Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2022, Page 18

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2022, Page 18
ljósmæðrablaðið ljósmæðrablaðið 1. tölublað · 100. árgangur · desember 2022 1918 1. tölublað · 100. árgangur · desember 2022 Hér er Hrafnhildur minnt á að það hafi ýmislegt gengið á á þeim tíma sem hún var ritstjóri. Í rit­ stjórnar pistli árið 2013 hafi hún til dæmis vitnað í ályktun Ljósmæðrafélagsins um áhyggjur af fækkun á fæðingarstöðum víða um land og skorti á stefnu­ mótun í fæðingarþjónustu. Meðal annars hafði Hreiðrið verið lagt niður og með því samfella í þjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Þá hafi kjarabarátta ljós mæðra verið hörð og rifjað er upp að Alþingi hafi setti lög á verkfall ljósmæðra árið 2015, viku fyrir aldar afmæli kosningaréttar kvenna. Það voru líka blikur á lofti í femínískri baráttu og konur byrjaðar að skila skömminni og krefjast þess að hlustað væri á rödd þeirra. Þetta er allt hægt að lesa um í blaðinu. hrafnhildur Það er vissulega lærdómsríkt að rifja þetta upp. Ég man eftir því hvað ég dáðist alltaf að því hvað ljósmæður tóku vel í það að skrifa í blaðið. Sérstaklega núna í ljósi þess sem við höfum verið að tala um, að hér áður fyrr hafi verið erfitt að fá konur til að skrifa. Mér fannst það svo ánægju legt, hvað vel var tekið í það. Og þetta voru ekki alltaf sömu ljósmæðurnar. En svo fékk ég líka Fylgjuna í fangið, dagbókina. Elví var búin að vera með hana á brjósti í mörg ár en þegar hún hætti tók ég hana að mér líka. Á að ventunni var ég með bæði blöðin. Það má kannski segja að allar ljósmæður hafi beðið eftir Fylgjunni, en engin spurði um Ljósmæðrablaðið. Fylgjan var barn síns tíma og það var rétt að hætta að gefa hana út. Það var mikil vinna að fara yfir hana og tryggja að allur texti væri réttur. Það var líka sterk umræða um það hvort Ljós mæðra blaðið væri of dýrt og alls kyns leiðir til að reyna að spara, hvort það væri nauðsynlegt að pakka því í plast. Við fjölskyldan fórum þá saman á aðventunni og sátum í félaginu og pökkuðum blaðinu til að spara. valgerður Langoftast hefur blaðið bara staðið undir sér með auglýsingum en þetta er greinilega endurtekið efni í 100 ára sögu blaðsins, að tala um kostnað. En það er líka styrktarsjónarmið að láta pakka blaðinu, það var gert í Örva sem var verndaður vinnustaður. ólöf ásta Nú er þetta umhverfissjónarmið og við hættar að láta pakka blaðinu. Að fá krógann í fangið; að brenna fyrir því að útgáfa Ljósmæðrablaðsins sé okkur ljósmæðrum til sóma ólöf ásta Þegar ég tók við ritstjórninni var staðan þannig að Áslaug, formaður félagsins var búin að vera að leita að eftirmanni Hrafnhildar og það var enginn tilbúinn að taka þetta að sér. Einn góðan veðurdag hugsaði ég; „Ég er hvort sem er í ritnefndinni, ég brenn eiginlega fyrir því að útgáfa blaðsins sé ljósmæðrum til sóma.