Bændablaðið - 24.02.2022, Qupperneq 55
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 2022 55
Landgræðslunni barst opið bréf
frá Ástu F. Flosadóttur sem birt
var á Vísi þann 2. febrúar 2022
undir heitinu „Kæri Jón“ Opið
bréf til Landgræðslunnar. Bréfið
fékk Ásta einnig birt í Bænda
blaðinu 10. febrúar. Tilefni
skrifa Ástu eru viðbrögð við
bréfi Landgræðslunnar þar sem
tilkynnt er að styrkir til verkefnis
ins Bændur græða landið verði
lækkaðir vegna 100% hækkunar
áburðarverðs.
Ásta fer fögrum orðum um verk
efnið Bændur græða landið og segir
m.a.: „Og árangurinn ótvíræður,
melar gróa, rofabörðum er lokað,
afréttir bera meiri beit.“
Stór hluti af vinnu við endur
heimt vistkerfa á Íslandi byggir á
því að grípa inn í þá ferla sem eru
hamlandi fyrir framgang þeirra. Í
hnignuðum eða hrundum vistkerfum
er lítið framboð af næringarefnum,
og þá sérstaklega köfnunarefnis og
fosfórs, eitt af þeim atriðum sem
geta hamlað framvindu hvað mest.
Aðrir þættir geta t.d. verið fræfram
boð, veðurfar, ósjálfbær landnýting
og náttúruvá.
Stærstu verkefni Landgræðsl
unnar sem hafa endurheimt vist
kerfa að meginmarkmiði eru Bændur
græða landið, Landbótasjóður,
Umsjón landgræðslusvæða auk
endurheimtar votlendis og birki
skóga.
Verkefnið Bændur græða landið
er samvinnuverkefni Landgræðsl
unnar og landeigenda um upp
græðslu heimalanda. Tilgangur
þess er að styrkja landeigendur til
landgræðslu á jörðum sínum, stöðva
rof, þekja land gróðri og gera það
nothæft á ný til landbúnaðar eða
annarra nota. Verkefnið hófst árið
1990. Landbótasjóður er sjóður á
vegum Landgræðslunnar sem leggur
honum til fé til úthlutunar, auk þess
sem aðrir aðilar geta lagt sjóðnum
til fjármuni. Landgræðslan úthlutar
árlega styrkjum úr sjóðnum, en til
gangur þeirra er að færa ábyrgð og
framkvæmd landgræðsluverkefna
heim í héruð og veita landeigendum,
sveitarfélögum, félagasamtökum og
öðrum umráðahöfum lands, styrki til
landbótaverkefna.
Verkefnin Bændur græða landið
(BGL) og Landbótasjóður (LBS) eru
hátt í 600 talsins, flest unnin af sauð
fjárbændum. Algengasta aðgerðin í
þessum verkefnum er styrking gróð
urs með tilbúnum áburði því auð
veldara er að koma honum á erfitt
land. Svæðin sem unnið er á, eru
ýmist friðuð eða nýtt til hóflegrar
beitar þannig að svæðin styrkjast
og batna sem beitilönd. Ávinningur
landgræðslu er margþættur s.s. endur
heimt náttúrulegra vistkerfa, aukinn
gróður sem bindur kolefni í jarðvegi,
styrking líffræðilegs fjölbreytileika,
bættur vatnsbúskapur og auknir
nýtingarmöguleikar landsins til
framtíðar.
Nú liggur fyrir að frá árinu 2021
hefur verð á algengum áburðar
tegundum til landgræðslu hækk
að um 102115% eftir söluaðilum
sem er verðbreyting án fordæma
hér á landi, auk þess sem framboð
er takmarkað. Framlag ríkisins til
verkefna Landgræðslunnar hefur
hækkað á undanförnum árum og er
það vel. Hins vegar er staðan þannig
að sú hækkun heldur ekki í við þessa
miklu hækkun á áburði.
Verð á tilbúnum áburði hefur
mikil áhrif á umfang verkefna
Landgræðslunnar og samstarfsað
ila. Vegna slæmrar stöðu sauðfjár
ræktarinnar er bagalegt að geta ekki
haldið óbreyttu umfangi í þessum
mikilvægu samstarfsverkefnum
sem skilað hafa frábærum árangri
á undanförnum áratugum.
Landgræðslan hefur ákveðið að
grípa til mótvægisaðgerða til að
draga úr áhrifum áburðarverðshækk
ana á helstu verkefni.
Landgræðslan eykur áherslu á
notkun lífræns áburðar í öllum verk
efnum og vekur sérstaka athygli á
lífrænni leið í BGL sem gæti verið
valmöguleiki fyrir þá þátttakendur
sem hafa aðgang að lífrænum áburði.
Landgræðslan færir fjármuni úr
öðrum verkefnum til verkefnanna
BGL og LBS en sú aukning í fram
lögum nær þó ekki að halda í við
verðhækkanir og því hækkar endur
greiðsla á hvert tonn í BGL aðeins
um 80% á milli ára.
Landgræðslan mun einnig nota
minna magn áburðarefna á flatar
einingu í nokkrum stærri verkefnum.
