Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2020, Page 52
52 – Sjómannablaðið Víkingur
viðstaddir þegar Kínverjar afhentu hinn nýja farkost við hátíð-
legu athöfn. Allir grímuklæddir vegna kóvíd en afskaplega glað-
ir með hið nýja skip og að loks hyllti undir heimferð.
Þegar þessar línur komast á prent verður Dettifoss eflaust úti
á rúmsjó en áætlað er að heimsiglingin taki um 40 daga. Skipið
mun sigla frá Guangzhou til Taicang í Kína. Þar verður farmur
lestaður til Evrópu. Frá Kína liggur leiðin til Singapore, Sri
Lanka, um Súesskurð, inn á Miðjarðarhaf, í gegnum Gíbraltar-
sund og til Danmerkur þar sem ferðaáætlun skipsins verður
löguð að siglingaáætlun félagsins.
Áætlað er að Dettifoss komi eftir miðjan júní – þó fyrir
mánaðamótin – í fyrsta sinn til Íslands.
Stærstu gámaskipin
Áður en við lítum nánar á Dettifoss er rétt að geta þess að
systurskipið, Brúarfoss, verður væntanlega afhent undir lok
þriðja ársfjórðungs 2020.
Kíkjum þá á fáein atriði er lúta að búnaði skipanna og lesa
má á heimasíðu Eimskips. Byrjum á þeirri skemmtilegu stað-
reynd að fossarnir tveir sem hér um ræðir eru stærstu gámaskip
í eigu Íslendinga; 180 metra langir, 31 metra breiðir og geta
sem fyrr segir borið 2.150 gámaeiningar. Skipin eru hönnuð
með mjög mikla stjórnhæfni og með TIER III, 17.000 Kw aðal-
vél sem er sérstaklega útbúin til að minnka losun köfnunarefn-
isoxíðs (NOx) út í andrúmsloftið. Þau verða mun sparneytnari
á flutta gámaeiningu í samanburði við eldri skip og eru útbúin
olíuhreinsibúnaði sem dregur enn frekar úr losun brennisteins
(SOx) út í andrúmsloftið.
Þau eru sérlega vel útbúin fyrir siglingar á Norður-Atlants-
hafi, ísklössuð og uppfylla Polar Code reglur sem eru nauðsyn-
legar til siglinga í kringum Grænland.
Hin ánægjulega staðreynd fyrir núverandi og væntanlega við-
skiptavini Eimskips er að stærri og hagkvæmari skip leiða til
lægri rekstrarkostnaðar á gámaeiningu.
Siglingaleið Dettifoss frá Kína til Íslands.