“ Það er mjög mikilvægt fyrir fagstétt að gefa út blað og aðstæður hjá mér voru þannig að ég var hætt að vera námsbrautarstjóri og hafði lausa stund. Mér leið vel að taka þessa ákvörðun. Ég sé ekki eftir því af því að það er mjög gaman að gefa út þetta blað, að vera í ritnefndinni og hitta allt þetta skemmtilega fólk. Það er einhver kveikja eða neisti sem heldur manni vakandi. Ég skil vel að manni detti í hug að fara í meistaranám, og ef út í það er farið þá var ég ekki búin að fara í meistaranám þegar ég byrjaði í ritnefndinni. Ég veit ekki einu sinni hvenær ég byrjaði, ætli ég sé ekki búin að vera viðloðin blaðið með hléum frá 1980. Og nú er ég búin að vera ritstjóri í fimm ár. Þetta er auðvitað heilmikil vinna eins og þið vitið. En að fá krógann í fangið, það er í hvert skipti hátíðlegt. Alveg eins og þegar lesandinn fær það í hendur, eins og við höfum talað um. Ef við hugsum aðeins um þennan metnað sem er svo augljós í upphafi blaðsins. Hvað haldið þið um nýútskrifaðar ljósmæður, ljósmóðurnemana, leita þær í blaðið eða leita þær fanga annars staðar? Erum við sem sitjum við þetta borð málsvarar þröngs hóps ljósmæðra? Hvernig er best að halda við þessum neista sem forljósmæður kveiktu fyrir 100 árum? Hvernig sjáum við fyrir okkur framtíð blaðsins, er hún björt? ólöf ásta Ljósmæðrablaðið hefur breyst frá því að vera þessi blöðungur í veglegra blað. Það er orðið rafrænt en við viljum hafa það meira og betur rafrænt. Félagið hefur líka verið duglegt 4 Ljósmæðrablaðið - júlí 2017 Enn kemur Ljósmæðrablaðið út, á 95. aldursári, um mitt sumar þegar sól stendur sem hæst. Á sama tíma er komið að ritnefndar- og ritstjóraskiptum. Hrafnhildur Ólafsdóttir skilar góðu verki eftir sex ára setu í ritstjórastólnum og eru henni þökkuð vel unnin störf. Ritnefndin og nýr ritstjóri Ólöf Ásta Ólafsdóttir, sem nú tekur við, mótar ritstjórnarstefnu næstu tveggja ára, fram að 100 ára afmæli Ljósmæðrafélagsins sem verður fagnað vorið 2019 þegar Norræna ljósmæðraráðstefnan verður haldin í Reykjavík. Það ár er gert ráð fyrir að útgáfa Ljósmæðrablaðsins verði veigameiri, samfara útgáfu sérstaks afmælisrits og nýs ljósmæðratals, sem löngu er kominn tími til að gefa út. Litlar sem engar breytingar eru á útliti blaðsins sem nú lítur dagsins ljós, en búast má við einhverjum breytingum þegar fra í sækir. Ýmsar hugmyndir hafa verið settar fram, til dæmis v rðandi forsíðu, uppsetningu og efnistök. Áætlað er að bæta rafræna útgáfu, fjölga ritrýndum greinum en einnig fræðslugreinum samþykktum af ritstjórn sem nýtast til sí- og endurmenntunar. Þá eru uppi hugmyndir um að halda áfram að víkka efnistök blaðsins jafnvel þannig að blaðið höfði til stærri hóps og þá geta möguleikar opnast fyrir frekari dreifingu. Í auknum mæli verður blaðið menningarlegt á sviði ljósmóðurfræða og þverfræðilegt á gagnrýnan hátt, um heilsueflingu, heilbrigðisþjónustu, kven- og kynheilbrigði, foreldrahlutverk, fjölskylduna, barneignarferlið og nýja barnið. Þetta blað er eins og síðustu ár prentað hjá Prentun.is í Hafnarfirði, litlu fyrirtæki með stórt hjarta eins og segir á heimasíðu þess. Þar er veitt persónuleg þjónusta og kappkostað er að vinna blaðið samkvæmt nýjustu tækni, á hagkvæman hátt á umhverfisvænan pappír. Skrifstofa Ljósmæðrafélagsins sér um að afla auglýsinga í blaðið og þær standa undir kostnaði við útgáfuna og er það vel. Að venju er umfjöllunarefni blaðsins fjölbreytt, í formi fræðslugreina, fréttatilkynninga og með birtingu mynda úr námi og fag- og félagsstarfi ljósmæðra. Frásagnir eru frá stjórn og ýmsum hópum ljósmæðra sem þróa sig faglega og sækja af dugnaði