Bændablaðið - 24.02.2022, Side 27
Bændablaðið | Fimmtudagur 24. febrúar 2022 27
15% AFSLÁTTUR Í FORSÖLU
8.542 kr. pr./bréf
9.324 kr. pr./bréf
BETRI ÁRANGUR MEÐ
JOSILAC íblöndunarefni
Öll verð eru án vsk.
Verð miðast við bréf (150g)
Eykur fóðurgæði Betri inntaka Meiri meltanleiki Heilbrigðari kýr Betri afkoma
Gildir til 31. mars
JOSILAC Ferm - 9.324 kr. - 15% afsl. 7.925 kr.
JOSILAC Classic - 8.542 kr. - 15% afsl. 7.260 kr.
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
stalogstansar.is
VARAHLUTIR Í
KERRUR
2012
2021
köfnunarefni sem nýtist plöntunum.
Við nýtum einnig hænsnaskít frá
lífræna eggjabúinu í Miklaholtshelli.
Það náttúrlega segir sig sjálft að
því minna af áburðarefnum sem þú
berð á því minni uppskeru færðu,
uppskeran er að meðaltali 25 pró-
sent minni en áður en við fórum í
aðlögun. Í dag fáum við að með-
altali 15 rúllur á hektara en það er
breytilegt á milli túna og ára,“ segir
Rúnar Geir.
Hann segir aðbúnaðarkröfurnar
vera meiri í lífrænum landbúnaði.
Felst það aðallega í því að hver
gripur þarf meira rými. Nýja fjós-
ið er hins vegar mjög rúmt og því
var mjög lítið sem breyttist hvað
varðar fjölda gripa til dæmis. Þegar
aðlögunin hófst máttu 70 kýr vera á
kúasvæðinu í staðinn fyrir 72. Kröfur
um útivist eru líka meiri, gripirnir
eiga í raun að vera eins mikið úti á
beit og mögulegt er. Verandi með
þetta margar mjólkandi kýr og bara
einn mjaltaþjón, þá þarf ekki mikið
til að mjaltalistinn safnist upp. Við
erum reyndar búin að leysa það mál
núna, með því að setja upp annan
mjaltaþjón. Í kjölfarið gerðum við
smá breytingar í fjósinu þannig að
kúasvæðið rúmar núna 89 kýr.
Við höfum alltaf sett alla naut-
kálfa á, sem hafa verið aldnir upp
í gamla fjósinu. Við ákváðum hins
vegar að sleppa því í bili að sækja
um lífræna vottun á nautum vegna
þess að þeir eru á steinbitum en sam-
kvæmt lífrænu reglugerðinni verður
í það minnsta helmingur gólfflatar-
ins að vera heill. Við munum leysa
það mál í framtíðinni með því að
hafa hálm undir þeim gripum sem
þar verða og lögum gamla fjósið
þannig að það uppfyllir aðbúnað-
arreglur fyrir lífrænt vottað naut-
gripaeldi.“
Tilraunir með kjötmjöl
Fjölskyldan í Eyði-Sandvík á einnig
jörðina Miðhjáleigu í Austur-
Landeyjum. „Ræktað land þar er
núna 80 hektarar og verður meira
land tekið undir til ræktunar á næstu
árum. Við settum þá jörð í aðlögun
árið 2021, þar sem við erum með
akuryrkjuna ásamt því að rækta líka
úrvals gróffóður. Framtíðarhugsunin
er að setja þar upp litla grasköggla-
verksmiðju. Nautaeldið okkar mun
síðar færast þangað.
Við höfum undanfarið verið að
prófa að notast við kjötmjöl sem
áburðargjafa við kornræktunina í
Miðhjáleigu sem hefur bara komið
nokkuð vel út. Við ætlum að halda
áfram að gera tilraunir við notkun á
kjötmjöli,“ segir Rúnar Geir.
Eiginlega engir gallar
„Við lítum svo á að það að vera í
lífrænni ræktun er að stærstum hluta
hugsjónastarf,“ segir Rúnar Geir,
en bendir þó á að það sé borgað
35 prósent álag ofan
á afurðastöðvarverð
fyrir lífrænu mjólkina.
„En eins og staðan er
núna þá tekur Biobú
um fjórðung af mjólk-
inni okkar. Þeir eru að
bæta við tækjabúnaði
svo þeir hafi getu til
að taka við og vinna
úr meiri mjólk.“
Rúnar Geir segir
að hugmyndafræðin
snúist í grunninn um
að stunda landbúnað
án notkunar á kemísk-
um áburði eða notk-
unar á varnarefnum
sem sé óneitanlega
betra fyrir umhverfið.
