Milli mála - 2021, Blaðsíða 124
MILLI MÁLA
Milli mála 13/2021 123
orða (lýsingarorð + tengiorð + lýsingarorð [lo+to+lo]), atviksorða
(atviksorð + tengiorð + atviksorð [ao+to+ao]), sagnorða (sagnorð +
tengiorð + sagnorð [so+to+so]) og fornafna (fornafn + tengiorð +
fornafn [fn+to+fn]).
Hér á eftir fara nokkur dæmi um íslensk, spænsk og þýsk orða-
pör úr þessum flokki.
3.1.1. Flokkun eftir tengiorðum og orðflokkum: Orðapör með samtengingum
Eins og áður sagði eru helstu samtengingarnar sem koma fyrir í
orðapörunum í íslensku: og, eða, annaðhvort … eða, hvorki … né, í
spænsku: y, o, o … o, ni … ni og í þýsku eru þau: und, oder, entweder
… oder, weder … noch. Orðin tengja alla jafna saman orð úr sama
orðflokki þó að ekki sé það algilt.
3.1.1.1. Nafnorð
Hér á eftir fara orðapör þar sem kjarnaorðin tvö eru nafnorð.
Bygging orðaparanna er eftirfarandi nafnorð + samtenging + nafn-
orð eða [no+st+no].
Íslenska: ár og dagur, betl og basl, bull og þvættingur, bændur og búalið,
Davíð og Golíat, eldur og eimyrja, eymd og volæði, friður og ró, glaumur
og gleði, háð og spott, himinn og haf, happa og glappa, hvorki fugl né
fiskur, já og amen, Jón og séra Jón, láð og lögur, líf og limir, lof og dýrð,
lof eða last, loft og láð, lon og don, lög og regla, ný og nið, ótti og skelfing,
Pétur og Páll, ráð og dáð, Rómeó og Júlía, sníkjur og snapir, sorg og sút,
sultur og seyra, svik og prettir, hvorki tangur né tetur, tvist og bast, tögl og
hagldir, undur og stórmerki, vein og kvein, ær og kýr, æra og trú.
Spænska: alfa y omega (‚alfa og ómega‘), (coger) carretera y manta
(‚halda í ferðalag‘), dares y tomares (,eiga orðaskipti‘), David y Goliat,
(llamar) al pan, pan y al vino, vino (‚vera hreinskilinn‘), los pros y los
contras (‚kostir og gallar‘), uña y mugre (‚vera samrýndir‘), (negar) el
pan y la sal (,meta ekki að verðleikum‘), ni paular ni maular (,hvorki
æmta né skræmta‘), ni rey ni roque (‚enginn, ekki neitt‘), noche y día
(‚dagur og nótt‘), (contigo) pan y cebolla (,gegnum súrt og sætt‘), pan
ERLA ERLENDSDÓTTIR OG ODDNÝ G. SVERRISDÓTTIR