæjar er að tryggja lífsgæði
íbúanna með góðri og fjölbreyttri
þjónustu.
Grunnreglur bæjarins eru skýrar
og miða að því að allir hafi tækifæri
til áhrifa. Kópavogur leggur áherslu
á gott mannlíf, skilvirkan og ábyrgan
rekstur ásamt öflugu atvinnulífi.“
Svo mörg voru þau orð.
Jóhann Már
Sigurbjörnsson,
kerfisstjóri.
LESENDARÝNI
Frá Vinum Kópavogs