Þannig má auka það flatarmál sem
næst að vinna á og styrkja svæði
sem annars hefði ekki verið hægt
að fylgja eftir. Árlegt heildarumfang
aðgerða í landgræðsluverkefnum er
um 20 þúsund hektarar og með því
að nota 10% minni áburð á hvern
hektara má vinna á 2.000 hekturum
til viðbótar.
Þessi listi yfir mótvægisaðgerðir
er ekki tæmandi og Landgræðslan
hvetur samstarfsaðila til að hafa
samband við héraðsfulltrúa stofn
unarinnar um ráðgjöf og vinna til
lögur að lausnum sem henta hverj
um og einum til að draga sem mest
úr högginu.
Að lokum, ágæta Ásta, tel ég rétt
að svara tvennu í greininni þinni:
Í fyrsta lagi fullyrðingu um að
ekkert samráð hafi verið við bænd
ur um vinnslu reglugerðar um sjálf
bæra landnýtingu. Reglugerðardrögin
voru rædd á fjölmörgum fundum með
Landssamtökum sauðfjárbænda og
Bændasamtaka Íslands auk þess
sem drögin fóru í Samráðsgátt.
Nú er unnið að endurbótum vegna
athugasemda og drögin munu fara
aftur í Samráðsgáttina. Samráðsgáttin
er góð leið til að ná til allra lands
manna. Við erum öll, allir landsmenn,
gæslumenn lands á Íslandi.
Í öðru lagi eftirfarandi texti í grein
þinni: „Við héldum að sambandið
einkenndist af samvinnu og gagn
kvæmri virðingu.
En svo fara að renna á bóndann
tvær grímur, er jafnræði í þessu
sambandi? Jöfn og sanngjörn verka
skipting? Kostnaðarskipting rétt? Eru
störf bænda og framlag í sambandinu
metin að verðleikum? Eða er makker
inn farinn að taka okkur sem sjálf
sögðum hlut, má bjóða bændum hvað
sem er? Erum við stödd í einhvers
konar ofbeldissambandi, þrælahaldi,
þar sem þarfir okkar eru ekki virtar,
vaðið er yfir okkur á skítugum skón
um, talað niður til okkar?“
Verkefnið Bændur græða landið
er samstarfsverkefni þar sem hlut
verk Landgræðslunnar er að veita
ráðgjöf og styrki í samræmi við þær
reglur sem settar eru hverju sinni og
fram koma í auglýsingu. Við skrá
um aðgerðir og leggjum mat á hvort
styrkir hafi verið nýttir eins og til
stóð. Landeigendur sækja um að vera
með í BGL, enginn er neyddur til að
taka við styrk til að bæta eigið land
og gera það betra.
Ég er sammála því sem fram
kemur í grein þinni – árangur verk
efnanna er ótvíræður og ég vona
svo sannarlega að þið og aðrir góðir
BGL bændur sjái sér hag í að halda
áfram að bæta landið okkar, slíkt
er samfélagi okkar og framtíð þess
til góða.
Árni Bragason,
landgræðslustjóri.
LESENDARÝNI
Hækkandi áburðarverð og landgræðsla – hvað er til ráða?
Árni Bragason. Daðastaðir í Núpasveit. Frábært starf landgræðsluverðlaunahafanna Gunnars
Einarssonar og Guðrúnar S. Kristjánsdóttur.
Rúko leitar að öflugum vélvirkja á verkstæði fyrirtækisins.
Leitað er að vönum vélvirkja með góða reynslu af viðgerðum
og standsetningu á vélum og tækjum. Fjölbreytt verkefni í góðu
starfsumhverfi. Góð laun í boði fyrir réttan starfskraft.
ruko@ruko.is | |ruko.is 534 6050
V
ÉL
V
IR
K
I
Ó
S
K
A
S
T
V
ÉL
V
IR
K
I
Ó
S
K
A
S
T
V
ÉL
V
IR
K
I
Ó
S
K
A
S
T
V
ÉL
V
IR
K
I
Ó
S
K
A
S
T
Vinnuvélar
Vélvirki á verkstæði
/ experienced mechanic
Helstu verkefni og ábyrgð
– Viðgerðir og viðhald á vélum og tækjum
– Standsetning nýrra véla
Menntunar- og hæfniskröfur
– Iðnmenntun
– Reynsla af störfum á verkstæði
Rúko er umboðs- og þjónustuaðili fyrir fjölda þekktra vörumerkja.
Þar má helst nefna vélar og krana frá Liebherr, Yanmar smágröfur,
Himoinsa rafstöðvar, Kaeser loftpressur og Weber jarðvegsþjöppur.
Vantar fyrir traustan kaupanda,
vel uppbyggða jörð sem gæti
hentað fyrir ferðaþjónustu,
helst á Suðurlandi og/eða á
Vesturlandi.
Vestfirðir gætu komið til greina.
Jörðin er m.a. hugsuð fyrir
hestatengda ferðaþjónustu.
Góður kostur er að þar hafi verið
rekin ferðaþjónusta.
Jörð án mikils húsakosts kemur
einnig til greina. Heitt vatn góður
kostur en ekki skilyrði.
Góð nettenging nauðsynleg.
Nánari upplýsingar gefur Magnús Leópoldsson
í síma 892 6000
eða á netfangið magnus@fasteignamidstodin.is