Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2020, Blaðsíða 47
línan sem draga átti út í skipið festist á steini úti í flæðar-
málínu, og tafði það dálítið að björgun gæti byrjað. En
eftir að byrjað var að draga mennina á land af hvalbakn-
um gekk björgunin reiprennandi að kalla. Voru 20 komnir
í land kl. 8 um morguninn. Tveir menn voru þá eftir á
hvalbaknum. Var staðnæmst með björgunina, því eigi þótt
tiltækilegt að koma annari línu úr landi til þeirra sem í
reiðanum voru, heldur skyldi freista þess, að þeir kæmust
úr reiðanum og fram á hvalbakinn til þeirra sem þar voru.
Þetta tókst, þegar nægilega mikið var fallið út. Var þeim
fjórum síðan bjargað í land í bjarghring, eins og fjelögum
þeirra, og var björgun þeirra lokið kl. 9.
Jafnóðum og mennirnir komu í land var þeim komið
fyrir að Stað og í Móakoti. Þar beið þeirra hressing og heit
rúm. Haukanes kom á vettvang kl. að ganga 5. En enga
björgun var hægt að framkvæma þaðan. Seinna komu
þangað togarinn Geir og varðskipið Óðinn, en þá hjelt
Haukanes til Hafnarfjarðar.
Þessir drukknuðu
Þorsteinn Þorsteinsson skipstjóri, til heimilis á Laufásveg
34, 31 árs. Var ekkjumaður. Lætur eftir sig 3 börn. Jakob
Bjarnason 1. vjelstjóri, fæddur 1888. Skólavörðustíg 23.
Kvæntur. 5 börn. Elsta barnið, Gunnar, drukknaði þarna
með föður sínum. Hann var tvítugur. Ingvar Guðmundsson
2. vjelstj., Grettisgötu 45. Fæddur 1902. Ókvæntur. Sonur
Guðm. Guðmundssonar rennismiðs. Sigurður Sigurðsson
bræðslumaður, Suðurpól 13. Fæddur 1877. Kvæntur. Eitt
barn í ómegð. Eðvarð Helgason háseti, sonur Helga Sig-
urðsson, Arnargötu 10. Fæddur 1912. Ókvæntur. Sigþór
Júl. Jóhannsson háseti, Vesturvallagötu 5. Fæddur 1901.
Lætur eftir sig konu og 5 börn. Sigurður Engilbert Magn-
ússon háseti, sonur Magnúsar Þórðarsonar, Framnesveg
1 C. Ókvæntur, 20 ára. Ásgeir Pjetursson háseti, sonur Pjet-
urs Marteinssonar. Lindargötu 12 A. Fæddur 1906. Ókvænt-
ur. Eðvarð Jónsson (frá Lambhól) matsveinn, Bræðraborg-
arstíg 55- 30 ára. Lætur eftir sig konu og 2 börn. Guð-
mundur Stefánsson 2. matsveinn, Bergþórugötu 6. Fædd-
ur 1915. Móðir hans, Ólína Hróbjartsdóttir, missti mann
sinn frá 9 börnum, er Jón forseti strandaði í Höfnum. Jón
Kristjónsson kyndari. Skólavörðustíg 26. sonur Kristjóns
Jónssonar trjesmiðs. 20. ára, Ókvæntur. Markús Jónasson
loftskeytamaður. Vesturgötu 24. 26 ára ókvæntur.
Þessir björguðust
Stefán Benediktsson 1. stýrim. Kristinn Stefánsson 2.
stýrim. Jón Magnússon, Njarðarg. 41. Matthías Jochums-
son, Öldug. 17. Mikkel Guðmundsson Laugav. 27. Ingólfur
Gíslason, Eystri Skála, Eyjafj. Guðjón Marteinsson,
Amtmannsstíg 4. Guðmundur Sigurðsson, Bókhlöðustíg 6.
Arnór Sigmundsson, Vitastíg 9. Ásmundur Jónsson,
Hverfisg. 58. Halldór Magnússon, Hringbraut 190. Ragnar
Marteinsson, Meiri-Tungu, Holtum. Sigursveinn Sveinsson.
Fossi, Mýrdal. Kristján Magnússon, Efri-Hömrum. Ísleifur
Ólafsson, Grettisgötu 22. Árni Þorsteinsson. Keflavík. Hall-
mann Sigurðsson, Lambhúsum, Garðahr. Hjalti Jónsson.
Lokastíg 19. Ingvar Guðmundsson, Þjóðólfshaga. Ólafur
Marteinsson. Árbæjarhjálegu. Magnús Þorvarðarson,
Bragagötu 22. Lúðvík Vilhjálmsson, Hverfisgötu 49. Sól-
berg Eiríksson, Hverfisg. 99. Sæmundur Auðunnsson Minni
Vatnsleysu.
– 64 –
Sextugasti- og fjórði togarinn í eigu Ís-
lendinga, Hávarður Ísfirðingur ÍS-451,
skráður hér á landi 20. október 1925,
smíðaður hjá Cochrane & Sons Ltd, Sel-
by Englandi 1919 fyrir breska flotann,
nefndur Daniel McPherson sem var
breytt í Lord Halifax H 79 1920. Lengd
40,84 m., breidd 7,01 m., dýpt 3,75 m.,
314,03 brl., knúinn 600 hö. gufuvél.
Í janúar 1925 keypti Togarafélag Ís-
firðinga h/f á Ísafirði skipið og nefndi
Hávarð Ísfirðing ÍS-451. Skipstjóri, Vil-
hjálmur Árnason. Skráður eigandi 18.
febrúar 1936, var h/f Hávarður á Ísafirði,
sama nafn og númer. Valur h/f á Ísafirði
kaupir skipið 29. desember 1938 og
nefnir Skutull, sömu skráningarstafir.
Hlutafélagið Askur í Reykjavík kaupir
skipið 20. mars 1942 , sama nafn en fær
skráningarstafina RE 142. Ísfirðingar
tóku togarann Þorfinn RE-33 upp í
kaupin. Á árinu 1948 stóð til að selja
skipið, Oddsson & Co í Hull, (Jón Odds-
son skipstjóri) en þau kaup gengu til
baka. Mun togarinn hafa legið í höfn í
Hull þar til hann fór í brotajárn 1952.
Togarinn Skúli fógeti var
byggður fyrir Alliance í Bever-
ley í Englandi árið 1920. Hann
var 348 brúttó tonn, hið vand-
aðasta skip. Þorsteinn heitinn
Þorsteinsson hafði verið skip-
stjóri á togaranum ein 5 ár,
tók við skipstjórn af bróður
sínum, Gísla Þorsteinssyni, sem
nú er skipstjóri á Skeljung.
Skúli fógeti mun vera 10 eða
11. íslenski togarinn sem farist
hefir síðan Leifur heppni fórst
í febrúar veðrinu mikla 1925.
Morgunblaðið 11 apríl 1933.
Hávarður Ísfirðingur ÍS-451.
Sjómannablaðið Víkingur – 47