Rökkur - 01.10.1922, Blaðsíða 74
Forlög
Eftir Obren Savetovitch.
(Obren Savetovitch er kjörnafn serbneskrar stúlku, Annie Christitch. Hún
er fædd í Serbíu og faðir hennar var þar forsætisráðherra í allmörg ár, en
hún hefir dvalið langdvölum i Englandi og víðar og tók próf við háskólann í
Lundúnum. Hún hefir verið fréttaritari fyrir mörg ensk blöð og tók þátt í
margs konar líknarstarfsemi meðan á stríðinu stóð (1914—1918). Veturinn 1922
fór hún í fyrirlestraför um Bandaríkin. — „World Fiction" I., 6).
Simun Vuitch hafði ekki augastað á neinni sérstakri stúlku, unz
flökkustúlka nokkur, er Shusha var kölluð, vakti athygli hans á
Lenku, en Lenka var dóttir svínahirðis föður hans. Þetta var á
vashardegi (þorpsmarkaðsdegi) og hönd hans hvíldi í horaðri hönd
Shushu, er spáði um forlög fólks, svo sem títt er um konur af hennar
sauðahúsi. Og umhverfis þau þyrptust allir piltar og stúlkur þorps-
ins, til þess að heyra hverju Shusha myndi spá ríkasta brúðguma-
efni þorpsins. „Þessi hæfir þér“, sagði hún við einhverja stúlkuna
um leið og hún kinkaði kolli og benti á einhvern piltinn. „Og þessi
þér og þessi þér,“ sagði hún og benti á hvern skrautklæddan piltinn
af öðrum. „En þetta eru forlög þín,“ sagði hún við Simun, um
leið og hún benti á Lenku, sem hrökk aftur á bak, eigi síður hissa
en Simun sjálfur.
Þetta var í gamla daga, fyrir áratugum síðan, þegar nöfn Simunar
og Lenku voru samtengd, hálft í hvoru í gamni og hálft í hvoru í
alvöru; þegar þau stóðu kippkorn hvort frá öðru í þyrpingunni og
litu sitt í hvora átt (augljóst merki alvarlegrar ástar í Serbíu); þegar
Lenka þaut niður fjallstíginn, sem lá samhliða götuslóða þeim, er
Simun valdi á heimgöngu; þegar Simun, að störfum loknum í
þorpinu gekk um úti, í þessa átt og hina, en þannig þó, að hann
smám saman færðist nær brunninum, þar sem hún beið. Og þar
sat hann um hana eins og haukur um bráð. Þarna sat hún. Krukkan
var fyllt. Sólin skein á bandprjónana hennar og höfuð hennar smá-
beygðist niður yfir prjónlesið, unz hann — kom og fór í þögn.
Einu sinni komst hann eða áræddi nógu nálægt til þess að kasta
74