Rökkur - 01.10.1922, Blaðsíða 76

Rökkur - 01.10.1922, Blaðsíða 76
pilt, ríkasta piltinn í þorpinu. Og hún hugsaði um, hvort það gæti hugsazt, að spádómur Shushu myndi rætast. Hún trúði því sjálf, á kvöldin, þegar hún opnaði silkiklútinn, sem hún hafði borið á brjóstinu guðslangan daginn og horfði á blöð visinnar rósar, sem eitt sinn hafði verið kastað í kjöltu hennar. — Um það leyti þroskaðist söngrödd hennar dásamlega. Hún söng í kirkjunni á hverjum sunnudegi og hennar var saknað, kæmi það fyrir, að hún sækti eigi tíðir. Og Simun var raddmaður góður, rödd hans var djúp og hrein og sterk. í raun og veru var kirkju- söngurinn oft tvísöngur — Simunar og Lenku. Og það var sam- ræmi, þróttur og fegurð í söng þeirra. Fólk fór jafnvel að koma frá Sabac til þess að hlusta á þau. Og sunnudag nokkurn hreifst sál Simunar svo hátt frá verzlegum hugsunum, að hann gleymdi öllu um tólf ekra bújörð, hlöðu með þaki, sjö kúm og tylft svína og miklu erfðagózi — og mundi aðeins sönginn og að blóð Vuitchanna rann í æðum hans. „Faðir!“ sagði hann. „Heyrðirðu hana syngja?“ „Nei. Og stúlkur ættu ekki að syngja í kirkjunni. Slíkt og því- líkt gerðist aldrei í ungdæmi mínu.“ Samt sem áður — Simun þraukaði, þó Panto og Gligory báðir töluðu við nágranna sína um hann Simun sem tilvonandi tengdason. Og þá — skyndilega — kapítulaskipti. Bumbur, er enginn hafði snert árum saman, voru barðar á ný. Herör var skorin upp. Her safnað í stríð á móti Búlgörum. Simun neitaði að nota sér undanþáguleyfi, sem hann hefði getað af því hann var einkasonur, og fór með félögum sínum. Hann kom aftur með heiðurspening og brotinn handlegg. Og faðir hans tók hann í fang sér og kyssti hann á ennið, í fyrsta og eina skiptið á ævinni. Og Simun varð þess var, að varir gamla mannsins skulfu. — Og daginn, er armur hans var alheill orðinn og spelkunum hafði verið kastað í eldinn, mælti faðir hans: „Um frekari bið getur nú ekki verið að ræða. Þú átt hamingju skilið. Á morgun, þegar vashar er um garð gengið, skulum við ganga á fund Pantos og biðja elztu dóttur hans þér til handa.“ Simun, sem hafði unnið heiðurspening fyrir að þjóta inn í þyrp- ing óvinahermanna og vega risavaxinn undirforingja, drap höfði. Hann hafði ekki litið Lenku langa lengi. Hann hafði ekki kvatt hana áður en hann fór í stríðið og ekki litið hana síðan hann kom heim aftur. 76
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Rökkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.