Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2020, Side 62
á atvikinu og lýst því yfir að ef ekki er
hægt að koma lifandi gripum á milli
landa af öryggi eigi að setja bann á slíka
flutninga.
Queen Hind var á leið frá Rúmeníu til
Jeddah í Saudi Arabíu þegar skipið fór að
fá slagsíðu sem leiddi til þess að skipið
sökk að hluta en Rúmenar eru meðal
stærstu útflytjenda á lifandi gripum inn-
an Evrópubandalagsins. Um 100 gripa-
flutningaskip lesta árlega í Midia sem
andstæðingar þessa flutninga kalla
„dauðaskipin“.
Stóru númerin tala
Helstu vörumerkjaframleiðendur heims
hafa í auknum mæli beint sjónum sínum
að því hvernig flutningakeðja þeirra
starfar. Hvort það sé vegna kröfunnar
um grænni orku eða skráningu hluta-
bréfa fyrirtækjanna þá vilja sendendur
sjá breytingar. Þessu hefur skipaútgerðin
tekið eftir. Nike er eitt þeirra stóru
merkja sem hafa tekið höndum saman
um verndun hafsins og hafa stjórnendur
þess hleypt af stað herferð gegn heim-
skautasiglingum í samstarfi við Ocean
Conservancy. Hafa þeir boðið fyrirtækj-
um að sameinast í þessari herferð og
skuldbinda sig til að flytja ekki viljandi
vörur í gegnum þessi viðkvæmu vist-
kerfi.
Meðal þeirra sem hafa skrifað undir
þessa skilmála eru Bestseller, Bestseller,
Columbia, Gap, H&M, Kering, Li &
Fung, PVH, og útgerðirnar CMA CGM,
Evergreen, Hapag-Lloyd og Mediterrane-
an Shipping Company (MSC). Benda
þeir á að hættur vegna siglingar yfir
heimskautasvæði vega þungt og að ekki
sé hægt að horfa fram hjá áhrifum losun-
ar gróðurhúsalofttegunda frá skipum á
heimshöfunum.
Skipakóngur fallinn
Tilkynnt var þann 28. febrúar sl. að
norski útgerðarmaðurinn Wilhelm Wil-
helmsen hefði látist 82 ára að aldri. Wil-
helmsen útgerðin er ein af þeim síðustu
sem eru undir stjórn fjölskyldu en óveð-
ursský voru farin að dragast upp á him-
ininn vegna valdabaráttu ættingjanna
sem vildu hafa meiri áhrif á eigin auðæfi.
Valdabaráttuna má rekja til tveggja systra
Wilhelm, dætra þeirra fimm auk dóttur
látins bróður þeirra sem beindu spjótum
sínum gegn Wilhelm og einkasyni hans
Thomas en þau frændsystkynin eru af
fimmtu kynslóð útgerðarættarinnar.
Kvenleggur ættarinnar, að undanskyldri
ekkju Wilhelms og tveimur dætrum
þeirra, hafa gert þá kröfu að komið verði
á nýju stjórnunarskipulagi til að konurn-
ar geti haft meiri áhrif á eigin hagsmuni í
fjölskyldufyrirtækinu.
Sonurinn Thomas, sem hefur verið
við stjórnartaumana við hlið föður síns,
hefur svarað kröfum frænka sinna á
þann hátt að fyrirtækjasamsteypan hefur
gefið vel af sér til eiganda og gerir enn.
Að öðru leyti hefur hann ekkert frekar
um málið að segja. Eftir að fréttir af láti
Wilhelms bárust gaf ein frænkan út yfir-
lýsingu um að viðskiptadeilur innan fjöl-
skyldunnar skiptu engu máli á stundum
sem þessum og lýsti yfir að hún bæri
umhyggju fyrir hans nánustu fjölskyldu.
Vottaði hún fjölskyldunni samúð sína.
Fram hefur komið í fjölmiðlum í Noregi
að Wilhelm hafi tekið eigið líf og hafa
þær fréttir ekki verið bornar til baka.
Villtu um fyrir yfirvöldum
Panamíska stórflutningaskipið Harmony
Six var kyrrsett af filippínsku strandgæsl-
unni í lok febrúar sökum fölsunar á
leiðarbók skipsins. Skipstjórnarmenn
þess áttu við AIS upplýsingar ásamt að
breyta skýrslum til að koma í veg fyrir
að skipið yrði sett í 14 daga sóttkví þar
sem það var að koma frá kínverskri
höfn. Skipið hafði farið úr höfn í Chang-
zhou, sem er á hafnarsvæði Shanghai, til
Poro Point í Luzon 18. febrúar og kom á
áfangastað 23. sama mánaðar. Við kom-
una þangað gaf skipstjóri upp að skipið
hefði farið frá Kína 10. febrúar en ekki
átta dögum síðar eins og raunin var.
