Rökkur - 01.10.1922, Blaðsíða 30
Svo þeir héldu heim, gáfu hestunum og brynntu þeim. Síðan
fóru þeir inn, þvoðu sér og höfðu fataskipti.
Og er þeir voru seztir, í upphitaðri stofunni, með dagblöðin —
og pípurnar, varð lundin létt og hugurinn rór.
Gunnar fékk tvö bréf með póstinum. Kveðja frá vinum hans á
æskustöðvunum.
Hann las þau, teigaði hvert orð með eins mikilli nautn og þyrstur
maður drekkur svaladrykk.
Gaska fékk eitt bréf. Honum flaug í hug, hvort hún mundi hafa
eins mikla ánægju af því, og hann af bréfunum sínum. Það var
lcarlmannshönd á umslaginu. Hann handlék það. Bréfið var þunnt,
í mesta lagi ein örk.
Var það frá Rúdolf?
Hann lagði það aftur á borðið. — Hvernig skyldi hún bera það,
ef Rúdolf væri fallinn?
Var hann kannske þegar dáinn fyrir henni?
Ósjálfrátt skaut þessari hugsun upp í huga hans.
Hvernig var tilfinningum hennar varið nú? Voru þær hinar
sömu og áður? Og ef svo var ekki, átti hann þá sök á því?
Margt stóð skýrara fyrir honum í þessu andartaki. — Hafði hann
unnið ást Gösku í fjarveru unnusta hennar? Hafði hann stigið
nokkurt spor í þá átt? Nei.
Hvorugt þeirra. Aldrei höfðu svo lítilfjörlegar hugsanir náð tök-
um á þeim. Ekki eitt orð höfðu þau sagt í þá átt. Og þó, — þó
elskuðu þau hvort annað, í kyrrþey.
----Karen litla sat á gólfinu, á sútuðu íslenzku gæruskinni, sem
Gunnar hafði haft með sér til Danmerkur. Hún lék sér að því,
að kenna brúðunum sínum pólsku.
„Karen!“ mælti hann. „Viltu hlaupa með þetta bréf til Gösku?
Hún er víst frammi.“
„Já. Ég ætla bara að færa Olgu í sokkana.“
„Ertu núna fyrst að klæða 01gu?“ sagði Gunnar brosandi. —
Olga var ein af brúðunum.
„Nei. En hún var í rófunum, skilurðu."
Hann brosti við, þegar hún kom til hans.
„Ertu að hlæja að mér, — íslendingur?“
Það nafn notaði hún óspart, einkum þegar þau í gamni ertu
hvort annað.
„Nei, nei. Að 01gu.“
30