Milli mála - 2021, Blaðsíða 123
MILLI MÁLA
122 Milli mála 13/2021
Einnig eru orðapörin flokkuð eftir merkingarlegum venslum kjarna-
orðanna (Burger 2015, 55; García-Page Sánchez 2008, 332–334;
Luque Nada 2017). Hér verða helstu flokkunum gerð skil og dæmi
gefin úr málunum þremur. Þess ber að geta að í þýsku hefur mikið
verið rannsakað á þessu sviði og fylgdu spænskir fræðimenn fljót-
lega í kjölfarið. Rannsóknir á orðapörum í íslensku eiga sér hins
vegar ekki ýkja langa sögu.
Víða var leitað fanga til að viða að sér dæmum um orðapör, m.a.
úr helstu orðabókum viðkomandi tungumála, sögulegum orðabók-
um, orðsifjabókum og ýmsum gagnagrunnum sem eru aðgengi-
legir á íslenskum, spænskum og þýskum vefsíðum, eða í seðla-
söfnum og stofnunum þar sem stundaðar eru rannsóknir í orð- og
orðasambandafræði.8
3.1. Flokkun eftir byggingarlegum einkennum: Tengiorð og
orðflokkar
Eitt helsta einkenni orðaparanna eru smáorð sem tengja saman
kjarnaorðin í orðasambandinu en helstu tengiorðin (to) eru samteng-
ingar (st) og forsetningar (fs). Algengasta tengiorðið er samtengingin
og (t.d. börn og burir, í þolfalli börn og buru) en einnig koma víða fyrir
samtengingin eða (t.d. allt eða ekkert) sem, eins og samtengingin og, er
einyrt, og hinar fleiryrtu, eða fleyguðu, samtengingar annaðhvort …
eða (t.d. segja annaðhvort af eða á) og hvorki … né (t.d. hvorki fugl né
fiskur). Í spænsku og þýsku koma sömu samtengingar við sögu: y (t.d.
dares y tomares), o, o… o, ni… ni og und, oder, entweder … oder, weder
… noch (t.d. weder Fisch noch Fleisch).
Þá eru forsetningar einnig nokkuð algeng tengiorð eins og áður
sagði. Má hér til að mynda nefna orðapörin skref fyrir skref og trekk í
trekk. Jafngildi sömu forsetninga koma fyrir í orðapörum í spænsku
(día a día, poco a poco, codo con codo) og þýsku (Fragen über Fragen, Jahr
um Jahr, Tag für Tag) eins og vikið verður að síðar.
Kjarnaorðin eru í flestum tilfellum nafnorð og verður bygging
orðaparsins þá með þessum hætti: nafnorð + tengiorð + nafnorð
([no+to+no]). Önnur kjarnaorð heyra til orðflokka eins og lýsingar-
8 Höfundar þakka Magnúsi Sigurðssyni fyrir greinargóðar og gagnlegar ábendingar.
KURZ UND BÜNDIG , RASO Y CORTO EÐA STUTT OG LAGGOTT
10.33112/millimala.13.5