Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2020, Side 90
90 – Sjómannablaðið Víkingur
„Óvenjulegur músagangur um flestar ef
ekki allar sveitir svo skepnur verða ekki
varðar í húsunum, og á einum bæ í
Eyjaf. 350 mýs.“
Það fréttist af þremur hafísjökum á
Eyjafirði og Grímseyingar segja augalaust
af hafís norður af eynni. Stórhríð geisar á
Akureyri og fönnin verður svo mikil að
ekki er nema fyrir mestu hörkutól að
komast á milli húsa. Hinn 29. desember
nær pósturinn að sunnan loks til bæjar-
ins og er með fimm hesta hlaðna
póstkistum. Hann hefur verið á ferðinni
síðan 4. desember að hann lagði upp frá
Reykjavík.
Eftir áramótin færast veðurguðirnir
enn í aukana. Snjór og kuldi setur mark
sitt á janúar en guð leggur líkn með
þraut. Dauður hvalur stingur upp kolli
undan Þórustaðalandi og er skorinn þar
sem hann situr fastur í ísnum og kjötið
selt á staðnum.
40 gráður á Celsíus
Mjög dregur úr kirkjusókn, guðshús Ey-
firðinga eru óupphitað og ekki verandi í
þeim fyrir brunagaddi. Frostið er daglega
á milli tuttugu og þrjátíu gráður og
stundum meira. Edvald E. Möller versl-
unarstjóri er forvitinn. Hann vill fá að
vita hvað ísinn, sem þekur Pollinn landa
á milli, er þykkur. Hann pjakkar á hann
gat og mælir, tvær álnir og þrír þuml-
ungar eða um einn og hálfur metri. Mæl-
ingin fer fram 25. febrúar. Mánuði síðar
þegar Björn skráir hjá sér hitastigið, 32
gráður á Réaumur eða 40 gráður á Celsí-
us, veltir hann fyrir sér hversu þykkur
ísinn á Pollinum kunni að vera orðinn.
Pollurinn og fjörðurinn út eftir öllu er
sem hvít slétta að sjá, hvergi dökkur díll
og menn hika ekki við að ganga ísinn,
jafnvel alla leið utan frá Siglufirði og inn
á Akureyri.
Björn getur þess í aprílbyrjun að sum-
ir séu teknir að gefa gripum mjólk úr
kúnum en fáeinir búa svo vel að eiga
hrossakjöt og slátur sem þeir hafa saltað
niður sérstaklega haustið áður í því
augnamiði að gefa það skepnum yfir vet-
urinn.
Samkvæmt dagatalinu er vorið komið.
Björn skrifar 15. maí: „Engin björg fæzt
úr sjó því allt er fullt með hafís.“
Tæpri viku síðar, laugardaginn 21.
maí: „Engar nýjungar, nema að ísinn er
nú aptur að losast hjeðan af Pollinum og
úteptir firði, en nokkuð situr nú fast í
fjörunum og á leirunni.“
Ritstjórinn getur þess líka að vart hafi
orðið við mikla fiskgengd „hjer innst í
fjarðarbotni.“
Það má gera ráð fyrir því að veturinn 1881 hafi messuföll verið tíð. Kirkjur voru óupphitaðar og mikil
þrekraun að sitja undir predikun prestsins þegar frostið utandyra fór í 30 eða jafnvel 40 gráður á Celsíus.
Olís hefur allt frá stofnun kappkostað að veita fyrirtækjum í sjávarútvegi
trausta þjónustu með sölu á eldsneyti og rekstrarvörum til útgerða.
Við ætlum að halda þeirri siglingu áfram.
Samferða í 93 ár