Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2020, Qupperneq 73
á Íslandi, það nefndist Mikadó og fólst í
því að pikka upp tréprjóna án þess að
hreyfa aðra. Þetta haust spiluðum við
Bjarnhéðinn Míkadó af miklu kappi, nær
daglega.
Þegar ég var búinn að kenna í rúman
mánuð ákvað ég að skreppa til Reykja-
víkur að skemmta mér og sagði Bjarn-
héðni frá þeirri fyrirætlan minni. Ég var
nýbúinn að fá útborgað og hugði gott til
glóðarinnar að líta á gleðilífið í höfuð-
borginni.
Svo er það í hádeginu á föstudegi,
daginn áður en ég ætlaði mér að fara til
Reykjavíkur, að síminn hringir. Og þegar
ég svara þá er á hinum endanum maður
sem segist vera Jóhannes Gíslason, starfs-
maður bæjarfógeta í Vestmannaeyjum.
„Þú skuldar hér talsvert af opinberum
gjöldum,“ segir Jóhannes. „Mér sýnist
þetta vera um 50 þúsundir.“
Ég sagði það rétt vera en ég hefði
einmitt í fyrri viku farið á fund Frey-
móðs fógeta og samið við hann um að
greiða þau gjöld með jöfnum greiðslum.
„Ég er hræddur um að það bara gangi
ekki,“ segir Jóhannes. „Það er komin
krafa um að greiða þessi gjöld nú þegar.“
„En hvað með þetta sem ég talaði um
við hann Freymóð,“ segi ég. „Stendur
það ekki lengur?“
„Nei, hann Freymóður hefur enga
heimild til að semja um svona lagað,“
segir Jóhannes. „Og þetta verður að
borgast núna fyrir lokun í dag, annars
verður þetta sett í lögfræðiinnheimtu.“
Það þyrmdi yfir mig þarna við símann
og ég sá að Reykjavíkurferðin sem ég
hafði hlakkað sem mest til, væri farin
fyrir bí og ég yrði peningalítill næstu
vikurnar. Í bræði minni og algerri upp-
gjöf hreytti ég út úr mér:
„Nú, ég verð þá víst að koma í dag og
borga þetta.“
„Já, það væri gott,“ var þá sagt á hin-
um endanum. „Og hafðu Míkadóið með
þér.“
Sjómannablaðið Víkingur – 73
Vatnagarðar 16, Reykjavík, s. 568 6625, velarehf.is
Við látum dæluna ganga
• Dælur
• Dæluviðgerðir
• Ásþétti
• Rafmótorar
• Vélavarahlutir
Viðgerðir • Tæringarvarnir
Keramikhúðun
Fyrir Eftir
Hvaleyrarbraut 27
220 Hafnarfirði
Sími: 564 3338