Milli mála - 2021, Blaðsíða 17
TÖLVUTENGD TUNGUMÁLAKENNSLA
16 Milli mála 13/2021
(LMOOC þegar tungumál eiga í hlut)1. Hugtakið fjarnám er oft
notað sem samheiti yfir margs konar nám, s.s. blandað fjar- og stað-
nám, fjarnám með kennara, eiginlegt sjálfsnám gegnum tölvur, eða stýrt
sjálfsnám, en þessar myndir náms eru ólíkar og krefjast mismunandi
kennslunálgana. Í þessari grein er hugtakið blandað nám notað um
kennslu að hluta með aðstoð tækni en að hluta með kennara, oft í
staðnámi. Fjarnám með kennara er, eins og nafnið bendir til, stutt af
kennara. Eiginlegt sjálfsnám fer fram í annars konar námsumhverfi,
án stuðnings kennara eða samnemenda og reynir þá meira á hvata
nemandans sjálfs til námsins. Í sjálfsnámi þarf inntak námsefnisins
og uppbygging kennslunnar að styðja við þann hvata til að auka
líkur á því að nemandinn haldi sig við námið, en sjálfsnám byggt á
viðeigandi kennslufræði fyrir markhópinn er góður kostur fyrir
nám í fámennismálum (tungumál með fáa málhafa) í strjálbýli eins
og þar sem erfitt er að koma við staðnámi vegna fólksfæðar. Þetta á
við um alls konar tungumálanám, s.s. móðurmál jafnt sem erfðar-
mál (e. heritage languages) og erlend mál.
Stundum hefur heyrst að óþarfi sé að byggja upp sérstakt fjar-
nám í tungumálum því mikið efni á mismunandi tungumálum sé
aðgengilegt á netinu. Vissulega er það rétt að aðgengi að frum-
gögnum á ýmsum tungumálum hefur aukist en að sama skapi
mætti þá segja að ekki þurfi að kenna sagnfræði því það sé til svo
mikið efni um fortíðina á netinu. Kennarar og nemendur vita að
námsefni nægir ekki alltaf eitt og sér til að nám leiði til aukinnar
þekkingar eða færni í tungumáli. Og hér erum við hugsanlega
komin að kjarna málsins, þ.e. að kennsla eða handleiðsla, hvort sem
hún er á netinu eða ekki, felst fyrst og fremst í því að greiða fyrir
góðum árangri með vali á viðeigandi námsefni, framreiðslu efnisins
þannig að það gagnist nemendum við námið, og aðstoði nemendur
við túlkun og tileinkun viðfangsefnisins. Þegar tungumál eiga í
hlut þarf að styðja nemandann í að tileinka sér málið með því að
meta málfærni við upphaf náms, setja upp námsáætlun, velja náms-
viðföng sem henta færnistigi, aldri og áhuga nemandans og tilgangi
námsins, setja skýr markmið og marka leiðir til að ná þeim mark-
miðum, þ.e. stýra nemandanum gegnum námið til að greiða fyrir
1 Lederman, „Why MOOCS didn’t work“.
10.33112/millimala.13.2