námskeið og ráðstefnur á vegum Ljósmæðrafélagsins, ljúka doktorsprófi eða hljóta viðurkenningar fyrir að vera ungur vísindamaður á Landspítala. Fastir liðir eru á sínum stað; ljósmæður ræða um mál ofarlega í huga sem hvetja okkur til dáða og nemaverkefni birtast en lítið gagn er af þeim lokuðum á netinu eða uppi í hillum. Nýburagulan, greining og meðferð á henni, er tekin fyrir í fræðslugreinum, annars vegar er u að ræða BS verkefni í læknisfræði og hins vegar klínískt fræðilegt verkefni 2. árs nema í ljósmóðu fræði. Við fáum líka að ky na t nýjungum í meðferð á meðgöngu, í fyrsta lagi um næringarmeðferð og öðru lagi um breytingar á skipulagi meðgönguverndar frá því að vera eingöngu einstaklingsbundin til að vera líka veitt í hóp. Saga og þróun í fósturgreiningu er einnig tekin til umfjöllunar og sagt frá skipulagi starfsnáms og sérhæfingu ljósmæðra á þessu mikilvæga sviði. Það er ljóst að umönnun og samband ljósmæðra við konur og fjölskyldur þeirra byggir á faglegri færni í að þekkja og mæta ólíkum þörfum kvenna og hafa innsæi og kunnáttu í að höndla óvissuna sem fylgir barneignarferlinu. Bakgrunnur, væntingar og þarfir kvenna kalla á ólíka umönnun og ljósmóðurmeðferð. Mannréttindi og þörf fyrir mannlega nánd er þó í grunninn öllum konum og fjölskyldu mikilvæg og sameiginleg, eins og kom fram í erindi Lesley Page hérlendis á Alþjóðadegi ljósmæðra 5. maí síðast liðinn. Gagnreynd þekking í ljósmóðurstarfi og niðurstöður fjölda rannsókna sýna einnig fram á að ljósmóðurrekin og samfelld þjónusta sé lykilatriði fyrir örugga og farsæla fæðingu. Velta má upp þeirri spurningu hvort það sé í aun forsvaranlegt að bjóða ekki upp á eða þróa samfellt þjónustuform til ávinnings fyrir barnshafandi konur og fjölskyldur þeirra, svokallaða MFS þjónustu. Þá þarf að leita svara við hvers vegna svo erfitt það hefur reynst bæði hér á landi og víða um heim að bjóða upp á og viðhalda slíkri þjónustu. Segja má að ljósmæður úti á landi, þar sem konur geta fætt í heimabyggð, hafi haldið merkinu á lofti og síðustu ár ekið eins konar fæðingarheimili með samfellda þjónustu að leiðarljósi innan heilbrigðisstofnana með eða án aðgangs að skurðstofu. Nú hafa þau gleðitíðindi gerst í Reykjavík að ljósmæður hafa að nýju, eftir rúm 20 ár, opnað fæðingarheimili utan sjúkrahúss. Til heiðurs þeim prýða þær forsíðu þessa blaðs. Ljósmæðrablaðið tekur undir með Steinunni H. Blöndal sem skrifar í ritstjórnargrein: „Með Þori, Getu og Vilja hafa þessar hugrökku Bjarkarljósmæður nú náð settu markmiði. Til hamingju og megi starfsemin vaxa og dafna barnshafandi konum og fjölskyldum þeirra til gæfu“. Ný ritstjórn Ljósmæðrablaðsins hlakkar til að fá efni frá ljósmæðrum í blaðið. Ljósmæðrablaðið er okkar vettvangur til samskipta og faglegs þroska innan stéttarinnar og í þágu kvenna og fjölskyldna í ljósmóðurstarfi. Lyklu skil ð Núverandi og fyrrverandi ritstjóri Ólöf Ásta Ólafsdóttir og Hrafnhildur Ólafsdóttir. R I T S T J Ó R N A R P I S T I L L Ólöf Ásta tekur við sem ritstjóri af Hrafnhildi, Ljósmæðrablaðið, 2017 (1), s. 4. að koma með ýmislegt nýtt, eins og til dæmis öpp og fræðslu með snöppum. Ég veit ekki hvort Ljós mæðra blaðið eigi að fara á TikTok, Rúv er komið á TikTok. En það er mín tilfinning