Áhöfnin sætir nú rannsókn yfirvalda.
Ofuröldur
Útgerðir og áhafnir skipa þurfa að taka
mið af nýrri rannsókn sem hefur sýnt
fram á að aukning sé á alvarlega hættu-
legum öldum. Það eru samtök yfirmanna,
Nautilius, sem hefur gefið út þessa við-
vörun í kjölfar rannsókna vísindamanna
við háskólann í Southampton og Nation-
al Oceanography Centre en þeir hafa
komist að því að sjaldnar verði vart við
ofuröldur en þær sem koma verða sífellt
kröftugri. Í þessari fyrstu rannsókn sinn-
ar tegundar hafa verkfræðingar og haf-
fræðingar rannsakað langtímagögn frá 15
ölduduflum sem hafa verið með fram
vesturströnd Bandaríkjanna til þess að
meta þróun í ölduhæð og tíðni ofur
bylgja á yfir 20 ára tímabili. Öldur eru
flokkaðar sem ofuröldur þegar hæð
þeirra er orðin tvisvar sinnum hærri en
ölduhæðin umhverfis þær. Frá öldudal
og að öldutoppi hafa fyrri rannsóknir
sýnt hæð þeirra yfir 30 metra og hefur
komið í ljós að ölduhæð hefur aukist
undanfarna þrjá áratugi á heimsvísu.
Skýrslan, sem var birt í ritinu Scient-
ific Reports, vekur athygli á að ofuröldur
ógni öryggi sjómanna og siglinga og að
slíkar öldur hafa grandað fjölda sjó-
manna og skipum. Baujurnar 15 voru á
svæðinu frá Seattle í norðri og til San
Diego í suðri og spanna mælingarnar frá
1994 til 2016. Í rannsóknunum kom í
ljós að ofuröldur höfðu hækkað um 1%
á milli ára.
Ferðir felldar niður
Kórónavírusinn hefur ekki farið fram hjá
nokkrum manni og nú hefur hann num-
ið land hér hjá okkur. Mikilla áhrifa er
ekki farið að gæta hér hjá okkur en það
sama er ekki að segja um aðra heims-
hluta þegar kemur að siglingum. Aldrei í
sögu siglinga hafa vöruflytjendur séð
annan eins samdrátt í flutningaplássi á
siglingaleiðum frá Evrópu og til Asíu.
Skipafélög hafa dregið úr siglingum
skipa sinna eða látið þau sigla hjá höfn-
um þar sem Kórónavírusinn hefur tekið
sér bólfestu þar sem þau annars hefðu
lagst að. Skipafélagið CMA CGM hefur
fellt niður 23 ferðir á þessari skipaleið
fram til 2. júní nk. auk þriggja annarra
ferða í janúarmánuði. Þessar niðurfell-
ingar má einnig rekja til minnkandi
farmflutninga í kjölfar veirunnar. Þessi
niðurfelling ferða hefur ekki einungis
áhrif á siglingar til Asíu, þetta hefur
einnig áhrif á flutningapláss til allra
svæða sem skip útgerðarinnar sigla
til.
Vegna breytinganna er farið að rukka
neyðarfarmgjöld til þeirra sem ekki áttu
pantað pláss en fyrir 20 feta gám er
gjaldið 50 € og helmingi meira fyrir 40
feta gám. Er gjaldið sett á alla farma frá
Norður Evrópu, Bretlandi og Skandinav-
íu til allra hafna í Miðjarðarhafi og Norð-
ur Afríku.
Á sama tíma og CMA CGM fella nið-
ur ferðir hrannast upp frystigámar í
höfninni í Shanghai samkvæmt upplýs-
ingum frá Mærsk skipafélaginu. Sama
ástand hefur einnig skapast í nágranna-
höfninni Ningbo. Verulegur skortur er
orðin á rafmagnstengingum fyrir alla þá
frystigáma sem eru að hrannast upp og
er farið að setja 1.000 $ aukagjald á
gáma en jafnframt eru farmflytjendur
hvattir til að senda frysti- og kæli-
gáma til annarra hafna en Shanghai og
Ningbo.
62 – Sjómannablaðið Víkingur
Utan úr heimi