Milli mála - 2021, Blaðsíða 122
MILLI MÁLA
Milli mála 13/2021 121
hvort orðtakseðli er fyrir hendi, Paarformel, eða ekki, Wortpaar
(Burger 2015, 55). Enn aðrir fræðimenn gera greinarmun á heit-
unum Zwillingsformel, Paarformel og Wortpaar (sjá Stöhr 2007). Hér
verður ekki farið út í slíkan mun á orðapörum.
Orðtakseðli orðapara getur verið mismunandi. Til eru orðapör
sem ekki hafa orðtakseðli (þ.e. eru ekki ídíómatísk) og má þar nefna
orðasamböndin dick und fett (,þéttur og feitur‘) í þýsku, padres e hijos
(‚foreldrar og börn‘) í spænsku og stór og feitur í íslensku. Orðapar í
þýsku sem að hluta til er með orðtakseðli er t.d. dæmis klipp und klar
(‚skýrt og skorinort‘), í spænsku (perder) el perro y la cadena (‚tapa öllu‘)
og í íslensku titra og skjálfa. Dæmi um orðapör sem búa yfir orðtak-
seðli eru þýska orðaparið gang und gäbe sein (‚vera mjög algengur‘), carne
y uña (,vera samrýmdir‘) í spænsku og hafa tögl og hagldir í íslensku
(sjá Burger 2015, 55; García-Page Sánchez, 2008, 389–396).
Eins og áður kom fram eru orðapör alla jafna ekki ígildi setninga,
þeim þarf því að bæta inn í setningar. Þau eru yfirleitt samsett úr
tveimur liðum, eru tvíliða (þ. doppelgliedrig, sp. estructura binaria), þ.e.
samanstanda af tveimur mismunandi orðum, kjarnaorðum, úr sama
orðflokki sem mynda einskonar par tengt með tengiorðum (Fügewörter,
nexos). Ef um orðapör sem mynduð eru með sama orðinu er að ræða
eru þau stundum nefnd eineggja orðapör (eineiige Wortpaare, palabras
siamesas) og er þá tengiorðið oftast forsetning.
Þau íslensku, spænsku og þýsku orðapör sem fjallað verður um
hér eru fyrst og fremst af þeirri gerð að í þeim er ekki um endur-
tekningu á sama kjarnaorði að ræða. Í næsta kafla verður vikið að
helstu flokkum orðapara í málunum þremur.
3. Flokkun orðapara
Orðapörum má skipa í flokka eftir sameiginlegum einkennum
þeirra. Flestir fræðimenn telja nærtækast að flokka orðapörin eftir
byggingu (Burger, Hofmeister, García-Page Sánchez, Almela Pérez
og fleiri). Aðrir hafa beint sjónum að hljómrænum einkennum
orðaparanna og hefur sú nálgun gefið af sér flokk þar sem einkum
er litið til stuðlunar, ríms og hrynjandi paranna (Burger 2015, 55;
García-Page Sánchez 2008, 331–332; 1998; Luque Nada 2017).
ERLA ERLENDSDÓTTIR OG ODDNÝ G. SVERRISDÓTTIR