Rökkur - 01.10.1922, Blaðsíða 69
Vekja þær til göfgi og dáða. Veikur vilji. Þar er rótin, segir hún.
Eins og vöðvar linist, séu þeir ekki æfðir og líkaminn verði skar af
áreynsluleysi, eins sé um sál hverrar manneskju, ef hæfileikar hennar
eru ekki notaðir, æfðir. Og hún spyr enn:
„Hugsa þær nokkurn tíma, þessar fögru konur?“ — Hún segir,
að það líti ekki út fyrir það. — Þær virðist frekast hugsa um það,
að ginna og klófesta menn. Að keppa hvor við aðra í því. Leita að
nýjum vörum til þess að kyssa. Ekkert sé heilagt í augum þeirra.
Ekkert fullnægi þeim. Sannleikurinn sé, að sálir beggja kynjanna
séu að meira eða minna leyti sofandi. Og að „modern“ stúlkur
vestan hafs hafi engar siðferðishugmyndir, enga sómatilfinningu.
Ást og allt rómantískt sé dáið í þessari nýja tímans Ameríku. Þegar
kona nái fertugsaldri sé hjarta hennar autt og tómt, sál hennar
geymi engar dýrar minningar. Og þegar karlmennirnir séu um
fimmtugt, þreyttir eftir harða baráttu, baráttu, sem var háð til þess
einungis, að auðgast veraldlegum auðæfum, þá fyrst fari þeir, þessir
Mammons-þrælar, að sjá, hvers þeir hafi farið á mis.
Hún minnist á starf sitt í sambandi við ameríska herinn á Frakk-
landi og Englandi. Hún átti tal við ameríska æskumenn hundruð-
um, þúsundum saman. Átti tal við særða menn og dauðvona, hrausta
og kappsama, en kannske einmana. Níu tíundu þeirra, segir hún,
minntust aldrei á unnustur sínar eða vinstúlkur. Amerísku her-
mennirnir, hávaði þeirra, minntust aðeins mæðra sinna. Mæður
þeirra. Konurnar, sem nú eru komnar yfir fertugt, fimmtugt, konur,
sem höfðu hærri, göfugri hugsjónir en þær, sem nú eru ungar. Um
þessar konur hugsuðu þeir, þessum konum unnu þeir, minning
þeirra var þeim helg. Og í einverunni þráðu þeir þær, litu andlit
þeirra fyrir augum sálar sinnar.
Hvað sannar þetta?
Að menn í raun og veru unna því góða í sál konunnar. Virða
sjálfsafneitun.
Það skín ást blandin sorg úr hverju orði Elinor Glyn. Rödd
hennar er hrópandans í eyðimörkinni, þegar hún skorar á amerísk-
ar konur að breyta um stefnu, skorar á þær að hugsa, nota gáfur
sínar, læra að ná valdi yfir villtum þrám, glæða áhuga sinn fyrir
öllu góðu og göfugu, leita að sannri hamingju í sjálfsafneitun,
göfugu starfi, hugsa um bækur, listir, lifa fyrir það, sem einhvers
er vert í þessum heimi. Það er vetur í sál amerískra kvenna nú,
segir hún, en hún hefir þó þá trú, að vorið, andlegt vor, muni koma
69