Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2020, Qupperneq 24

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2020, Qupperneq 24
24 – Sjómannablaðið Víkingur Höfðu þeir einskis orðið vísari um afdrif skipanna, en alls hafði verið leitað á um 18 þúsund fermílna svæði. Þriðja leitin og hin síðasta var hafin fjórum dögum síðar. Í henni tóku þátt fjórir togarar ásamt varðskipinu Fyllu. Tveir af tog- urunum voru íslenskir, Skúli fógeti og Arinbjörn hersir, en tveir breskir, Ceresio og James Long. Leitað var að þessu sinni á miklu stærra svæði en áður, farið allt norður að hafísbrún og þaðan austur fyr- ir Horn. Þá var haldið vestur á bóginn og leitað vestanvert við svæði það, sem tog- ararnir höfðu áður kannað. Stóð leitin yfir í tólf daga og var alls farið yfir svæði, er nam um 60 þúsund fermílum. Þegar leitinni var hætt, voru leitarskipin stödd um 300 sjómílur vestur af Reykja- nesi. Veður var gott alla dagana og skyggni ágætt. En leitin varð árangurs- laus. Í ofviðri því, sem fyrr var getið, strandaði vélbáturinn Sólveig á Stafnes- skerjum og létu sex menn þar lífið. Alls fórust því í ofviðrinu, á fiskimiðum hér við land, 68 Íslendingar og sex Englend- ingar. Hátíðleg minningarathöfn var haldin um sjóslys þetta, í Reykjavík og Hafnarfirði þann 10. mars. Og um allt land var hinna föllnu minnst með fimm mínútna þögn. Sjómannastéttin íslenska hafði að þessu sinni hlotið reynslu sem varð henni dýrkeypt en lærdómsrík. Eigum við að setja „tímavélina“ að- eins í gang og ímynda okkur fund með 4 mönnum sem sjálfir voru sjónarvottar og þátttakendur í þeim hildarleik, sem getið var hér að framan. Þær eru stuttar og fábrotnar, en gefa þó ofurlitla hugmynd um það, sem fram fór um borð í skipun- um, meðan ofviðrið stóð yfir. Vildu frekar í hafið Gefum fyrst Snæbirni Stefánssyni (1889- 1951), skipstjóra á b/v Egil Skallagríms- syni RE 145, orðið en Snæbjörn var bróðir Eggerts Stefánssonar söngvara og heimsborgara og Sigvalda Kaldalóns læknis og tónskálds: – Við vorum staddir úti á Halamiðum þegar ofviðrið skall á, síðari hluta laugar- dagsins 7. febrúar. Stormur hafði verið talsverður fyrri hluta dagsins, en sjólag þó sæmilegt. Upp úr hádeginu var hætt að toga, gengið frá lestaropunum eins og vant var og veiðarfærin bundin upp. Var þá sjór tekinn mjög að spillast og veður- hæðin í hröðum vexti. Skömmu síðar var komið ofviðri, með ofsaroki af NA., blindhríð og stórsjó. Veðurofsinn var svo mikill, að stíma varð með hálfri ferð og stundum jafnvel fullri, til þess að halda í horfinu. Gekk erfiðlega að halda „dampi“, því að sjór var kominn á „fír- plássið“ og voru því tveir menn sendir af þilfarinu kyndurunum til aðstoðar. Síðari hluta nætur breyttist sjólagið skyndilega og umhverfðist um allan helming. Tel ég líklegt, samkvæmt síðari reynslu, að þá hafi skipið verið komið inn í straumröstina, sem þarna myndast á mótum Golfstraumsins og Pólstraumsins. Ég fékk tækifæri til þess síðar, að sjá með eigin augum hvernig sjólagi er háttað, þar sem straumar þessir koma saman. Það var við önnur og betri veðurskilyrði, í blíðskaparveðri og ládauðum sjó. En svo var straumþunginn mikill, þar sem straumarnir mættust, annar grár að lit, en hinn blár að lit, að á haffletinum mynd- aðist hryggur, þar sem þeir runnu hvor gegn öðrum. Skömmu eftir að sjólagið breyttist lenti stórsjór á skipinu og varpaði því á hliðina, þannig að stjórnpallurinn fór í kaf bakborðsmegin. Við veltuna kastaðist allt, sem lauslegt var, út í aðra hlið skips- ins, kolin, saltið og fiskurinn. Eldar drápust undir eimkatlinum, því að sjór flaut inn í eldstæðin og gólfplöturnar á „fírplássinu“ gengu meira og minna úr skorðum. Báða björgunarbátana tók fyrir borð og er það gleggsta dæmi þess, hve veltan var mikil, að þeir kipptu með sér bátsuglunum upp úr stýringum sínum á bátaþilfarinu með beinu átaki, þannig að ekkert sá á stýringunum. Skipið lá nú í sjóskorpunni þannig að sjór flaut upp á brúargluggana. Björg- unartilraunir voru þegar hafnar og voru skipverjar á svipstundu komnir hver að sínu verki. Tengslin voru höggvin af bát- unum, svo að þeir berðust ekki við skips- hliðina, kolunum og saltinu var mokað yfir í kulborða til þess að rétta skipið að nýju og síðan var farið að ausa, því að skipið var sem vænta mátti orðið hálffullt af sjó. Nokkur árangur var þegar orðinn af þessu erfiða starfi, þegar brotsjór reið yfir skipið aftur og varpaði því á nýjan leik á sömu hliðina og fyrr. Varð því enn að hefja sama verkið á sama hátt og áður, en alls var unnið að björgunarstarfinu í 36 klukkustundir samfleytt áður en búið var að ausa skipið og koma vélinni af stað. Síðan var lagt af stað til lands. Stýrt var alla leið í SSA, og reyndist sú stefna vera beint til Reykjavíkur. Er það greinilegasta dæmi þess, hve mikið ofviðrið var, að skipið skyldi, meðan á því stóð, hafa hrakið svo langt til hafs. Það er erfitt að skýra frá atburði þess- um svo að ekki sé að einhverju leyti minnst þess dugnaðar, sem skipverjar sýndu, allir án undantekningar, meðan á björgunarstarfinu stóð. En sem dæmi þess vil ég aðeins nefna eftirfarandi atvik: Meðan enn var verið að rétta skipið eftir áfallið, sem fyrr var nefnt, varð þess vart, að á einu af lestaropunum, því sem aftast var á þilfarinu, hafði losnað um ábreið- una, sem breidd var yfir lestarhlerana. Hér var sýnilega hætta á ferðum, sem vel gat orðið afdrifarík fyrir skip og áhöfn, ef ábreiðan losnaði alveg og hlerarnir færu af lestaropinu, þannig að sjór flæddi nið- ur í skipið. Þessari hættu varð að afstýra, en það var erfitt verk og áhættusamt. Fárviðrið var í algleymingi, frostharkan mikil, og hríðin og náttmyrkrið svo að varla sá út úr augum. Tveir af skipverj- um buðust þó þegar til að leysa starfið af Egill Skallagrímsson RE-165. Togarinn lagðist á hliðina og sjór flaut upp á brúarglugga.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.