Rökkur - 01.10.1922, Blaðsíða 70

Rökkur - 01.10.1922, Blaðsíða 70
um síðir. Því sé ærlegur blóðdropi eftir, einhver snefill móður- löngunar, þá muni þær vakna í andlegum skilningi og finna þann sannleik, að ást og sjálfsafneitun framleiða hamingju, þá einu og sönnu hamingju. Þetta er aðeins stuttur úrdráttur og ekki á líkt því allt minnzt. En því mun enginn hugsandi maður neita, a. m. k. enginn, er til þekkir, að hún hefir ekki skrifað grein þessa að ástæðulausu. Menn, sem þora að kannast við sannleikann, geta ekki neitað sannleiksgildi margs eða flests í grein skáldkonunnar, þótt allur sannleikurinn sé kannske ekki sagður. Undantekningarnar eru svo margar, en á þeim ber svo lítið. En svo þarf ekki nema einn gikk í hverja veiðistöð. Mér verður það að hugsa til þeirra amerískra stúlkna, sem ég hefi kynnzt utan New Yorkborgar. Ég hefi þekkt sæg þeirra, unnið í verksmiðjum, þar sem þær hafa unnið, og þar af leiðandi kynnzt þeim, kynnzt fjölda af ungu fólki af báðum kynjunum. Og ekki eingöngu verksmiðjufólki, heldur og skóla- fólki. Og því verður ekki neitað, að ást á fögrum skáldskap er lítil, að það er bókmenntahratið, sem sótzt er eftir. En ég þori að full- yrða, að siðferði þess fólks, er ég hefi kynnzt, er engu síðra en víðast hvar annars staðar, þó meðfætt æskufjör þess sé margfalt meira en t. d. heima á Fróni. Kynntist skáldkonan aðeins stórborgastúlkunum? Gleymdi hún öllum hinum? Eiga sveitastúlkurnar svo harðan dóm skilið? Og jafnvel smábæjastúlkurnar? Tæplega. En eftiröpunartilhneigingin er einmitt ríkust þar. Og það mun margur hugsandi maður mæla, að þörf sé farin að verða á, að stemma stigu fyrir þau áhrif, sem stórbæjalífið hefir á sálir manna, að stórborgaspillingin verði ekki látin grípa allt of mikið um sig, að hún verði ekki látin breiðast út um löndin. Því var kannske betur farið en heima setið. Karlmennirnir Mammons-þrælar! Konurnar nautnasjúkar, jarðbundnar! Harður dómur! En upp úr allri eymd, allri spillingu, nautnafullnægingu, trú- leysi, svikum, samvizkuleysi, vaknar þráin, vex þráin til hins göfuga og góða. Eins og Guð verði að knýja mannssálirnar niður í duftið til þess svo að geta dregið þær að sér. Rökkur, 1922. 70
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Rökkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.