að það sé alltaf jafn gott að fá blaðið í hendur og ungar konur eða nýútskrifaðar ljósmæður vilji það líka. En varðandi mína ritstjórnarstefnu, þá fólst hún líka í því að viðhalda útgáfunni, að hlúa að heimilda vinnunni. Útgáfa blaðs gefur svo mikla sýn á það hvernig saga ljósmæðra hefur verið. Og það sér maður núna, þegar maður skoðar gömlu blöðin. Það er líka mikilvægt að segja fréttir, að vera með lýsingar frá ári til árs. Það skiptir til dæmis máli að vera með frá sögn af afmæli félagsins. Ég veit að Erla Dóris Halldórs- dóttir sagnfræðingur notaði Ljós mæðra blaðið sem heimildir þegar hún var að skrá sögu ljós- mæðra í nýju bókinni. Ef við horfum til dæmis á reynsluna af covid faraldrinum þá var mjög mikil vægt að vera með umfjöllun strax. Að hafa við töl í blaðinu og fá sýn ljósmæðra á meðan á þessu stóð. Þó að þetta séu kannski ekki tíma- móta greinar, þá verður þessi umfjöllun mikilvæg í framtíðinni. Covid er nú þegar orðið sögulegt. Við gleymum svo fljótt og fáum allt annars konar frásagnir þegar frá líður. Svo breyttum við líka út af vananum með forsíðu blaðsins, eins og Ólafía og hennar ritstjórn og höfum frá 2017 fengið ýmsar listakonur til þess að hanna for síður blaðsins. Það hefur verið ótrú lega skapandi og skemmti leg viðbót í blaðið. valgerður Það er alveg rétt. Blaðið gefur mynd af mál efnum líðandi stundar í það og það skiptið. Við megum alls ekki missa þetta. En Ljós mæðra­ blaðið er líka svo fjölbreytt. Við erum fag sem þarf að byggja á fræðilegri þekkingu og í blaðinu er fræðilegri þekkingarsköpun okkar komið á framfæri. En svo er þetta félagslega líka mjög mikilvægt. Þessi tengsl skipta máli. Hvað er til dæmis að gerast fyrir austan? Eða á sunnan- verðum Vestfjörðum? Það er fjallað um ráð stefnur í blaðinu og við fáum að sjá fallegar og lýsandi myndir. Það er líka gaman að lesa um ljós mæður sem hafa unnið í allt öðru umhverfi. Ég held að það sé margt svona sem skiptir máli og muni halda blaðinu á lífi. Það höfðar til breiðs hóps. Sögur höfða til eins hóps og fræðin til annarra. ólöf ásta Hér kemur líka upp í mér kennarinn. Með ritrýndu greinunum og fræðslugreinunum þá er tryggt að það sé skrifað um okkar fag á íslensku. Mér finnst mikilvægt að ljósmóðurnemar í dag skynji hvað þetta skiptir miklu mál. Að þær nýti sér blaðið og lesi nýjustu greinarnar í blaðinu. Ég held reyndar að þær geri það. Það er gott að geta sagt: „Það er búið að skrifa um þetta í Ljós­ mæðrablaðinu, lestu greinina hennar Valgerðar.“ Fyrir 25 árum hafði maður ekkert til að vísa í á íslensku, í íslenskum veruleika. Nú eru til íslenskar rannsóknir. Tökum sem dæmi Lausna steina, bókina. Hún er enn í fullu gildi. Það eru fínir kaflar í henni sem allir nemar ættu að lesa. En auðvitað skiptir aðgengið fyrir nútíma ljósmóðurina líka miklu máli. Og það væri forvitnilegt að vita hvert þeim finnst hlut verk blaðsins vera. En það er líka gefandi að fá endur kast frá eldri ljósmæðrum. Þetta gefur þeim innsýn í starfið, að fá blaðið í hendur. Þær eru kannski hættar að vinna en maður hættir aldrei að vera ljósmóðir. Fléttukjóllinn. Verk Sunnu Maríu Schram, ljósmóður og myndlistarkonu, sem prýddi forsíðu blaðsins árið 2017.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.