„Nýta þarf allan þann
lífræna úrgang sem
fellur til á staðnum
eða nærumhverfinu
og hafa sem mest af
heimafengnu fóðri.
Betri aðbúnaður er
fyrir dýrin, þá eink-
um meira pláss og
meiri útivist eins og
var algengt í íslenskum landbún-
aði hér á árum áður. Í rauninni erum
við að fara aftur nær upprunanum
þó svo við séum ekki farin aftur í
torfkofann.
Við sjáum eiginlega enga galla
við þessar breytingar, en það er þó
meiri vinna sem fylgir sem felst aðal-
lega í dreifingu á lífrænum áburði og
að vera duglegri í endurræktuninni,
vera öflugri í sáðskiptaræktun sem
ýtir undir frjósemi jarðvegsins og
duglegir að kalka og lofta túnin.
Meðalnytin minnkar líka þar
sem við fóðrum núna að mestu á
gróffóðri. Það er svo líka talsvert
meira skýrsluhald og pappírsvinna.
Aðalforsendan fyrir því að við gátum
farið í þetta er að við höfum nóg
af ræktarlandi enda erum við með
tvær jarðir fyrir þetta til að fóðra
allan bústofninn sem telur núna 80
mjólkurkýr, 120 aðrir nautgripir
í uppeldi, 20 hross, 14 kindur og
nokkrar hænur,“ segir hann.
Strangar reglur um lyfjagjöf
Notkun lyfja er strangari í lífrænt
vottuðum landbúnaði, að sögn
Rúnars, og notkun sýklalyfja sem
fyrirbyggjandi meðhöndlun er
óheimill. „Ef gripur veikist og þarf
á lyfjameðhöndlun að halda þá fær
hann viðeigandi meðferð enda er
heilsa og vellíðan dýranna sett í
fyrsta sæti. Ef þörf er á notkun sýkla-
lyfja þá er tvöfalt lengri útskolunar-
tími samanborið við í hefðbundnum
landbúnaði. Ef það kemur fyrir að
gripur þarf oftar en einu sinni sýkla-
lyfjameðhöndlun innan sama afurða-
skeiðs, þá dettur viðkomandi út sem
lífrænt vottaður gripur og er óheimilt
að selja afurðir af þeim grip.
Notkun hormóna eða áþekkra
efna í því skyni að stjórna æxlun
– eins og að framkalla eða stjórna
gangmáli – er bönnuð.
Við gerum einfaldlega allt sem
hægt er til að halda gripunum heil-
brigðum og að þeim líði sem best;
halda nærumhverfi þeirra hreinu,
gefa þeim gott fóður sem uppfyll-
ir allar þeirra næringarefnaþarfir,
tryggja þeim næga hreyfingu í þeirri
von að ekki verði þörf á neinni með-
höndlun.“
Björt framtíð fyrir
lífrænt vottaðan landbúnað
Rúnar Geir telur að lífrænt vottaður
landbúnaður eigi sér bjarta framtíð
hér á landi. „Neytendur sem vilja
slíkar vörur sækja hægt og rólega í
sig veðrið og þurfa bændur að vera
tilbúnir að svara því kalli. Núna í
dag er eftirspurn eftir lífrænt vott-
uðu grænmeti að aukast og þegar
neytendur fara að kynna sér betur líf-
ræna ræktun þá erum við viss um að
meiri eftirspurn mun verða eftir bæði
lífrænt vottuðum mjólkurvörum og
kjöti,“ segir hann.
Spurður um muninn á ferlinu
fyrir sauðfjárbændur og kúabænd-
ur, segir Rúnar Geir að hann sé ekki
mikill. „Þetta er í raun sambærilegt,
sauðféð þarf meira pláss. Það sem
hefur verið erfiðast að tækla er
krafan um að helmingurinn af gólf-
fletinum þurfi að vera heill, en flest
fjárhús hafa annaðhvort málmristar
eða grindargólf. Nokkrir bændur
hafa leyst það mál og munu fleiri
eflaust gerast lífrænt vottaðir sauð-
fjárbændur með tímanum.“ /smh
Kýr á beit í Eyði-Sandvík. Kröfur um útivist í lífrænum
kúabúskap eru miklar. Gripirnir eiga í raun að vera
eins mikið úti á beit og mögulegt er.