Rökkur - 01.10.1922, Blaðsíða 17

Rökkur - 01.10.1922, Blaðsíða 17
Faðir minn var ern fram á síðasta dag. Ég sá lítinn mun á hon- urn síðustu tíu ár lífs hans, þó að hárið væri að smáhvítna. Og hann var eins vel vakandi andlega síðustu ár æfi sinnar og tíu árum áður. Eitthvert síðasta, kannske síðasta, bréf hans, var skrifað til mín, og er nú í Landsbókasafninu. Ég var þá norður í Þingeyjar- sýslu. Hann drap þar á ýmislegt, sem á döfinni var, á þingi og víðar. Og það vildi svo einkennilega til, að mér barst bréf þetta um sama leyti og andlátsfregn hans. Ég sló með sláttuvél þetta sum- ar — ég er búfræðingur að nafninu til — hjá þeim Laxamýrar- bræðrum, bræðrum Jóhanns heitins skálds. En þessa vikuna sló ég á Hraunkotsengjunum. Ég man mér leið illa þann dag. Þykkni var í lofti seinni hluta þess dags. Það var eins og skýjaþykknið væri að færast nær manni úr öllum áttum. Og þá er heim í Hraunkot, heim í bæ var komið, kom Egill á Mýri sjálfur og sagði mér tíðindin. Tíðindin um andlát föður míns, sem frænka mín syðra hafði símað til hans. Og Egill söðlaði hest sinn og vildi mér segja sjálfur, áður en ég heyrði á skotspæni. Ég get þessa hér, af því unglingurinn hefir eklti enn og mun aldrei gleyma nærgætni Egils, gleyma stuttri stund í Hraunkotsstofunni, meðan regnið dundi á glugganum, og reið okkar heim að Mýri, þó að hvorugur mælti orð. Hann hafði hugsun á því hann Egill, að koma með hest handa mér. Það datt í mig að fara heim. En ég vildi ekki láta hana móður mína vita um það. Mér fannst, að hún hefði nógu þunga sorg að bera, þó að það bættist ekki við, að vita af mér einum á ferð á ókunnum slóðum. Skipaferðir voru engar suður um það leyti. Og ég hafði engin önnur ráð en að fara fótgangandi mestan hluta leiðarinnar. Ég ætla ekki að segja frá skipsför frá Húsavík til Akureyrar eða gönguför frá Akureyri til Borgarness. Ekki í þetta sinn. En löng var gangan um Langadal og sárfættur og lúinn var ég orðinn, er ég kom niður í Borgarfjarðar- hérað. Er ég kom á þær fornu stöðvar, sem voru æskustöðvar mínar, ekki síður en Reykjavík og nágrenni. En það, sem knúði mig áfram dag hvern, frá því snemma á morgni og á nótt fram, var unglingsleg löngun, von um, að fá einn einu sinni að sjá silfurhærurnar hans pabba míns. Það átti ekki að vera svo. Ég kom hálfum öðrum degi of seint. Og ég get eða gat að nokkru leyti sjálfum mér um kennt, því að ég eyddi meira en degi á Akureyri, áður en ég komst af stað. En það var samt gott að koma heim, heim til hennar, sem ein skildi; heim, þó að þar væri nú meiri auðn fyrir en nokkru sinni áður. 17 2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Rökkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.